Nýi tíminn


Nýi tíminn - 16.01.1958, Blaðsíða 3

Nýi tíminn - 16.01.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 16. janúar 1958 NÝI TÍMINN — (3 Til stöðvunar á kom hverHH aramotin Gre-inargerð sjávarútvegsmálaráðherra nm samkomulag ríkisstjórnarinnar og heildarsamtaka sjómanna og útvegsmanna I fréttaauka ríkis- útvarpsins fyrir skömrnu flutti Lúðvík Jósefsson s já va mt\egsmá la rá ðher ra greiiiargerð ])á um samn- ingana við útvegsmenn og sjómenn, sem liér fer á eftir: Um nokkurra ára skeið hef- ur um hver áramót þótt nauð- synlegt að ríkið tæki upp ^eina samninga við bátaút- vegsmenn um rekstur báta- flotans á komandi ári. Samn- ingar þessir hafa gengið mis- jafnlega. Æði oft hefur svo farið að dráttur hefur orðið á samkomulagi og hefur þá bátaflotinn ekki hafið rekstur á eðlilegum tíma. Þannig lá t- d. allur bátafloinn í rekstr- arstöðvun nær allan janúar- niánuð 1956. Oft hefur farið svo, að eft- ir að samningar tókust milli nkisvaldsins og útvegsmanna, urðu síðan árekstrar milli út- gerðarmanna og sjcmanna 11,11 kjör þeirra, því ríkisvald- ið hafði ekki átt neinn þátt 1 samningum þeirra á milli. í fyrra var hafizt timanlega handa um samninga við út- vegsmenn og þá var tekin UPP sá háttur að hafa full- tvúa sjómanna með í samn- ‘Ugunum og reyna þannig að áoma í veg fyrir deilur milli utgerðarmanna og sjómanna. h*á tókst að koma á fullu samkomulagi við útgerðar- u^enn og sjómenn í tæka tíð °g vertíð gat alls staðar hafizt strax upp úr áramótum. Að þessu sinni var unnið að samningum við útgerðarmenn sjómenn á sama hátt og 1 fyrra. FuIItrúar rikisstjóm- arinnar lcgðu enn megin á- herzlu á að fá öllum samn- ^ngum lokið fyrir áramót og tryggja þannig rekstur út- gerðarinnar strax frá ára- uiótum. Eins og áður, var nú jeitað eftir samkomulagi við heildarsamtök sjómanna og 'úð heildai-samtök útvegs- uianna. Samkomulag náðist við þessa aðila fyrir áramót eins °g áður hefur verið skýrt frá °g kom því hvergi til stöðv- auar á útgerð um áramótin. ®g' vil nú skýra hér nokkru Uanar frá gangi þessara samn- ,nga og frá því, sem sam- homulag varð um. Samningar þessir hafa raun- verulega verið við sex mis- ^uunandi aðila, eða: 1. Við fulltrúa bátasjó- ^jómanna: 2- Við fulltrúa togarasjó- uianna. 3- Við fulltrúa yfirmanna á hátaflotanum. 4. Við fulltrúa LÍO og báta- útvegsmanna. 5. Við fulltrúa fiskkaup- ehda. 6. Við fulltrúa togaraeig- euda. Samningaviðræðurnar stóðu yfir mikinn hluta desember- mánaðar. Fundir með aðilum voru margir og oft nótt efíir nótt. Þann desember kom saman í Reykjavík á vegum Alþýðusambands ísiands sjó- mannaráðstefna. Sú ráðstefna kaus sjö manna nefnd, sem síðan hafði á hendi samning- ana f. h. sjómanna innan AI- þýðusambandsins við fulltrúa ríkisstjómarinnar. Fullt samkomulag varð við þessa fulltrúa sjómanna, eftir Lúðvík Jósefsson að þeir höfðu samræmt sjón- armið sín, en þau voru í upp- hafi mjög mismunandi. Aðalatriði samkomulagsins var þetta: 1. Fiskverð, sem aflahlutur sjómanna á fiskveiðum er mið- aður við, hækkar um 10 aura á kg., eða úr kr. 1.38 í kr. 1.48 miðað við þorsk. Verð á öðrum fisktegundum breytist hlutfallslega. 2. Lágmarkskauptrygging á fiskibátum skal á vetrarver- tíðartímabilinu frá 1. janúar til 15. mai verða kr. 2530 — í grunn á mánuði í stað 2145 — sem víðast hvar var áður. Trygging þessi skal vera al- menn á svæðinu frá og með Breiðafirði suður um land til Djúpavogs, en á svæðinu vest- ur og norður um land sam- kvæmt nánara samkomulagi. 3. Heimilt er sjómannafé- lögum að skipta trvggingar- tímabili þannig að trygging sé sérstaklega gerð upp fyrir línuútgerð og sérstaklega f\m- ir netaútgerð. 4. Skattfriðindi sjómanna skulu hækka úr kr. 1000 á mánuði í kr. 1350.— Samkomulag þetta var sið- an af fulltrúum rikisstjóm- arinnar lagt til grundvallar í samningunum við útvegs- menn og samningarnir við þá gerðir þannig, að skilyrði var sett um það að útvegsmenn trj'ggðu sjómönnum þau at- riði sem hér hafa verið rak- in. Þá áttu fulltrúar ríkis- stjómarinnar samningafundi með fulltrúum Farmanna- og fiskimannasambandi íslands varðandi kjör yfirmanna á fiskibátaflotanum, en félög skipstjóra, stýrimanna og vél- stjóra höfðu einnig sagt upp samningum sínurn við útvegs- menn. Samkomulag varð við full- trúa þessara samtaka um nokkra samræmingu á kjörum þessara félaga og breytingu á lágmarkskauptryggingu stýri- manna og skipstjóra. Fulltrúar útvegsmanna sam- þykktu síðan fyrir sitt leyti samkomulag þetta. Á aðfangadag jóla tókst í meginatriðum samkomulag milli fulltrúa ríkisstjórnarinn- ar og fulltrúa Landssambands ísl. útvegsmanna um reksturs- grundvöll bátaflotans. Endanlega var síðan gengið frá samkomulaginu á gamlárs- dag. Aðalatriði samkomulagsins eru þessi: 1. Fiskverð bátanna hækkar úr kr. 1.15 í kr. 1.21 eða um 6 aura á kg. miðað við þorsk og hlutfallslega á aðrar teg- undir. Hækkun þessi einvörð- ungu til þess að mæta 10 aura skiptaverðshækkuninni til sjómanna. 2. Þá hækka útflutnings- uppbætur bátanna nokkuð og^ er það til þess að mæta hækk-1 un lágmarkskauptryggingar umfram fiskverðshækkun, hækkun sem gerð var á vá- tryggingargreiðslum og svo til þess að mæta að nokkru kröf- um útvegsmanna um bættan rekstursgrundvöll. 3. Ákveðið var að veita út- vegsmönnum áfram ýmis fríð- indi sem þeir hafa notið, en auk þess nokkur ný; mark- verðust eru: a. Eins árs afborgun af stofnlánum fiskiskipa verður frestað. b. Lögunum um hlutatrygg- ingarsjóð verður breytt þann- ig að síldveiði í reknet sé einnig bótaskyld og athugað sé með bætur handa þeim bátum, sem verst hafa farið út úr reknetaveiðum á þessu ári. e. Þá náðist samkomulag við fulltríia fiskkaupenda, (þ. e. hraðfrystihús, skreiðarverk- endur og saltfiskverkendur) um útflutningsupppbætur þeim til handa. í aðalatriðum var samið við fiskkaupendur um sömu kjör og gilt hafa s. 1. ár, þeir fá þó auknar útflutningsuppbæt- ur sem nema þeirri hækkun á fiskverði til báta og togara, sem þeir taka að sér að greiða. Samkomulag hefur tekizt við fulltrúa stærstu sjómanna- félaga togarasjómanna um breytingar á kjörum þeirra. Aðalatriði þeirra samninga er: að verð á karfa og þorski við útreikning á aflahlut hækkar um 7 aura á kg. og um 12 aura á ufsa. Premija á saltfiski hækkar úr kr. 10/— á tonn í kr. 11,50. Þá verða togarasjómenn aðnjót- andi sömu skattfríðinda og bátasjómenn. Samkomulag liefur ekki tek- izt við togaraeigendur um rekstursstuðning við togarana. En ríkisstjórnin hefur til- kynnt togaraeigendum að bæt- ur til togaranna breytist frá áramótum þannig í aðalatrið- um: 1. Dagstyrkur skipanna hækkar á saltfiskveiðum um 700,— kr. 2. Dagstyrkur á ísfiskveið- um fyrrir innanlandsmarkað hækkar um 400.— krónur. 3. Fiskverð hækkar um 3 aura á kg. á þorski og karfa. 4. Verð á brennsluolíu til togara verði eigi hærra en kr. 530.— tonnið. 5. Eins árs afborgun á stofnlánum skipanna verður frestað. Bætur þessar eru'veittar að því tilskyldu að togarasjó- mönnum verði goldið kaup samkvæmt framangreindu samkomulagi við fulltrúa þeirra. Hér hefur þá verið greint frá aðalatriðum þeirra samn- inga sem gerðir hafa verið fyrir milligöngu ríkisstjórnar- innar í þeim tilgangi að tryggja sem bezt rekstur út- gerðarinnar á árinu. Flest félög útgerðarmanna og sjómanna hafa þegar stað- fest samkomulag það sem gert var milli fulltrúa ríkis- stjórnarinnar og samninga- fulltrúa þeirra. Nokkur félög hafa enn ekki tekið afst"ðu og 3 félög eða félagsdeildir sjómamnna hafa ekki getað fallizt að öllu leyti á það samkomulag, sem full- trúar þeirra þó höfðu gert í. félagi við önnur sjómanna- félög. Að sjálfsögðu geta samn- ingar ríkisins aldrei verið við einstök félög, heldur við heildarsamtck félaganna. Slíkt samkomulag var nú gert með fullu samþykki allra aðila. Einstök félög útgerðarmanna og sjómanna liafa auðvitað frjálsar hendur um afstöðu sína og taka því upp samn- inga um sín sérmál við sína samningaaðila eftir því sem henta þykir. Útgerð er nú hafin í flest- um eða öllum verstöðvum. Vonandi heppnast vertíðin vel. Ég vil svo að endingu óska öllum sjómönnum og útvegs- mcnnum heppni og hamingju á komandi vertíð og öllum landsmönnum óska ég góðs gengis á nýja árinu. Tónlistarfélagið hyggst ráð- ast í smíði tónlistarhallar Lóð fengin og œílssmit að hefja fyrsfu fram- kvæmdir í vor — fáist r.auðsynleg leyfi ÞaÖ er ætlunin aö hefja fyrstu framkvæmdir við bygg- ingu tónlistarhallar í Reykjavík á vori komanda, ef nauð- synleg leyfi fást hjá fjárfestingaryfirvöldum. Þannig fórust Ragnari Jóns- \ endur. syni formanni Tónlistarfélags- ins orð á fundi, sem forráða- menn félagsins höfðu með blaðamönnum í fyrradag. TónlLstarfélagið hefur þegar fengið lóð undir hús sitt við Grensásveg. Verður fyrst leitað fjárfestingarleyfis til að reisa kjallarahæð hússins, þar sem húsnæði fengist fyrir Tónlistar- skólann, m.a. æfingasalur skólahljómsveitarinnar o.fl. Of- an á kjallarann yrði síðan byggður fullkominn salur til tónleikahalds með stóru sviði og sætum fyrir um 1000 áheyr- Eldflaug sem lýsir upp stórt svæði á jörðinni í Sovétríkjunum hefur verið smíðuð eldflaug, sem flutt getur allmikið magn af natríum upp 1 100 km hæð. Þegar natríumið blandast ildisfrumeindum í þessari hæð verður það sjálflýsandi og bjarminn verður slíkur að hann getur lýst upp mörg hundruð ferkílómetra svæði á jörðinni. Að sögn Búdapestútvarpsins. sem þessi frétt er höfð eftir, mun eldflauginni verða skotið upp innan skamms. Tónlistarfélagið hefur hand- bært nokkurt fé til fyrstu framkvæmdanna, en fé hefur m.a. verið safnað með heildar- útgáfu á verkum Hallgríms Pétui'ssonar. Tvö bindi í þessu i safni eru þegar komin út, en þriðja bindið og það síðasta, „Sálmar og hugvekjur“, er væntanlegt á bókamarkað um næstu mánaðamót. Lárus H. Blöndal bókavörður hefur séð um útgáfuna, en inngang að þriðja bindi safnsins ritar séra Bjarni Jónsson vigslubiskup. Frá því var skýrt á blaða- i mannafundinum í gær, að starf- í svið nemendahljómsveitar Tón- I listarskólans yrði nú fært út. j Hljómsve;t þessi var stofnuð árið 1943 og var stofnandi liennar Björn Ölafsson, sem jafnan hefur verið leiðbeinandi og stjórnandi hennar. Tilgang- urinn með stofnun hljómsveit- ar innan Tónlistarskólans var í fyrsta lagi sá, sð gefa nemend- um tækifæri til þess að æfast í samsni'i og í öðru lagi að auka gaenkvæm kynni nemenda i milli. Tón'istarskólinn hefur nú ákveðið að brevta nafni hlióm- sveitarinnar í Hljómsveit Tón- listarskólans og gefa þannig eldri nemendum sínum ásamt öðrura áhugamönnum tækifæri til að stilla saman hlióðfæri sín og hefjast handa á nýjan leik.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.