Nýi tíminn - 15.12.1955, Qupperneq 5
Fimmtudagur 15. desember 1955 — NÝI TÍMINN — (5
áttaátök i
Árásir á svertingja sem krefjasf réttar
sins - Hœstaréffardómur fótum troSinn
Svertingj aprestur hefur orðið a'ö' flýja frá South Caro-
lina fylki í Bandaríkjunum til New York til a'ö bjarga lífi
sínu. Hann hélst ekki lengur vi'ö í heimkynnum sínum
eftir a'ö trylltur múgur haföi brennt kirkju hans til
grunna og látið skothríö dynja á heimili hans.
Þessi atburður er eitt af
mörgum merkjum þess að kyn-
þáttaátök fara sem stendur
harðnandi í suðurríkjunum.
Verulegur hluti hvítra íbúa
þeirra og yfirvöldin í sumum
ríkjunum eru sýnilega staðráð-
in í að beita öllum ráðum til
að hindra sókn svertingjanna
til fulls jafnréttis við hvíta
menn.
KRAFÐIST AFNÁMS
SÉRSKÓLA
Ástæða ofsóknanna gegn séra
Joseph A. DeLaine, meþódista-
presti í Lake City í South Caro-
lina, var að hann krafðist þess
af yfirvöldunum að þau fram-
fylgdu dómi Hæstaréttar Banda-
ríkjanna um að aðskilnaður
hvítra barna og svartra í sér-
stökum skólum væri brot á
mannréttindaákvæðum stjórnar-
skrárinnar.
HÚSDD BRENNT
OFAN AF HONUM
bílunum var skotið á húsið, þar
sem prestshjónin voru ein heima.
Séra DeLaine þekkti sýslumann-
inn, sem hann hafði leitað lið-
sinnis hjá, í hópi árásarmann-
anna. Árásarmennimir sneru
frá þegar prestur svaraði skot-
hríðinni í sömu mynt. Beið hann
ekki boðanna og hélt til New
York.
FRAMSALS KRAFIZT
Réttarhöldin í New York
stöfuðu af því að fylkisstjórn-
in í South Carolina hefur kraf-
izt þess af fylkisstjórninni í New
York að fá prestinn framseld-
ann sem hvern annan saka-
mann. Hefur hann verið lög-
sóttur fyrir að verja hendur
sinar þegar sótzt var eftir
lífi hans.
Nichols, biskup meþódista-
kirkjunnar í New York, hefur
skotið skjólshúsi yfir séra Ðe-
Laine, og samtök svertingja
hafa bundizt samtökum um að
berjast gegn því að framsals-
krafan verði tekin til greina.
MORÐ OG MORÐTIL-
RAUN
í bænum Belzoni í Mississippi
var á mánudaginn í síðustu viku
skotið á svertingjakaupmann,
Gus Courts að nafni. Hann ligg-
ur nú í sjúkrahúsi allmikið
særður. Hann segir að skotið
hafi verið á sig „vegna þess að
ég vildi fá að kjósa“. Skotið
kom úr bíl útifyrir búðarglugga
Courts.
Kaupmaðurinn er formaður
deildar úr Framfarafélagi hör-
undsdökks fólks í Belzoni, Ann-
ar af— for*iséumöaiu*m deiidar-.
innar, svertingjaprestur að nafni
G. W. Lee, var myrtur á götu
í bænum í sumar. Þeir Courts
höfðu unnið saman að því að
koma svertingjum á kjörskrá
í bænum. í Belzoni búa um
4000 manns.
„Ég er 65 ára gamall og hef
aldrei fengið áð kjósa en ég
vil fá kosningarétt", sagði Courts
við blaðamenn sem ræddu við
hann í sjúkrahúsinu.
FÆRRI FÁ AÐ
KJÓSA
Adam Powell, þingmaður
svertingjahverfisins Harlem í
New York á þinginu í Washing-
ton, hefur tilkynnt að hann
muni leggja til þegar þing kem-
ur saman í vetur að allir þing-
menn frá Mississippi verði
sviptir þingBíT.i, „vegna þess að
íbúar í því li er sviptir kosn-
ingarétti.“
í Mississippi er búsett milljón
svertingja en af þeim eru aðeins
8000 á kjörskrá. Hefur þeim
fækkað úr 22,000 á síðustu ár-
um. Tilgangurinn með morðun-
um á svertingjum er að hræða
þá frá að krefjast réttar síns.
Það kemur aldrei fyrir að morð-
ingjunum sé refsað.
SKÓLASKYLDA AF-
NUMIN
Fylkisþingin í þeim suðurríkj-
um sem alræmdust eru fyrir
kynþáttakúgun, Soth Corolina,
Georgia og Mississippi, hafa sam-
þykkt lög um að leggja skuli
niður alla opinbera skóla og fá
í hendur einkaaðilum heldur
en hlýðnast fyrirmælum Hæsta-
jættao- um afnám aðskilnaðar
kynþáttanna í opinberum skól-
um.
Nú eru horfur á að Virginia,
sem liggur sunnan að höfuðborg-
inni Washington og hefur ver-
ið talið eitt mesta framfara-
fylkið í hópi suðurrikjanna,
fylgi því fordæmi.
Thomas Standley fylkisstjóri
hefur kallað fylkisþingið saman
á aukaþing til að ræða frum-
varp um breytingu á stjórnar-
skrá fylkisins. Markmiðið með
því er að gera fylkisstjórninni
fært að leggja alla opinbera
skóla niður og fá einkaaðilum
skólahaldið í hendur. Úrskurður
Hæstaréttar um afnám kynþátta-
aðskilnaðar nær ekki til einka-
skóla.
iijörn Magnússon fyrrum
kennari og bóndi varð bráð-
kvaddur í fyrrakvöld.
Björn var íæddur á Ægissíðu
í Húnavatnssýslu og ólst upp í
þeirri sýslu. Hann stundaði
nám í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri og stundaði síðan
kennslustörf um margra ára
skeið á Blöndósi. Síðar bjó
hann á ýmsum bæjum í Húna-
vatnssýslu, unz hann fluttist
hingað til bæjarins fyrir aldar-
fjórðungi. Lengstan þess tíma
er hann átti heima hér dvaldi
liann í sjúkrahúsi sökum
astma.
Björn Magnússon var greind-
ur maður og fjölfróður,
skemmtilegur og hugarhlýr og
því vinmargur.
Píslarganga séra DeLaine var
rakin fyrir rétti í New York í
fyrri viku. Árið 1949 var hann
búsettur í Clarendon sýslu. Það-
an fór hann eftir að honum
hafði verið tilkynnt að hann yrði
„borinn burt í furukistu“ ef
hann hefði sig ekki á brott.
Presturinn settist þá að í bæn-
um Summerton. Þar var húsið
brennt ofan af honum og fjöl-
skyldu hans, vegna þess að hann
hélt því fram opinberlega að
binda ætti enda á aðskilnað
kynþáttanna í skólum.
ÁRÁSARMENN í
BÍLALEST
Eftir brunann flýði prestur-
inn til Lake City. Þar var hann
þegar hæstaréttardómurinn um
kynþáttaaðskilnað í skólum var
kveðinn upp. í september í haust
kom bílalest að prestsetrinu. Úr
bílunum var grjóti og flöskum
kastað í húsið svo hver einasta
rúða brotnaði. Séra DeLaine sá
númerið á einum af bílum á-
rásarmannanna og skýrði sýslu-
manni frá því. Hann neitaði að
gera nokkuð í málinu, en réði
presti til að skjóta á bílana ef þeir
kæmu aftur „og ef við finnum
kúlugat fer ekkert milli mála“.
Enginn af heimilisfólkinu gat
sýnt sig óhultur á götunum.
i
SÝSLUMAÐUR í HÓPN-
UM
Sjötta október var svo kirkj-
an brennd, og prestur fékk hót-
unarbréf, þar sem honum var
tilkynnt að hann yrði fluttur burt
í líkkistu ef hann hætti ekki
að dreifa sínu „sauruga, skítuga
eitri“, því að hundruð manna
hefðu strengt þess heit að losa
bæinn við hann.
Fjórum dögum síðar kom átta
bíla lest að prestsetrinu. Úr
HANNES PETURSSON
KVÆBA
BÓK
>■■1
Höfundurinn
er rúmlega
tvítugur, og-
þetta er fyrsta
bók hans, en
kvæöi eftir
hann hafa
birzt í tímarit-
um og- í
Ljóöum ungra
skálda 1954.
Hafa menn
sjaldan verið
eins samdóma um afburða hæfileika
ungs skálds — og hið’ óvenjulega
hefur gerzt, aö útgefendur hafa
keppzt um að fá þessa fyrstu bók
hans til útgáfu. Hannes velm* sér
fjölbreytt yrkisefni, m.a. sögu
íslands, viðhorf hans eru frumleg
og málfari'ð á kvæ'ðunum mjúka og
fagurt. Kvæðabók Hannesar Péturs-
sonar er ungu kynslóöinni til
vegsauka og útkoma hennar merkur
viðbur'ður í íslenzkri ljóðagerð.
Er komin i bókaverzlanir!
HEIMSKRINGLA
n