Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 10

Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 10
2) — ÓSKASTUNDIN ★ --------★--------- ★ Skrítlur ★ -------★---------★ Siggi: Mig langar ósköp mikið til að spyrja þig að <?inu, amma mín. Amma: Jæja, gerðu það þá. drengur minn. Siggi: Þú mátt ekki verða vond við mig. Amma: Nei, nei. Siggi: Tilheyrir þú fríða kyninu. amma? ★------- Kalli: Ósköp eru áð sjá þig, drengur! Hefurðu meitt þig svona voðalega í hendinnj? Palli: Ójá, ég marði mig á milli jóla og nýárs. Kalli: Já, einmitt það. Eg get vel trúað, að það sé ekki gott að verða miili þeirra. Kennarinn: Hvernig líð- ur honum ljtla bróður þínum, sem fæddist um daginn? Halli: Hann -er nú bú- inn að fá fætur, en hann kann ekki ennþá að ganga á þeim. ★------ Mamma: Hvers vegna yarstu, Gunna min, að reka út úr þér tunguna og gefa litla drengnum langt nef? Gunna; Hann steig of- an á tærnar á mér án þess að biðja fyrirgefn- ingar, svo ég var að kenna honum kurteisi. Jónsi: Eg fór á fætur eldsnemma í morgun til þess að sjá sólina koma upp. Pési: Gaztu ekki valið annan tíma til þess. Mamma: Hvaða brot- hljóð er þetta? ★------ Konni: Mamma, manstu ekki eftir því hvað þú varst alltaf hrædd um að ég bryti vasann á stofuborðinu? Mamma: Jú drengur minn. Konni: Jæja mamma, nú þarftu ekki len^úr að vera hrædd um það. LITLA Aðalsmaður nokkur byggði sér bænahús. Þeg- ar því var lokið, fékk hann mann til þess að mála biblíumynd á einn vegginn. Kom þeim sam- an um að hafa það „För Israelsmanna yfir Rauða- hafið“. En af því að mál- arinn var fremur illa að sér í iðn sinni, tók hann það ráð að hafa myndina sem allra einfaldasta og málaði því allan vegginn rauðan frá lofti til gólfs. Þegar húsráðandi kom til þess að líta á myndina, sagði hann: SAGAN „Já, skárra er það nú hafið. En hvar eru ísra- elsmenn? Eg sé þá hvergi.“ „Þeir eru komnir yfir um hafið", svaraði mál- arinn. „En hvar eru þá Egypt- ar? Hvað hafið þér gert af Faraó og mönnum hans?“ spurði húsráðandi. „Þeir eru allir drukkn- aðir og komnir í kaf“, sagði málarinn og þóttist vel hafa varið verk sitt og gefið fullnægjandi skýringar. 2) — ÓSKASTUNDIN „Inni á firðinum, þar sem þú fæddist sjálf sagði sú gamla. „Eg ætti að vita þetta, sem hef farið þangað fimm sinn- um.. En við förum ekki fyrr en við megum til. ÍÞað, er hættulegt og ekki að gamni sínu gert.“ Þær syntu og syntu. Svo kom ofsastormur. „Til botns! Tþ botns með ykkur!“ hrópaði gamla síldin. Fylgið þið mér nú eftir. Eg er elzt og stærst. Komið þið nú fast á eftir mér, í þéttri torfu — haus við haus og sporð við sporð — Síldartorfan stakk sér til botns og hélt þar kyrru fyrir þar til storm- inum létti. Þá færði hún sig aftur upp að yfirborð- inu. En þar uppi varð fyrir henni ægilega stór skíðishvalur. Litla síldin lenti rétt framan við kjaft hvalsins og~->: varð . máttlaus af hræðslu. „Hvað hræðist þú, vesl- ingur?“ spurði skíðis- hvalurinn. „Eg ætla mér ckki að éta þig. Eg er tannlaus. Og þó ég sé stærsta skepna veraldar- innar, verð ég að gera mér að góðu að lifa á smádýrum." „Eins og ,ég,“ sagði litla síidin. . „Ff þú ætlar að rifa rfiktinn af mér, skaltu fá fyrir ferðina“, sagði steypireyðurin og sletti sporðinum sv.o, að síldar- torfari þyrlaðist í allar áttir. & torfan þjappaði sér eaman aftur. Litla síldin skjldi ekkert í því, að steypireyðurin skyldj verða svona vond. „Við erum allar hættar að borða“, sagði hún. „Eg veit ekki hvemig stend- ur á því, en ég hef enga matarlyst. Mig langar til að fara eitthvað langt og ég finn það á mér, að eitthvað muni koma fyrir mig.“ „Þú ferð að hrygna“, „Eg veit það ekki“, svaraði hin. „Eg fylgi þessu skýi, sem er á und- an okkur. Það er æti og ég hugsa ekki um annað en éta og fitna“. Sýið sveif á undan þeim í sjónum. Það voru örsmá dýr, sem bárust fyrir straumi og vindi. „Varaðu þið á þessum þorski þarna", sagði önn- ÆVINTÝRI SÍLÐARINNAR O. J. þýddi sagði gamla síldin. „Flýt- ið þið ykkur nú börnin góð — inn fjörðinn — allar í þéttri torfu.“. Alltaf bættust við fleiri og fleiri í hópinn. Sej.n- ast var ‘torfan orðin tveggja mílna löng og tveggja mílna breið. Sjór- inn þyrlaðist í kringum hana. Máfarnir komu sk'rækj- andi úr öllum áttum og liti einhver síldin sem snöggvast upp úr vatn- inu, hremmdu þeir hana óðar og átu. Þau syntu upp að yfir- borðinu en þá fengu þau ofbirtu í augun og flýttu sér niður 'aftur. Eftir það syntu þau ekki upp að yfirborðinu, nema á nóttunni. „Hvert erurp við eig- inlega að fará?“ spörði önnur litla síldin. ur systirin og stakk sér. „Hvar þá?“ spurði hin systirin um leið og þorskurinn gleypti hana. Nú var unga síldin ein- mana. Auðvitað var krökt af síld í kringum hana, en hún saknaði systur sinnar, sem hafði verið með henni frá því fyrsta. Gömul síld, stór o<? feit, fylgdi ungu síldunum af einhverri vangá. „Síld, sem er ein síns liðs, er engin síld,“ sagði sú gamla. „Síldin er auð- virðileg skepna ef hún er ekki í torfu. En þá elta hana hvalir, mávar og þorskar. Og meinnirtnir veiða hana í net. En bezt er.þó að láta ekki éta sig, heldur komast lífs af úr torfUnni, hrygna og kom- ast í aðra torfu". ÓSKASTUNDIN — (S ÆVINTÝRI SlLDARINNAR „Já, hvað eigum við að gera?“ spurði hitt. Þau störðu út í hafið með stóru augunum sín- um og sáu þorska og mörg önnur undarleg dýr, sem þau voru hrædd við að synda framhjá. Þau vissu ekki, hvert þau áttu að fara en urðu samf erða. „Eg hugsa, að veröld- in geti verið varasöm og margar hætturnar fyrir einmana síldarseiði", sagði annað seiðið. „Við skulum aldrei skilja, við erum systur“ svaraði hitt. „Eg er þó hálf hrædd um að eitthvað verði til að skilja okkur. Það er ósköp að sjá, hvernig öldurnar láta“. „Það getur verið, að við þekkjum hvor aðra. All- ar síldir eru hver. ann- arri líkar. Það sagði móð- ir min, þegar hún áttj mig“. „Já, ég man það. Manstu allt, sem mamma sagði okkur? Hún sagði okkur frá langferðum sín- um og mörgum hættum, sem hún hafði komizt í. Máfar, hákarlar og hval- ir ofsóttu hana og eiga sjálfsagt eftjr að ofsækja bömin hennaij. Og hún sagði okkur frá mönnun- um, sem lögðu net sin fyrir hana“. „En það verður ekki fyrr en við erum orðnar stórar*1. „Blessuð vertu! Manstu ekki, að mamma sagði okkur frá skepnum, sem mundu óvægar vilja éta okkur á meðan við vær- um litlar?" „Já, okkur veitir ekki af að styðja hvor aðra“. „Bara að við værum fleiri. Það er tómlegt fyrir eina og eina síld að vera á ferð í svona stóru hafi“. Þær sj'ntu til hafs, eins liratt og þær gátu, og þegar þær voru komnar mílu frá landi, héldu þær, að þær væru komn- ar langt út á heimshöf- in. En þá hittu þær önn- ur síldarseiði og slógust í för með þeim. Seiðin syntu og átu af öllum kröftum, því að nú höfðu þau fengið m'únn og urðu smám saman ein.s og fiskar eiga að vera. Þaþ vora heldur ekki gagnsæ leng- ur. Og nú höfðu þau gljá- andi hreistur. Seiðin, sem höfðu lifn- að seinast voru alltaf samferða. „Mig langar til að fara lengra upp eftir. Það er svo bjart og fai- legt að horfa þangað“, sagði annað. Svona leið eitt misseri. Þá var síldin orðin svo stór og feit, að henni fannst hún verða að hafa eitthvað annað fyrir stafni en að éta. ,jfeg hef enga matarlyst nú orðið“, sagði hún. „Þú ert líka orðin södd‘!, sagði gömul síld og það er komið mál fyr- ir þig að hrygna“. „Og hvar á ég að hrygna?" spurði unga sildin. ★ ----★—---- ★ NÝTÍZKU- DAMA Það er orðið æðilangt síðan við höfum birt tízkudömu í blaðinu, bó fáum við stundum eina og eina í pósti. Hér er svo ein að austan. Henni fylgdi þetta bréf: Kæra Óskastund! Komdu blessuð og sæl. Helena Eyjólfsdóttir er ftirlætissöngvarinn minn. Þú sigldir burt er eftir- x lætis lagið mitt, Fóstur- sonurinn er held ég bezta bókin, sem ég las um jólin. Eg ætla að senda þér mynd af nýtízkudömu. Vertu sæl og blessuð, Hansína Rósamunda IngólfsdótUr. Kross- r gerði við Djúpavog. Allt sem þið þurfið við þennan leik er dálítið hugmyndaflug. ÓSKASTUNDIN — (3 línu á blaðið og svo skiptið þið um blöð og reynið hvor getur gert sniðugri andlit. Stundum muntu strax sjá ótal fyndin andlit en svo getur lika verið mjög erfitt að finna nokkuð. Þrátt fyrir það er alltaf gaman að reyna ímynd- unaraflið. -----•¥■ Skritla Alli: (5 ára, kemur inn með hríslu í hendinni); Sjáðu pabbi, hvað ég gat slitið upp úr garðinum okkar." Pabbi: Jæja, drengur minn, Mér þykir þú vera orðinn sterkur. Alli: Já, ég gat það al- einn. Og jörðin togaði í á móti mér. Krossgáta Mig langar til að biðja þig að birta þessa kross- gátu fyrir mig. Viltu svo birta textann Litli tón- listarmaðurinn. Vertu svo blessuð og þakka þér fyrir allt gott. Unnur 11 ára. Lárétt skýring; 1 fugl, 3 draup, 6 verkfæri (þf), 8 tveir eins, 9 ræktað land, -11 Hát, 13 meðal, Framhaid á 4 siftu. Biddu einhvem að draga hlykkjótta linu niður mitt blaðið, svip- aða þeirri, sem er vinstra megin á myndinni hér fyrir ofan. Ef þú athugar risslín- una vel, muntu fljótlega sjá .allskonar andlit í henni. Þegar þú ert búin að finna út andlitið bættu þá við því, sem vantar, hári, eyrum eða öðru því, sem þú vilt. Myndin hægra megin sýnir hvemig þetta er gert. Þegar veðrið er vont svo þú getur ekki verið úti, getur þú skemmt þér prýðilega með leikfélagá þínum við að gerá svóna myndir. Þið gérið riss- PÖSTH Pósthóliið Kæra Óskastund! Eg ætla að skrifa þér nokkrar línum með þakk- læti fyrir allar sögumar skrítlumar og leikritin. Eg hlakka alltaf til þegar þú kemur. Eg ætla að | senda þér skrítlur, sem eru svona: i Jón gamli var að svíða •og mann bar þar að: „Svíður þú bara fyrir kaupfélagið?“ Jón: „Já, en stundum ; tek ég hausa og lappir af i prívat mönnum.“ I •- - . . . ■ | ^ Frúin: Verður þú ÖLFIÐ aldrei þreyttur að betla? Betlarinn: Jú, ég óska þess oft að eiga bil. Hvernig finnst þér skriftin mín, ég er 12 ára. Vertu svo blessuð og sæl. Sigrún 12 ára. Við þökkum þér fyrir bréfið. Skriftin þín er örlítið kæruleysisleg, þótt þú hafir æfða hönd. Stafimir enda ekki nógu vel. Tengingin er heldur ekki alltaf rétt. Þú get- ur náð sama flýti þótt þú gætir að þessu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.