Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2003, Blaðsíða 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í maí 2003
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Ættfræði á e-mail
eða
nútíma ættfræðisamskipti
Það var á Opnu húsi í haust sem ég hafði orð á því að
mig vantaði upplýsingar um hann langalangalanga-
langafa minn, Gísla Olafsson, bónda í Straumi og
Ottarsstöðum, fæddan um 1720. Undirtektirnar voru
vægast sagt dræmar enda tómir Þingeyingar og
norðanmenn viðstaddir sem litu ekki við smælingja-
ættum að sunnan! En svo birtist þar allt í einu
Magnús nokkur Haraldsson sem er hafsjór af fróð-
leik, með óþrjótandi áhuga og tölvuspekingur mikill
sem lætur sér engar ættir óviðkomandi og þar að auki
sérstaklega áhugsamur um Hafnarfjörðinn, Álftanes-
ið og gamla Bessastaðahreppinn. Og hann var nú
ekkert að tvínóna við hlutina: „Sendu mér þetta bara
í tölvupósti og ég skal kíkja á það“. Hvað ég og gerði
og svo fór allt í gang:
Þótt e-mailið leysi nú ekki lífsgátuna þá sýna
þessi litlu samskipti í hnotskurn ættfræðiiðkun
nútímans á netinu. Það er liðin sú tíð þegar menn
fóru ekki bara bæjarleið - heldur landsfjórðunga á
milli - til þess að leita sér fanga, eins og þegar sá
mikli ættfræðingur, Indriði Þórkelsson á Fjalli í
Aðaldal, gekk suður til Reykjavíkur einn veturinn til
þess að skrifa upp nokkrar kirkjubækur!!
Hér kemur tölvupósturinn:
6. nóv. 2002 kl 22:35
Heill og sœll Magnús
Vandmálið er að ég er komin í strand með ættrakn-
inguna á honum langalangalangalangafa mínum,
Gísla Olafssyni, því ég er þar þversum við Guðna
Jónsson í Bergsœttinni bls 131 í II. bindi, en þar
segir hann að Olafur b. Ottarsstöðum f. 1700 d. 1.
okt. 1781 ,faðir Gísla sem fœddur er 1724 d. 23. 5.
1803, hafi verið Hallsson, sonur Halls b. í Isólfs-
skála Sigmundssonar vinnumanns í Skálholti á dög-
um Brynjólfs biskups síðar b. Þórkötlustöðum, Jóns-
sonar prests í Laugardælum....Mér sýnist Gísli
œttfaðir minn hafa verið sonur Olafs Höskuldssonar
b. í Lambhaga Oddssonar, sbr Snóksdalín. Eg œtla
nú ekki að efast um œttrakningu Guðna en ég skil
hara ekki hvar vitleysan liggur.
Bestu kveðjur Guðfinna
7. nóv. 2002 kl 09:48
Hæ Guðfinna
Þetta með Gísla Olafsson er smá vandamál eða
þannig: Eg er með Gísla Ólafsson bónda í Óttar-
staðakoti í Hafnarfirði 1750-1803 fæddan 1721 d.
23.5.1803 (i Gísla Pól) og þar er faðir hans Ólafur
Hallsson f. 1700 og var á ísólfsskála í Grindavík
1703 en Ólafur þessi Hallsson er skráður bóndi í
Óttarstaðakoti í Hafnarfirði frá 1728-81 (samkvæmt
Gísla Pól) (búendatali Hafnarfjarðar). Þetta er eins í
Bergsætt II (en ekkert minnst á Ólaf Höskuldsson
sem bónda á Óttarsstaðakoti). En ég hef a.m.k. rekist
á Odd Höskuldsson f. 1687 (bróður Ólafs) en hann er
bóndi og húsmaður á Hvaleyrinni í Hafnarfirði 1737-
44 . p.s. þessi bók sem ég tala um, Gisla Pól, er bókin
sem er til í 5 eintökum og eru með ábúendur í
Hafnarfirði frá 1400 eða þannig til cirka 1900.
Maggi
7. nóv. 2002 kl 10:28
Hæ, ég fékk meira frá honum Galdra-Tomma og
hann vill gjaman fá að vita tilvitnunina í Ó Snóks-
dalín. En vandinn finnst mér að hann vitnar í Bergs-
ætt.. hee... en málið er að Gísli Pól gerði Hafnar-
fjarðarbókina á undan Bergsætt og hann var jú með
allt um Hafnarfjörð (hef ekki enn komist yfir það)
..hee... Tommi segist hafa skoðað handritið og að
Ólafur sé þar sonur Halls Sigmundssonar og síðar
sagður bóndi á Óttarsstöðum, látinn 1781 þá 81 árs.
Kveðja Maggi
7. nóv. 2002 kl 22:43
Heill og sœll og þakka þér snögg og góð svör. Ragn-
hildur langalangamma mín Guðmundsdóttir erfœdd
í Lamblnísum Bessastðahr. um 1792. Hún er í Mt.
1801 S bls 375 á Skógtjörn þá 8 ára. Foreldrar
hennar eru Guðmundur Gíslason þá 43 ára f. um
1758 og kona hans Guðrún Jónsdóttir 38 áraf. um
1763. 1 Sýslum.œ stendur í 4. bindi bls. 149:
Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Deild á Alftanesi
Gíslasonar á Ottarsstöðum Olafssonar. I Mt 1801 S
bls 366 eru Gísli Olafssson og kona hans Hildur
http://www.vortex.is/aett
18
aett@vortex.is