Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2003, Qupperneq 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2003, Qupperneq 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í maí 2003 félagsins. En fyrir sex árum losaði ég mig við fjár- reiðurnar, segir hún, og fyrir tveimur árum tók for- maður Sögufélagsins við framkvæmdastjórninni, svo nú sinni ég „bara“ æviskrárrituninni og samskiptum við prentsmiðjuna. Þegar hann féll frá stóð ég ein eftir. Svo ég hef farið hinn grýtta veg. Faðir minn hafði áhuga á ætt- fræði og ýmsu grúski, tók t.d. saman bændatal Stafholtstungna, en ég var víst of ung til þess að smitast af honum. Faðir minn var Kristján Franklín Bjömsson húsasmíðameistari og bóndi á Steinum í Stafholtstungum og móðir mín var Rannveig Odds- dóttir kona hans. „Ég heffarið hinn grýtta veg“ Ég hafði starfað við kennslu meiri hluta minnar starfsævi. Mig hafði aldrei dreymt um að síðan hæf- ist annar og gjörólíkur kafli í lífi mínu, kafli sem tæki allan minn tíma og krafta. Því það hafa Borgfirsku æviskrárnar gert og vel það. Þetta er óheyrilega mikil vinna. Ef það ætti að launa þetta í samræmi við vinnu- framlag kæmi engin bók út. Þetta rétt stendur undir sér þótt mest sé gert í sjálfboðavinnu. Ein bók veltir þeirri næstu. En peningar koma fljótt inn, það eru útsölumenn í hverjum hreppi og því selst alltaf nokk- uð af upplaginu strax, segir Þuríður, sem árum sarnan lét sig ekki muna um að fylgja bókunum eftir heim í hérað, senda í póstkröfu um allt land, auka þess að annast allt bókhald og framkvæmdastjóm Sögu- http://www.vortex.is/aett 15 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.