Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 12. marz 1959 Þorsteinn Erlingsson Bjarni Benediktsson frá Hofteigi: I’orstetnn Ertingsson. — Reykjavík. — Mál og menning- MCMLVin Það tók mig nokkra stund að átta mig á því, að eitt hundrað ára væri liðið síðan Þorsteinn Eriingsson var bor- inn í þennan heim. í huga okk- ar allra, sem ólumst upp við ljóð hans og lærðum þau af vörurn mæðra okkar, verður hann jafnan fjarri hárri öld. Hann er ekki aðeins bundinn æsku okkar. Hann er sjálfur eitt fyrsta skáld æskunn'ar í íslenzkum bókmenntum: en þó flaug enginn glaðar sinn veg, og um heiðloftin blá vatt rér væng þínum á og sér vaggaði glaðar en eg. Svo kvað Þorsteinn í eftir- mælum um sína eigin æsku. En það stoðar ekki að deila við tímatal sögunnar. Aldargamall er hann orðinn, kominn á hin klassísku ár, er menn verða viðfangsefni sagn- fræðinga og bókmenntagagn- rýnenda. Bók sína kallar Bjarni Bene- diktsson frá Hofteigi: Þorstein Erlingsson, og er nafnið valið af ráðnum hug. Hann getur þess í formála, að bókin sé „ekki ævisaga Þorsteins Er- lingssonar né heldur fullnægj- andi greinargerð um skoðanir hans tða skáldskap og ritstörf. Hún er aðeins þættir um þessi efni . . . .“ Og er þá raunar þegar komið að helztu ann- mörkum bókarinnar: hún ger- ir Þoisteini Erlingssyni ekki full skil, er ekki nærri nógu ýtarleg, þættir ævi hans ekki raktir nógu langt, víða aðeins tæpt á efnum, sem menn vildu vita gerr, skáldskaparlist hans og stöðu í sögu ísíenzkrar ljóða- gerðar er skammtað allt of lítið mál í bókinni. En í ann- an stað hefur Bjarni Bene- diktsson óvenjulegt lag á að ■ vekja sultinn í lesandanum og löngun til að fá meira að heyra. Hann býr sýniiega yfir miklu meira efni um Þorstein en hann hefur látið fara frá sér á blöð þessarar bókar, og á ég þar ekki sízt við nánari könnun og rannsókn á skáld- skap Þorsteins og bókmennta- sögulegri stöðu. Bjarni Bene- diktsson hefui sýnt það greini- lega í öðrum hluta bókar sinn- ar, sem fjallar um Þyrna Þor- steins, að hann kann öll tök- in á ilikri rannsókn, sbr. at- huganir hans á kvæðinu í landsýn. Og þá fatast lionum ekki þar sem hann ræðir al- menna lífsskoðun Þorsteins Er- lingssonar: eg hef ekki lengi lesið betri prósa íslenzkan en kaflann: Guð verður að fara. Neðanmálsgrein í lok þess kafla, útskýringin á .Bíðustu Bjami Benediktsson vísum“ Þorsteins Erlingssonar, mun verða fagnaðarefni öllum þeim, sem unna Ijóðum þessa heilsteypta heiðingja og mann- vinar. En þótt finna megi með réttu að því að ýmsir kaflar bókarinnar séu helztj snubb- óttir, þá befur Bjama Bene- diktssyni tekizt að draga sam-' an furðumíkihn fröðleik um ævistarf Þorgteins Erlingsson- ar og leiðrétta sum atriði á æviferli hans, er menn höfðu ýrnist gert sér rangar eða ó- ljósar hugmyndir um. Hann rekur skáldalaunamál Þor- steins á alþingieftirfrumheim- ildurn og hann skipar hinu svonefnda Raskmáli þann sess í ævi Lans, er Því ber, og naut þar óprentaðra bréfa frá Þor- steini sjálfum. Bæði þessi mál höfðu djúpstæð og varanleg áhrif á Þorstejn og Bjami Benediktsson gerir með mestu ágætum grein fyrir því, hvern- ig þau orkuðu á skáldskap Þorsteins og mat hans á þeirri kynslóð, er varð honum sam- férða á lífsleiðinni. Sú saga er Bjarni Benediktsson rekur hér er næsta ófögur, og tekur þó Raskhneykslið út yfir all- an þjófabálk, en söguna varð að segja, þótt manni verði flökurl að liorf a þar á svo hundflatan skrælingjalýð, svo sem Þorsteinn komst að orði r lokastefi Jörundar-kvæðisins, og hafði þá í huga landa sína í Kaupmannahöfn anno 1887. Bjarni Benediktsson mun ekki hafa haft nema eitt ár til að semja þessa bók, og mun | það valda nokkru um það form, er hann hefur valið henni, að hún hefur orðið þættir eða ritgerðir um Þorstein Erlings-j son. Þrátt fyrir þetta slitn- ar ekki samhengi bókarinnar,' svo sem hver athugull les- andi Eetur sannfært sig um. En höfundurinn hefði gjaman mátt bæta vjð bókjna einum kafla að minnsta kosti með samfelldri heildartúlkun á manninum og skáldinu Þor- steint Erlingssyni. Hins vegar er það bert að Bjarni Benediktsson hefur ekki aðeins haft nauman tíma til að gera viðfangsefni sínu fyllri skil, heldur hefur hann einnig skort heimildir. Hann hefur t.d. ekki átt kost á að kynna sér bréfasafn Þorsteins Erlingssonar, bréfin tii hans, og er það illa farið. því að hon- um hefur orðið mikið úr þeim bréfum Þorsteins, sem hann hefur fengið að kanna í ann- an stað hefur hann eingöngu orðið að styðjast við hinar prentuðu útgáfur á kvæðum hans, en ekki getað kannað kvæði hans í frumriti, breyt- ingar, sem Þorsteinn gerði á kvæðum sínum, en þær virðist hann i afa gert margar. Hann hefur því ekki getað forvitn- azt um vinnubrögð skáldsins. En Bjarni Benediktsson hef- ur glöggt auga á slíkum hlut- um og skilur mikþvægi þeirra, svo sem sýna athuganir hans við kvæðið í landsýn, er fyrr var getið, og túlkun hans á kvæðinu Ljónjð gamla. Þyrnar Þorsteins Erlingsson- ar hafa nú verið gefnir út 5 sinnum, en enn er ekki til krítisk, fræðileg útgáfa á ljóð- um hans, og er það í rauninni í samræmi við þau vinnubrögð sem liðkast hér á landi um útgáfur á flestum ljóðskáldum okkar. Þegar alls þessa er gætt, þá er enn meiri ástæða til að þakka Bjarna Benediktssymi fyrir að hafa gert bókina um Þorstein Erlingsson svo vel úr garði sem raun er á. Bjarni Benediktsson hefur gert hér merkilega frumsmíð, beitt plógi í akur, sem lítt hefur verið unninn með okkur íslending- um, að tengja lífssögu, bók- menntir og aimenna þjóðar- sögu í samfellda heild. Þor- steinn Erlingsson var ekki að- eins eitt Ijúfasta skáld okkar. Hann lifði og barðist með þjóð sinni fyrir pólitísku sjálfstæði og hann gengur fyrstur ís- lenzkra menntamanna til fylg- is við liðfá verkamannasamtök á íslaiidi og boðar bæði í Ijóðum og lausu máli fagnað- arerindi sósíalismans. Báðum þessum þáttum í ævi Þorsteins hefur Bjarni Benediktsson lýst rækilega og af dýpri skþn- ingi en aðrir hafa áður gert. Svo sem vænta mátti er bók Bjarna Benediktssonar skrif- uð á fögru máli, stíllinn tígu- legur og svipmikili, aldrei kastað hendi til nokkurrar setningar Það er von mín, að draumur Bjarna Benediktsson- ar muni rætast: að hann megi skrifa síðar ýtarlegri og heim- ildaríkari ævisögu þessa dáð- ríka aldamótamanns okkar. Til þess hefur hann bæði allan róminn og kostina. Sverrjr Krjstjánsson. Fáft brezkra togara á nýju veiðiránssYæðunum Þrjú brezk herskip og birgðaskip haía gætt íaeinna veiðiþjóía við Snæíellsnes og á Selvogsgrunni Fisklej'si og óhagstæð veðrátta að undanförnu hefur valdið því, að lítið hefur enn sem komið er borið á brezk- um togurum á hinum nýju veiðiránssvæðum þeirra við Snæfellsnes og á Selvogsgrunni. Frá þessu segir í fréttatil- kynningu Landhelgisgæzlunnar: Eins og kunnugt er til- kynntu Bretar hin ólöglegu veiðisvæði sín fyrir brezka tog- ara við Snæfellsnes og á Sel- vogsgrunni fyrir viku síðan, en hingað til hefur frekar lítið borið á veiðum brezku togar- anna. Ber þar m.a. tvennt til, nefnilega fiskileysi og óhagstæð veðrátta. Fátt togara. . . alls um 25 skip, flest brezk og þýzk og svo íslenzkir og belg- ískir togarar, allt stór skip. Auk þess voru þá fimm ur af Geirfuglaskeri og aðrir brezkir togarar að veiðum eða á ferð utan takmarkanna vest- fimm um og innan við þau vest- ur af Einidrang. Voru því í gær um 35 togarar samtals að veið- um djúpt og grunnt þama. Við Snæfellsnes hafa undan- farið sjaldan fleiri en 1—2 tog- arar stundað þessar ólöglegu veiðar í einu, og mest 4—5 á Selvogsgrunni, enn sem komið er. Allt eru þetta gömul skip og gæta þeirra alls þrjú brezk herskip ásamt birgðasldpi. Hinsvegar er togurum nú sem óðast að fjölga djúpt á Sel- vogsgrunni, og voru þar í dag Framhald á 5. síðu. Frönsk blöð mega ekki lengur segja frá glæpum og afbrotum í síðustu viku gengu í gildi í Frakklandi ný lög sem sett hafa verið í því skyni að torvelda blöðum skrif um af- brot og réttarhöld yfir afbrotamönnum. Lögin banna lögmönnum, lög- reglumönnum, dómurum og öðr- um þjónum réttvísinnar að veita blöðum upplýsingar eða á annan hátt gefa almenningi kost á að fylgjast með því sem gerist í starfi þeirra og að- gerðum lögreglunnar meðan á rannsókn mála stendur. Einu aðilarnir í sakamálum sem samkvæmt lögunum mega skýra frá málavöxtum eru sak- borningurinn, þó aðeins áður en hann er hnepptur í varð- hald, og vitnin í málinu. Daginii sem lögin gengu í gilldi birtu öll Parísarblöðin mótmæli gegn þeim og eitt stóru blaðanna, sem byggt hafa útbreiðslu sína fyrst og fremst á frásögnum af alls konar glæpamálum, Parísar- blaðið I’Aurore greip til þess bragðs að snúa sér beint til lesenda sinna og biðja þá um aðstoð svo að það gæti haldið áfram að skemmta þeim með frásögnum af morðum og öðr- um glæpum. Blaðið hét verð- launum hverjum lesanda sem tilkynnti því að afbrot hefði verið framið. Mörg hneykslismál á döfinni Á það er bent að nú stend- Óhagstæðurverzl- unarjöfnuður um 21,6 millj. krónnr Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni var útflutningur- inn í janúar fyrir 63 millj. 408 þús. kr. en innflutt fyrir 85 millj. 31 þús. kr. og verzlunar- jöfnuðurinn í mánuðinum óhag- stæður um 21 millj. 623 þús. kr. í janúar í fyrra var verzlunar- ur yfir réttarrannsókn í fjöl- mörgum miklum hneykslis- málum í Frakklandi. Þar ber enn hæst hið svonefnda Lacaze- mál sem við er riðinn sundur- leitur hópur: vændiskona, leigumorðingjar, þekktir lög- menn og stjórnmálamenn og milljónarar. Annað hneyklis- mál er það sem kahað hefur verið „rósrauði ballettinn“, en í því máli eru ýmsir háttsett- ir menn, m.a. fyrrveramdi for- seti franska þingsins, sósíal- demókratinn Le Trocouer, sak- aðir um að hafa greitt stúlku- börnum fé fyrir að tína af sér spjarimar og dansa fyrir þá nektardansa í sjálfri þing- forsetahöllinni. Ákvæði hinna nýju laga munu nú gera blöðunum óhægt um vik að skýra frá gangi þessara og annarra hneykslismála, enda mun það hafa verið tilgangur- inn. Bolshojballsttinn til Bandaríkjanna Ballett Bolshoj-leikhússins i Moskva, frægastí ballettflokkur Sovétríkjanna, fer I sex vikna sýningarferð til Bandaríkjanna jöfnuðurinn óhagstæður um 29,5 í næsta mánuði. Imillj. kr. — Ég var búinn að segja þér að þettai gæiti orðið hættulegt. — Já, en ég héit að þú ættir ekki við veðrið!

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.