Nýi tíminn


Nýi tíminn - 16.01.1958, Page 4

Nýi tíminn - 16.01.1958, Page 4
4) — NÝI TÍMINN — Fmuntudagur 16. janúar 1958 Olgeir Lúthersson: Glötunarbarmur og hengiflug Eftir margar langar aldir hungurs, myrkurs og kulda er mannlegri örbirgð nær útrýmt á íslandi. Er ekki gleði okkar íslendinga af þessu sönn og skuggalaus? Nei, og hvað ber til? — Það, að hörmulegustu styrjaldará- tök sögunnar leiddu til velmeg- unarinnar og henni var fylg't fram eftir stríðið með banda- rískri ölmusu, afsali landsrétt- inda og erlendri hersetu hér á friðartímum. Jafnframt hefur verið kyrjaður hjáróma söng- ur um það, að frekja alþýð- unnar til lifsgæðanna hafi leitt þjóðina fram á glötunarbarm, og eigi hún aðeins eftir eitt skref út af hengifluginu. í hálfan annan áratug á þjóð- in að hafa tvístigið á glötunar- barminum í þann veginn að stingast út ,af hengíflugi menn- ingarlegs og fjárhagslegs ó- frelsis. Það hefur ekki verið sérlega uppörfandi fyrir alþýðuna að hlusta á þennan falska söng hinnar kapiiölsku auðvalds- spillingar, sem nærist á hinum þjóðfélagslega óskapnaði, en þrátt fyrir al't vill hún þó trúa því að hún sé að efla land sitt og þjóðfélag með fram- kvæmdum sínum og þrotlausu starfi. Sannleikurinn er hinsvegar sá að hið kapitalska hagkerfi er orðið ófær hindrun á fram- farabraut þjóðarinnar. Það el- ur á eigingirni, sérdrægni og spillingu. Sá þegnskapur, sem vinnandi stéttir landsins hafa sýnt núverandi ríkísstjórn, er sýndur í trausti þess að ríkis- stjórnin og meirihlutafylgi hennar á Alþingi noti aðstöðu sína til að afmá spillingu hins kapítalska hagkerfis en koma hagsmunum hins vinnandi ijölda og íslenzkum málstað til öndvegis. Núverandi stjórnarflokkar, sem styðjast við meirihluta þjóðarinnar, hafa allir á sinni stefnuskrá að afnema hið kapí- talska hagkerfi. Á stefnuskrá Framsóknarflokksins er sam- vinnuhagkerfi og á stefnu- skrá Alþýðuflokksins og Sósí- alistaflokksins, sameignarhag- kerfi (sósíalisminn). Hvað er þá í veginum að þessir flokk- ar noti rétt sinn með meiri- hlutaaðstöðu sinni meðal þjóð- arinnar og á Alþingi til að setja lög um heilbrigt hag- kerfi er þjóni eðlilegri þró- un þjóðfélagsins í framtíð- inni? Jú, það er þó nokkuð. Tveir þessara flokka: Framsóknar- flokkurinn og Alþýðuflokkur- inn hafa gengið í bandalag við forusturíki kapítalskrar lífs- hyggju, þ. e. Bandaríkin, svo og önnur kapitölsk ríki, um að verja hið kapitalska þjóðfé- lagskerfi til síðasta manns. For- ustumenn þessara flokka eru nú bandingjar hins vestræna auðvalds og mega hvorki leyfa sér sjálfstæðan vilja né fram- kómu eins og gleggst sést af þeirra ömurlegu afstöðu í her- stöðvamálinu. Það sem nú finnst hellbrigð- ÆSt í íslenzkum stjómmálum, stafar frá hinni sósíölsku lífs- hyggju á vegum Sósíalista- flokksins og Alþýðubandalags- ins, og efling þeirrar lífshyggju mun ráða úrslitum um sigur hins íslenzka málstaðar í fram- tíðinni. Á ómerkilegan hátt hefur verið ráðizt að forustumönn- um sósíalista vegna þess að ráðherrar Alþýðubandalagsins samvinnu við Alþýðubandalags- menn vaknaði von margra um að þeir myndu aftur finna sjálfa sig, og það er hlutverk Alþýðubandalagsmanna nú, að veita þeim þannig pólitískan siðferðjsstuðning sem þeir eru svo þurfand fyrir. ísland er harðbýlt, land, sem krefst manndóms. þegnskapar og félagshyggju af hverjum einstaklingi. í þjóðfélagi slíkra einstaklinga getur ekki verð um neinn glötunarbarm að ræða. Olgeir Lúthersson gengu ekki úr rikisstjórninni eftir að ráðherrar Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins sviku stjórnarsáttmálann varð- andi brottför hersins. Hér er þó á það að líta hvort meiri líkur féu til að sósíalistar komi vilja sínum fram í þessu máli með setu í ríkisstjórninni áfram eða utan hennai. Sósíalistar .telja það lífs- nauðsynlegasta mál íslendinga nú að hinn erlendi her hverfi af landinu, en ekki hefur ver- ið sýnt fram á með rökum á hverþ hátt ftað ílýti fyrir ; brottför hersins að ráðherrar Alþýðubándalagsins gangi úr ríkisstjórninni. Hinsvegar er sú hætta fyrir hendi að með því köstuðu sósíalistar frá sér tæki- færi í þessu máli, ef skyndi- lega skapaðist friðsamlegri ,sambúð austurs og vesturs og hernaðarsinnunum hér ekki gefið tækifæri til að festa her- inn hér varanlega áður. Það þarf jafnframt á fleira að líta en það að herinn fari af landinu. Allar vinnustéttir landsins ganga nú undir æ þyngri skuldabyrðum vegna mikiFa framkvæmda, og skuldavafstrið er flestum leiði- gjarnt. Þegar svo við bætast ópin um glötunarbarminn og hengiflugið er engin furða þó myrkva bregði yfir fólkið. Svo er sigri Alþýðubanda- lagsins við síðustu kosningar fyrir að þakka að þrátt fyrir allt, sem miður hefur farið i þjóðmálunum á síðari árum lítur alþýðan nú bjartari aug- um til framtíðarinnar með vax- andi trú á land sitt. Það mundi hafa alvarlegar aíleiðingar fyr- ir málstað alþýðunnar ef stjórnarsamstarfið rofnaði á þessu kjörtímabili. Það er þó síður en svo æskileg aðstaða fyrir sósíalista, stjórnarsam- starf við svo ófrjálsa menn sem foringjar Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins eru vegna tengsla við Atlanzhafsbandalag- ið. En eftir að þeir fengust til Grasmaðkapíága herjar nú f.ylkið Viktoría í Ástralíu. Maðkarnir sópa livert grænt strá af ökrum, úr görðum og högum, svo að búpeningur hef- ur enga. beit. Tuttugu flugvél- ar hafa verið teknar til að úða maðkasvæðið en ekki sér högg á vatni. í gær komst járnbraut- arlest ekki leiðar sinuar upp brelcku 80 km frn Melbourne, vegna þess að maðkahrú.gnrnar á brautinni voru svo miklar að cll hjól spéluðu á teinunum. Áramót Hverf þú nú ár í djúpið allra aldá, eilífðarhafið vaggar þér á þárum; stíg þú upp nýtt til heilla, vegs og valda, vaxtar og brauðs með gróanda í sárum, bein vorri þjóð til ljóss, á þroskaleiðum ljómar þín sól tii vor á morgni heiðum. Þíddu allt kallt og þerra tár af hvörmum þúsunda, sem að búa í lífsins skugga; klæddu vort land í gróðri — ástarörmum umvefðu hvem sem þörf er á að hugga; talaðu kjark í sérhvern veikan vilja, vitkaður þá sem lífið illa skilja. Kenn vorri þjóð að þekkja línu og liti, loftvog og skýjafar, en hófsins gæta, beita í hverju máli varúð, viti, varðgæzlu strangri, tilbúin að mæta öflum sem vilja undan slá, til baka; árdagamenn, nú þurfið þið að vaka Bræður vér erum eina Og kæra móóður eigum vér saman, það er bróðurmerkið. Hví skyldi ei saman hljóma iifsins óður, hendurnar tengjast um hið góða verkið. Alþýða lands vors öll, í herráns riafiii, áfram til sigurs, bjart er fyrir stafni. Þið sem að eruð enn í dimmum skugga árblikið sjáið ljóma á vonar tindum, þið skuluð reyna að opna andans glugga, útsýnið fáið þá í björtum myndum. Leiðtogar villtir lýðsins hylli tapa; leiðin er ein, að sameina og skapa. Frímann Einarsson, Selíossi. Bidstmp teiknaði Bakettan

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.