Nýi tíminn


Nýi tíminn - 07.06.1956, Qupperneq 6

Nýi tíminn - 07.06.1956, Qupperneq 6
£$) — NÝT TÍMlNN — Pimmtudágúr 7. juiií 1956 -— NfI TÍMINN Úteeíandi: Sósíalistallokkurinn. Ritstjóri ob ábyreöarmaóur: Ásmundur SigurSsson. — Áskrirtarejald kr. 50 á ári. PrentsmiSJa ÞjóSvlljans h.f. Samseldr um stjórnarskrárbrot miLRAUN hræðslubanda- lagsins að fara í kringum Btjórnarskrá landsins og hrifsa til sín mun fleiri þing- sæti en því ber hefur vakið fordæmingu, Er bröltið með atkvæðaverzlun Eysteins Jóns sonar og Gylfa Þ. Gíslasonar orðið upplýst hneyksli sem lík- legt er til að verða þeim dýrt í kosningunum. Blöð íhaádsins Jialda áfram að skrifa um þetta í hneykslunartón, enda f)ótt það væru fulltrúar þess flokks í landskjörstjórn, sem heyktust á því að dæma svindl- ið ólögiegt, þó enginn hafi enn bent á nokkum lagastaf sem heimili Alþýðuflokknum að fá jöfnunarþingsæti út á atkvæði, sem Framsóknarflokkur „á“ evo tryggilega, að hann getur afhent þau í skiptum við önn- ur. 1>EYNSLAN sannar, að eng- ** um þessara þriggja flokka er treystandi til að hlíta stjórnarskrá íslands né að fara eftir grundvallarreglum lýðræðis og þingræðis. Þignm. íhaldsins, Framsóknar og Al- þýðuflokks gerðu um það sam- særi árið 1941 að víkja stjórn- arskrá íslands til hliðar, láta ekki fara fram þingkosningar enda þótt kjörtímabil þing- manna væri útrunnið, og „framlengdu" í algeru trássi við stjórnarskrá landsins og lög þingmennskuumboð sitt. Það komst upn nokkhu seinna, að samsæri þríflokkanna mið- aði við valdarán þeirra allt til stríðsloka, enda þótt atburða- rásin yrði önnur. Eini þing- flokkurinn sem mótmælti þessu gjörræði var Sósíalista- flokkurinn. Blygðunarlaust at- hæfi þríflokkanna, íhalds, Framsóknar og Alþýðuflokks, sýnir hve langt þessir flokkar geta gengið til þess að hrifsa völdin. Enn er þeim flokkum stjórnað af sömu mönnum sem ábyrgð bera á valdráninu 1941, og enginn sem fylgzt hefur með stjórnmálaþróun- inni nú í hálfan annan ára- tug mun ætla að þeim hafi farið fram í virðingu fyrir stjórnarskrá landsins; lýðræði og þingræði. Tíu árum síðar frömdu þessir sömu flokkar örlagaríkt brot gegn stjórnar- skrá Iandsins, er þeir gerðu herstöðvasamninginn vorið 1951, án þess að samþykki Al- þingis kæmi til. Einn þing- flokkanna mótmælti: Sósíal- istaflokkurinn. Hinir flokkarn- ir þrír, íhaldið, Framsókn og Alþýðuflokkurinn hikuðu ekki við að brjóta jafnfreklega gegn stjórnarskrá landsins. ÞAÐ er lærdómsríkt nú, þeg- ar íhaldið þykist tandur- hreint og stórhneykslað á til- raunum hræðslubandalagsins með kosningafalsanir, að minnast þessara tveggja atriða, sem sýna og sanna ó- véfengjanlega, að leiðtogar í- haldsins hikuðu ekki við að taka á sig algera samsektará- byrgð með Framsókn og Ál- þýðuflokknum á þeim tvenn- um stjórnarskrárbrotum, sem nefnd voru. Ný afturhaldsstjórn ætlunin ■j'LÍÝJASTA áróðurslína Tím- ans í kosningabaráttunni er sú kenning, að Alþýðu- bandalagið muni flýta sér í stjórn með íhaldinu, þegar að hosningum loknum. IISLEGT hefur mönnum þótt ógáfulegt í Tímanum undanfarið, en þó mun þessi éróðurslína einna lengst sótt. Munu þeir kjósendur vand- fundnir sem trúa staðhæfing- mm um væntanlega stjórnar- samvinnu Alþýðubandalags- tns og íhaldsins. - ■fflNSVEGAR er auðskilið Mi hvers vegna Framsókn er að reyna þetta. Framsóknar- flokkurinn hefur fengið á sig svo magnað óorð allra frjáls- lyhdra og róttækra mbnna í landinu fyrir íhaldsþjónustu, að liann óttast nú fylgishrun í kosningunum. Þeir sem í Tím- ann skrifa vita hve langt E.y- steinn Jónsson hefur gengið í samstarfinu við Bjarna Bene- diktsson og Ólaf Thors, að Jieir hafa gengið svo langt í samsekt og helmingaskiptum ósómans, að engum kemur framar í hug að telja Eystein vinstri mann. Á flokksþingi Fralhsóknar í vetur fengu for- ingjarnir nokkra vitneskju um hug flokksmanna til íhalds- þjónustunnar, og var afráðið að leika enn gömlu kosning;a- brelluna: Segjast fara úr sam- vinnunni við íhaldið og leggja til kosninga sem íhaldsand- stæðingur — í orði. Samt heldur samvinnan áfram, þeir sitja hlið við hlið í ráð- herrastólunum Eysteinn og Ólafur, Steingrímur Steinþórs- son og Bjarni Benediktsson, Ingólfur Jónsson og Kristinn Guðmundsson. Og allir lands- menn vita að það er heitasta ósk þeirra að framlengja setu sína þar með myndun nýrrar afturhaldsstjórnar þegar að loknum kosningum. Og fjöldi kjósenda veit einnig að til þess að aftra myndun nýrnr afturhaldsstjórnar í sumar þurfa bæði íhaldið og hræðslu- bandalagið að fá skell í kosn- ingunum. rt „I skáldskap verður jafnan bert, hvem rnann skáldið hefur að geyma“ Eins og lesendum Þ.jóð- viljans er kunnugt sat Halldór Kiljan Laxness þing tékkneskra rithiif- unda er haldið var i Prag fyrir nokkrum vik- urn. Undir þinglok flutti Laxness ávarp það sem hér fer á eftir: Kæru tékknesku starfsbræður og vinir: Eg vil tjá yður þakkir mín- ar fyrir að sýna mér þá vin- semd að bjóða mér að sitja þetta þing rithöfunda í Tékkó- slóvakíu. Það er mér mikið ánægjuefni að hafa fengið þetta tækifæri til að gista enn að nýju kæra tékkneska vini mína, rifja upp forn kynni og bindast nýjum vináttubönd- um. Eg vildi einnig héðan af þinginu mega flytja kveðju mína tékkneskum almenningi, sem um langt árabil hefur tekið bókum mínum af skiln- ingi og hlýhug. Hér á þinginu hefur farið fram fróðleg umræða um grundvallaratriði; en þar sem ég er heldur ófróður í bók- menntakenningum og veitist lítill tími til að íhuga þær, enda sjálfur aðeins skáld og ekkert þar framyfir, bið ég yður afsökunar að hafa ekki reynzt þess umkominn að leggja neinn skerf til um- ræðunnar. Það er enda full- vissa min, byggð á nokkurri reynslu, að ef maður ann ekki því fólki sem maður stílar verk sín til, ef manni geðjast ekki það yrkisefni sem maður hefur kosið sér, eða sá mál- staður sem maður telur sér skylt að styðja — þá bjargi hvorki bókmenntakenning né heimspekikerfi, stofnun elleg- ar flokkur. I skáldskap verð- ur jafnan bert, hvern mann skáldið hefur að geyma; að yrkja er að halda dómsdag yfir sjálfum sér, eins og Ib- sen gamli komst að orðij í verkum manns stendur það allt saman svart á hvítu: hver maður er, hverju maður ját- ast, hvað hann trúir á, á hverju hann hefur þóknun og vanþóknun, hverju hann er unnandi. Látum sérhvern höf- und halda þennan dómsdag yfir sjálfum sér. Eg hefði sem skáld kosið að kynnast nánar tékknesk- um bókmenntum, fá af því gleggri mynd hvernig þér rit- höfundar tjáið í verkum yðar hina hámenntuðu þjóð yðar sem býr liér í hjarta Evrópu. En fákunnátta min í tékk- neskri tungu er mér þrándur í götu. Leyfið mér þó að sæta hér færi að votta minningu hins mikla tékkneska höfund- ar Jaroslavs Haseks þökk mína og virðingu, meistarans sem skapað hefur eina af fá- um persónum er yfir ber í skáldskap samtímans. Eg vil ljúka þessum fáu ávarpsorðum með ósk um að þessi samkoma tékkneskra rit- höfunda megi verða til efling- ar fagurri ljóðagerð, máttug- um og litríkum sagnskáld- skap, fjölvísri aðferð í leik- ritagerð, nútímanum sam- boðna. Eg vil ekki heldur láta hjá líða að biðja yður — sem öðrum — þeirrar blessunar sem fólgin er í kímni og háði, og óska þess að höfundur Sveiks megi eignast verðugan eftirmann í Tékkóslóvakíu. Um leið og ég ítreka þakkir mínar fyrir þann heiður að hafa verið boðinn til Prag, bið ég öllum tékkneskum og slóvöskum starfsbræðrum mín- um árnaðar í verki sínu. Leyf- ið mér loks að flytja úr ræðu- stóli þessa þings kveðju til gjörvallrar tékknesku þjóðar- innar, og hamingjuóskir mín- ar henni til handa við fram- kvæmd þess ætlunarverks sem hún hefur sett sér: að grund- valla sósíalisma í landi sínu. Gunnar Valdimarsson í Teigi: Gaddarnir í tunmmni íslenzkar landbúnaðarafurð- ir hafa löngum þótt dýrar og lítt samkeppnisfærar á heimsmarkaði. Er það í sjólfu sér lítið undrunarefni, þegar borinn er saman fóður- kostnaður á fénaði, sem geng- ur sjálfala 8-12 mánuði árs- ins og okkar búsmali, sem stendur við jötu 5-9 mánuði á ári. — Öruggt mál er þó, að þennan mun má gera miklu minni og jafnvel að engu ef ræktun og heyöflun kemst í sæmilegt nútímahorf, en um það er ekki ætlunin að ræða í þessu greinarkorni, heldur var aðeins ætlunin að spyrja og ef til vill svara að ofur- litlu leyti: Ilversvegna eru hinar dýru landbúnaðarvörur orðnar rándýrar, þegar þær koma til neytenda? í kjötleysinu undanfarin sumur hefur mörg húsmóðir- in eflaust tautað okkur bænd- um, þegar hún tæmdi budduna til þess að greiða bita af ali- kálfakjöti, sem svo reyndist kýrkjöt, þegar átti að fara að tyggja. Hver á sökina á því að hús- mæður urðu að greiða 30-60 kr. fyrir'kg. af nautakjöti und- anfarin kjötleysissumur? Því er bezt að svara með raun- hæfu dæmi. Sumarið 1952 slátraði ég 2ja vetra uxa í sláturhúsi kaupfé- lags míns, og fékk ég fyrir hann 1600 kr. eða 12 kr. fyrir kg. Þá vissi ég fyrir víst að nautakjöt var selt í Reykjavík á a.m.k. 30 og 36 kr. kg., gat þó verið meira. Fyrir húðina fékk ég um 80 kr., og var það rétt mátulegt til að borga slátur- launin. Skósmiðir hafa sagt mér að hálf húð af þykku leðri kosti um 400 kr. eða 800 kr. húðin, en þegar við bænd- ur sendum húðir í sútun er vinnslukostnaður um 200 kr. á húðina. Og nú spyr ég aftur: Er það mér að kenna þó að kjöt, sem ég legg inn í þjóðar búið fyrir 1600 kr. sé selt ein- stökum húsmæðrum fyrir um 4000 kr. eða öllu heldur sama magn af lakara kjöti, og er það mér að kenna þó húð sem ég fæ 80 kr. fyrir kosti skó- smiðinn 600-800 kr.? Allt er dýrt úr ull, segir fólk, en hvernig stendur á því? Við bændur fáum 12-14 kr. fyrir kg., og þegar við sendum ull í lopa kostar vinnsla 12-15 kr. á kg., þ.e. ull og vinnslu- kostnaður 24-29 kr., en lopinn sem þú færð í búðinni kostar 60-85 kr. kílóið. Eg kvartaði undan því á fundi kaupfélags míns að það væri lítið að fá 4 kr. fyrir kg. af gærum sem settar eru í annan gæðaflokk, en þangað fara öll skinn af kindum sem eru í tveimur reifum, svo og þeim sem slátrað er í desember og síðar. Það var tekið illa undir mál mitt, og varð það til þess að ég sendi til gamans ull af einu slíku skinni, sem var þó óvenju ullarlítið, og fékk jafn- þyngd ullarinnar í lopa eða 0,9 kg. sem kosta í búð (með- alverð) kr. 62,10. Eg þurfti að borga kr. 12,15 fyrir lopann, og við skulum draga hér frá þær 12 kr. sem ég hefði fengið fyrir gæruna. Þá ganga af kr. 37,95, og segið mér nú hvernig á þeim stendur. Nú sendi ég skinnið í sútun, en veit ekki ennþá hvort það verður full- gild verzlunarvara, en þær upplýsingar hef ég fengið að kostnaður við sútun á 1 skinni sé á milli 20-30 kr. en verð til bókbindara og söðlasmiða sé um og yfir 60 kr. skinnið. Fleiri dæmi hirði ég ekki að telja upp, en þess vil ég geta strax að verð til bænda er nokkuð breytilegt. Þeir bænd- ur sem búa nærri stærri bæj- um og höfuðborginni fá oft betra verð fytir sínar fram- leiðsluvörur heldur en við sem búum á hinum afskekktari landshlutum. Hafa enda verið nokkur brögð að því að yið höfum ekki fengið lögskráð verð fyrir kindakjötsfram- leiðslu okkar, en því hafa sumir sláturleyfishafar svar- Framhald á 9. síðu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.