Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1988, Qupperneq 2

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1988, Qupperneq 2
- 2 - í fornháþýzka kvæðinu Hildebrandslied frá 8. öld er talab um föðurinn Heribrand, soninn Hildebrand og sonarsoninn Hadubrand Þegar kornið er vel fram á víkingaöld hafa nafnsiðir Germana færzt í nokkuð fast form svipað því sem enn tíðkast. En snúum okkur nú að íslandi og nafngiftum þar. Þið sem hér eruð vitið jafn mikið um nafngiftir íslendinga og ég sjálf og var mér því alls ekki Ijóst hvað ég hefði að segja ykkur. Ég kaus að lokum að ræða hugmyndir mínar um nytsama bók um mannanöfn ætlaða almenningi. Mannanöfn eru mikilvæg heimild um sögu þjóðarinar. Þau endurspegla tíðarandann á hverjum tíma. Úr þeim má lesa um áhrif kristninnar á mannanöfn, hvenær danskra áhrifa fer að gæta að ráði í landinu, þau segja okkur frá vaxandi þjóðerniskennd 19. aldar og áhrifum hernámsins í heimstyrjöldinni, svo dæmi séu nefnd. Á þetta minnist ég aftur síðar. Ég hóf að safna efni í slíka bók fyrir um það bil fjórum árum og fékk til liðs við mig Sigurð Jónsson frá Arnarvatni málfræðing. Við teljum nú að verkinu hefa miðað svo vel áfram að tími sé til kominn að skrifa saman. Ég hef í hyggju að rekja sögu verks okkar og verður varla hjá því komizt að ég rninnist á ýmislegt sem einhvejir hér vita þegar. En ég geri mér vonir um að í félagi sem þessu sé einnig fólk sem nýlega hefur fengið áhuga á ættfræði og nöfnum fólks og gæti því fræðzt eitthvað af því sem ég hef fram að færa. Allar ábendingar frá ykkur svo og athugasemdir eru mjög vel þegnar. í stórum dráttum er ætlunin að bókin skiptist í tvo hluta: 1) ítarlegan formála. Honum verður skipt í kafla og er hugmyndin nú að þeir verði: yfirlit yfir sögu íslenzkra mannanafna, dreifing og tíðni nafna og breytingar á nafngjöfum, tvínefni og saga þeirra, ættarnöfn og “dulbúin" ættarnöfn, tískusveif lur í riafngiftum og áhrif bókmennta á nafngjafir. Að lokum tel ég nauðsynlegt að geta um gildandi lög um íslenzk mannanöfn og þá hættu sem virðist steðja að beygingarkerfi mannnafna. 2) í hinum hluta bókarinnar verður svo nafnaforðinn sjálfur. Við hvert nafn verður tíðnitala miðuð við nýjustu heimildir, beyging ef þörf krefur, merking nafns og uppruni þess, saga nafnsins og aðrir fróðleiksmolar sem lesandi gæti haft gaman að. Ég ætla nú að rekja þær hugmyndir sem uppi eru um hvem þátt bókarinnar. 1. Þjóðskráin. Rannsóknir á aldri og tíðni íslenskra mannanafna er tiltölulega aðgengilegt verkefni. Fornbókmenntirnar eru mikilvægar heimildir um elztu nöfn, þá taka við fom bréf og skjöl og að lokum manntölin. Elzta íslenzka manntalið, svo kunnugt sé, var tekið árið 1703. Það er enn til, og í því er að finna 387 karlmannsnöfn en 338 kvenmannsnöfn. Þá er til aðgengileg úrvinnsla úr manntölunum frá árunum 1801 og 1845 eftir prófessor Björn Magnússon. í manntalinu frá 1855 eru karlmannsnöfn

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.