Nýi tíminn - 07.06.1956, Blaðsíða 10
Á sjómannadaginn 1956
íslands Hrafnistumenn
Á morgun, fyrsta
sunnurlag í júní, er sjó-
mannadagurinn. Hann
hefur verið haldinn há-
tíðlegur í 18 ár. Engin
stétt þjóðfélagsins legg-
ur meira í sölurnar fyi'ir
lífsafkomu sína og jafn-
framt lífsafkomu þjóðar-
innar en sjómennirnir.
Þeirri stétt er ekkert of
gott af því sem þjóðfé-
lagið veitir þegnunum
til hagsbóta og öryggis.
En því er verr, að sjó-
maðurinn ber oft skarð-
an hlut frá borði. Við
vitum, að fjölmargir les-
endur Óskastundarinnar
eiga vini sína og nán-
ustu skyldmenni á sjón-
um. Við vitum, að þeir
hugsa jafnan til vinarins
á hafinu og biðja þess
heitt, að hann komi heill
til hafnar úr baráttunni,
stritinu og lsrekraunun-
um. Við þökkum sjó-
mönnunum hið mikla
starf þeirra fyrir þjóð-
félagið, og ámum þeim
og vandamönnum þeirra
velfarnaðar í hvívetna.
Hér eru tvö erindi úr
ljóði Arnar Arnarsonar:
fslands Hrafnistumenn,
sem er helgað sjómönn-
unum og sungið með lagi
Emils Thoroddsen.
íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn,
þó að töf yrði á fram-
sóíuuii'leið.
Eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knör,
eftir seglskipið vélknúin
skeið.
En þótt tækjum sé breytt,
þá er eðlið samt eitt
eins og ætlunarverkið,
er sjómannsins beið.
Hvort sem fleytan er smá
eða seglprúð að sjá
íþróttafregnir
Oft er beðið um í-
þróttafregnir. Skal nú
um sinn reynt að sinna
þeim beiðnum. Aðalhátíð
íþróttamanna um alla
jörðina eru ÓJympíuleik-
arnir, en þeir verða næst
haldnir i Ástralíu í nóv.
í haust. Þá er sól og
sumar hjá þeim þar suð-
urfrá, þó að hér næði
hann á norðan með
frosti og fjúki. En nú
stendur yfir hávetur hjá
þeim. (íslendingar hafa
hug á að senda einhverja
íþróttagarpa á hátíðina,
þó ekkert sé afráðið um
það enn. Einna fremstur
íþróttamanna, hinna
yngri, er nú Valbjörn
Þorláksson, stangar-
stökkvari. Hann hefur
stokkið hæst 4,25 ’ m,
gerði það í vor. Aðeins
einn íslendingur hefur
stokkið hærra á stöng
Það er methafinn Torfi
Brvngeirsson með 4,35 m.
— En er ekki Valbjörn
liklegur til að jafna met-
ið?
og livort súðin er tré
eða stál,
hvort sem knýr hana ár
eða reiði og rár
eða rammaukin vél yfir
ál —
hvert eitt fljótandi skip
ber þó fannannsins svip.
Ilann er ferjunnar andi
og liafskipsins sál.
Dýragarðurinn
Framhald af 1. síðu.
reyni alltaf að gefa þeim
þær ásamt ýmsu öðru.
En spínat er of seigt fyr-
ir lrtlu mýsnar, sem
borða bara brauð og
kökumola. Einn morgun-
inn gleymdi ég að gefa
þeim. Um hádegið voru
þær næstum dauðar úr
hungri. Og þegar ég
horfði á þessar litlu,
vesalings mýs fann ég
að tárin streymdu niður
vanga rnína. Þegar eldri
skólasystkini mín komu,
hélt ég að þau myndu
ávíta mig, en það gerðu
þau ekki. Þeim tókst að
opna munnana á litlu
músunum og gefa þeim
einni og einni í einu.
Síðan fóru þau að áthuga
hin dýrin og skildu mig
eftir hjá litlu greyjunum.
Eftir dálitla stund lifn-
uðu litlu mýsnar við og
urðu skemmtilegar og
fjörugar eins og áður. En
hvað ég dáðist að eldri
skólasystkinum mínura,
sem eru svo sniðug! Ég
ætla að læra að umgang-
ast dýrin á réttan hátt.
Mér þykir svo vænt
um litla dýragarðinn. Ég
ætla ad læra að verða
góður dýragarðsvörður.
Komdu inn -
eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
Komdu inn í kofann minn,
er kvölda og skyggja fer.
Þig skal aldrei iðra þess
að eyða nótt hjá mér.
Við ævintýraeldana
er ýinislegt að sjá,
og glaður skal ég gefa þér
allt gullið, sem ég á,
tíu dúka tyrkneska
og töfraspegla þrja,
níu skip frá Norvegi
og naut frá Spaníá,
austurlenzkan aldingarð
og íslenzkt höfuðból,
átta gráa gæðinga
og gylitan burðarstól,
fjaðraveifu fannlivíta
og franskan silkikjól,
eyrnahringi, ennisspöng
og alabastursskrín,
hundrað föt úr fílabeini
full með þrúguvín
og lampa þann, sem logaði
og lýsti Aladdín,
kóraninn í hvítu bandi
og kvæðin eftir Poe,
myndastyttu meitlaða
af Michelangelo,
alla fugla fljúgandi
og fiska alla í sjó
rúnakefli, reykelsi
og ríki mitt og lönd,
indversk blóm, egypzk smyrsl,
ítölsk perlubönd
og roðakross úr rauðavið,
sem rak á Gaímarsströnd.
Komdu inn í fcofann minn,
Framhald á 4. síðu
Botnamii ’hans
Halla
Við tökum nú fram
bréf, sem dagsett er í
Reykjavík 10. desember
1955. Undir því stendur:
Latur að lesa. Halli 9
ára. — Þetta bréf hefur
því miður legið óafgreitt
í nálega V2 ár. En segja
má að seint komi sumir,
en komi þó, og svo er
um Halla. Nú leiðum við
snáðann fram í dags-
Ijósið, Hann skrifar bara
ljómandi vel, en hvort
það er satt, að hann sé
latur að lesa, erum við
ekki dómbærir um. En
Framhald á 4. síðu.
Nýtízkudama,. X
I síðasta blaði var
tízkudama úr Reykjavík.
Hér kemur önnur úr höf-
uðstaðnum. Það er ung-
frú Gína Hoppan, sem
við minntumst á hér á
dögunum. Kristín Halla,
12 ára, sendir okkur
þessa teikningu, og einn-
ig aðra til, sem við
geymum. Sú er teiknuð
öll frá hvirfli til ilja.
10) — NÝI TlMINN — Fimmtudagur 7. júní 1956
Níu alda afmæli biskupsdéms á
Islandi minnst í Skálholti 2. júli
Skálholtshátíöin, — sem i
mælishátíö biskupsdæmis á
sunnudaginn 1. júlí n.k., sv
hér í Reykjavík 2. júlí.
Undirbúningsnefnd Skálholts-
hátíðarinnar, en formaður henn-
ar er sr. Sveinn Víkingur, skýrði
blaðamönnum nýlega frá fyrir-
hugaðri hátíð og fyrirkomulagi
hennar.
Kirkjustjórn landsins hefur
boðið til hátiðarinnar allmörg-
um gestum og ber fyrst að nefna
höfuðbiskupa Norðurlandanna
allra og prófast Færeyinga, svo
og kirkjumálaráðherra Norð-
urlanda, fulltrúa frá báðum
íslenzku kirkjufélögunum vest-
anhafs, fulltrúa frá Lútherska
heimssambandinu og fulltrúa frá
Alkirkjuráðinu, en íslenzka
kirkjan er aðili að þessum síð-
astnefndu samtökum báðum.
Auk þessa hefur verið boðið um
360 Islendingum og allmörgum
erlendum mönnum svo alls gætu
boðsgestir orðið um 400 talsins-.
(Gestum verður að sjálfsögðu
séð fyrir ókeypis fari á hátíðina
og dvöl þar). Ekki er enn vitað
hvort allir erlendu gestirnir
geta komið á hátíðina.
340 manna kór
Fjölmargir kirkjukórar hafa
verið æfðir saman t einn kór og
verður hann 340 manns, eða
ú er jafnframt níu alda af-
íslandi — verður í Skálholti
3 og framhald hátíöarinnar
stærsti blandaði kór sem hér
hefur Verið æfður. Dr. Páll ís-
ólfsson stjórnar kórnrm. Þá
verður einnig 30 manna hljóm-
sveit er dr. Páll stjórnar.
Altari úr Brynjólfskirkjunni
Byggingar standa nú yfir
heima á staðnum og var því
horfið að því ráði að hafa há-
tíðina í brekku syðst á Skál-
holtstúninu. Verður þar upp-
hækkaðúr yfirbyggður hátíða-
pallur. Verður prédikað þar úr
stóli Brynjólfskirkjunnar og not-
að altarið úr henni, en þessir
hlutir hafa varðveitzt. Á hátiða-
pallinum er erlendum gestum
ætlaður staður, svo og ísl. prest-
um, er þangað munu fjölmenna
hempuklæddir.
Fjölmennis vænzt
Gert er ráð fyrir að fjölmenni
verði á hátíðinni, þvi þetta er
ekki hátíð Sunnlendinga fyrst og
fremst heldur kirkjuhátíð alls
landsins, þar sem Skálholtsbisk-
up var biskup yfir öllu íslandi
þegar biskupsstóll var stofnaður
1056. Til að forðast umferðar-
öngþveiti mun verða einstefnu-
akstur frá Selfossi til Skálholts
um morguninn og í gagnstæða
átt um kvöldið. Bílastæði verða
fyrir 1300—1400 bila á þrem
stöðum á Skálholtstúni, enn-
fremur hefur verið tryggt bíla-
stæði í Laugarási ef með þarf.
Veitingar verða seldar í Skál-
holti og ennfremur í barnaheim-
ili Rauða krossins og er senni-
legt að bíll verði í förum milli
þessara staða.
Hátíðamerki
Sérstakt hátíðamerki hefur
verið gert. Er það með mynd
af kirkju Brynjólfs biskups.
Verður það selt í bókaverzlun-
um bæjarins og kostar 20 kr.
Gefinn verður út pési með stuttu
yfirliti yfir sögu Skálholtsstóls,
svo og hátíðadagskránni o. fl.
Að hátíðinni lokinni er ætlunin
að gefa út stærra rit þar sem
m. a. verði kantötuljóðið, leik-
þátturinn, myndir frá hátíðinni
o. fl.
Dagskrá hátíðarinnar
Sunnudagur 1. júní. f Skál-
holti: Kl. 11.00: Klukkum hringt.
Prestar ganga í skrúðfylkingu til
hátíðapallsins. Biskupar í farar-
broddi. Kl. 11.05: Hátíðaguðs-
þjónusta. Biskup íslands prédik-
ar. Vígslubiskupar aðstoða við
guðsþjónustuna. Kirkjukórar úr
prófastumdæmum landsins ann-
ast sönginn. Kl. 12.00: Biskup ís-
lands leggur hornstein hinnar
nýju kirkju í Skálholti. Kl. 12.30:
Gestir snæða hádegisverð í
húsakynnum Rauða kross ísl.
Kl. 14.00: Forseti íslands flytur
ávarp og setur hátíðina. Þjóð-
söngurinn leikinn. Kl. 14.20: Há-
tíðakantata flutt. 100 manna kór
undir stjórn Páis ísólfssonar.
Kl. 15.15: Hátíðarræða (dr..
Magnús Jónsson). Kl. 15.45: Er-
lendir fulltrúar flytja ávörp. Kl.
18.00: Leikþáttur, leikstjóri Lár-
us Pálsson. Kl. 18.30: Kirkjukór-
ar syngja. Kl. 19.00: Kirkjumála-
ráðherra flytur lokaávarp.
Mánudagur 2. júlí. í Reykjavík.
Kl. 11.00: Hátiðaguðsþjónusta í
Dómkirkjunni. Dómprófastur Jón
Auðuns prédikai'. Kl. 14.00 Sam-
koma í hátíðasal Háskólans,
Rektor flytur ávarp. Ræða. Söng-
ur. Kl. 16.00: Opnun kirkjusýn-
ingar i Þjóðminjasafninu. Þjóð-
minjavörður flytur ræðu.
Menntamálaráðherra opnar sýn-
inguna. Kl. 19.30: Veizla kirkju-
málaráðherra á Hótel Borg.
Kaupið
Nýja tímann
Fhigfélag Islands flutti um 12 þis.
farþega á fyrstu 4 mánuðum ársins
Flugvélar Flugfélags íslands fluttu 11.811 farþega fjóra
fyrstu mánuöi þessa árs, og er þaö um 46% aukning sé
geröur samanburður á sama tímabili 1954.
Hliðstæðar tölur frá því í
fyrra gefa hins vegar ekki rétta
hugmynd um aukningu sökum
hins langa verkfalls. Á innan-
landsflugleiðum voru fluttir
9.987 farþegar og 1824 milli
landa. Vöruflutningar innan-
lands námu 311.265 kg. (73%
aukning) og póstflutningar
60.384 kg. (15% aukning).
Miklar annir hafa verið hjá
Flugfélagi Islands að undan-
förnu, bæði í innanlands- og
millilandaflugi. Hafa verið
fluttir að jafnaði um 160 far-1
þegar á dag það sem af er
þessum mánuði á innanlands-
flugleiðum, og miliilandaflug-
vélar félagsins eru oftast þétt
skipaðar.
Fyrirsjáanlegt er, að mikið
verði um Grænlandsflutninga
í sumar. Er ráðgert, að farnar
verði um 8 ferðir með danska
verkamenn frá Kaupmannahöfn
til Thule-flugvallarins í Norð-
ur-Grænlandi. Ennfremur eru
fyrirhugaðar leiguferðir til
Meistaravíkur í sambandi við
I blývinnsluna, sem þar er hafin.