Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.1985, Blaðsíða 1
FRETTABREF
ÆTTFRÆÐIFELAGSINS
5. tbl. 3. árg. Nóvember 1985
KYNNINGARDA6AR
Það má telja til merkilegrar nýjungar að seinustu dagana í október var efnt
til kynningar á Ættfræðifélaginu og útgáfubókum þess í Bókaverslun Snæbjarnar í
Hafnarstræti. Frumkvöðull þessa framtaks var Einar Egilsson gjaldkeri félagsins.
Verslunarstjóri bókaverslunarinnar Benedikt Kristjánsson tók þessu verkefni mjög
vel. Hefur ekki áður að ég held verið staðið jafn myndarlega að kynningu á Ætt-
fræðifélaginu.
I tengslum við þessa kynningu voru flutt þrjú merk erindi hvert á sínum degi.
Bjarni Vilhjálmsson flutti erindi sem nefndist Gildi manntalsins 1845, Jón Gísla-
son flutti erindi um "Reykvískar ættir frá 18. öld" og dr. Jens O.P. Pálsson um
"Tengsl mannfræði og ættfræði."
Ö11 þessi erindi voru fróðleg á sína vísu en voru ekki vel sótt. Hefur flutn-
ingur þeirra farið fram hjá mörgum eða Ættfræðifélagsmenn ekki átt heimangengt.
Hér á eftir fer partur af erindi Jóns Gíslasonar formanns félagsins. Eg rita
þetta upp eftir segulbandi þannig að villur verða á minn reikning. A.S.
FYRSTU IÐNAÐARMENN RYEKJAVlKUR
"Með ritun kirkjubókanna á þessum árum varð til geysileg heimild um mörg
atriði úr sögu Reykjavíkur; ekki eingöngu um ættfræði heldur hvernig greina má
fólk etir atvinnustéttum, hvað það lærði og við hvað hugur fólkssins festist.
Þetta var undirstaðan að því að hér kom upp iðnaðarstétt sem var nokkuð fjölmenn.
Sumir af iðnaðarmönnunum urðu þekktir í þjóðfélaginu. Frá þeim eru komnir miklir
áhrifamenn. Þegar líða tók á 19. öldina er einmitt ahyglivert að meiri hluti iðn-
aðarmanna í Reykjavík er einmitt afkomendur fólksins sem flutti til Reykjavíkur
á tímum Skúla Magnússonar. - Eg ætla að minnast á nokkra menn sem fluttust til
Reykjavíkur til þess að vinna við Innréttingarnar. Þar er efstur á þlaði hjá mér
Jafet Illugason frá Hruna í Hrunamannahreppi. Hann dó 1791. Hann er í sóknar-
mannatali frá 1769 kalaður yfirskerari. Ætt frá honum er mjög fjölmenn, stundum
kölluð Lóskeraætt. Hann giftist konu er hét Þorbjörg Eiríksdóttir. Qóttir be'frra
var Ingveldur kona Einars Jónssoriar stúdents og kaupmanns en þaunvoEu foneitdrar
Ingibjargar konu Jóns Sigurðssonar forseta. Sonur Ingveldar og Einars var Olafur
prófastur á Stað á Reykjanesi vestra í Reykhólasveit faðir Þorláks 0. Johnsens
kaupmanns sem stofnaði fyrirtækið O.Johnsen & Kaaber. Hann var frægur fyrir það
að hann verslaði mikið við Englendinga og var mikill brautryðjandi í verslun hér
í Reykjavík. Einnig var sonur Einars Guðmundur Johnsen prestur í Arnarbæli í
ölfusi og annar sonur Jafet gullsmiður í Reykjavík. Frá þeim er einnig margt af
merkisfólki komið.
Næsta ætt sem ég ætla að minnast á er oftastnær kölluð Vefaraætt eða Teitsætt.
Hún er komin frá Teiti vefara Sveinssyni. Hann var fæddur 1738, dáinn 1809.