Laugardagsblaðið - 14.05.1955, Blaðsíða 8
Riutjóri og
óbyrgðannaSur:
ÁRNI BJARNARSÖN,
Akureyri.
Kemur út á laugardögum
Ver'ó' kr. 10 ó órsfjórð.
í lausasölu kr. 1.
PrentsmiSja
prentaði.
Björns Jónssonar h.f.
HjwíÉgir hOrii
Kirl Kíistjánsson alþm.
Á sextíu ára afmæli Karls
Kristjánssonar alþm. síðastliðinn
þriðjudag var gestkvæmt á heim-
ili hans allan daginn frá morgni
og langt fram á nótt. Var veitt af
hinni mestu rausn og mikill söng-
ur og gleðskapur yfir borðum.
Fjöldi Húsvíkinga og margir aðr-
ir gestir heimsóttu hann og færðu
honum að gjöf vandaða stunda-
klukku og hafði Kristján Hall-
dórsson á Stóru-Tjörnum smíðað
kassann af hinum alkunna hag-
leik sinum, Kaupfélag Þingeyinga
gaf honum fagurt málverk eftir
Gunnlaug Blöndal og Húsavíkur-
bær stóra ljósmynd af Dettifos3Í.
Auk þess bárust honum margar
aðrar gjafir og fjöldi skeyta víðs
vegar að.
Agætur afli í
Eyjafirði
Undanfarið hefir verið góður
afli í Eyjafirði og hafa fjölmarg-
ir bæjarbúar fengið ágætis fisk á
handfæri úti á Skjaldarvík og
jafnvel innar í firðinum. Báfar,
sem róið hafa frá Hrísey, Dalvík
og Ólafsfirði fengu góðan afla á
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag, en s’ðan hefir ekkert verið
róið vegna ótíðar.
Heilsufar í bæ
og uágrenni
Samkvæmt upplýsingum, sem
héraðslæknir hefir geflð blaðinu,
er heilsufar sæmilegt í bænum og
eini faraldurinn er hettusótt, en
hennar hefir gætt talsvert í bæ og
nágrenni að undanförnu. Influ-
enza er lítilsháttar í bænum en
talsverð í 6veitunum, og eitt og
eitt tilfelli af kighósta, rauðum
hundum og hlaupabólu-
Páll H. Jónsson
bóndi á Stóruvöllum
lálinn.
Að morgni hins 10. maí andað-
ist að heimili sínu, Stóruvöllum í
Bárðardal, hinn landskunni hér-
aðshöfðingi, Páll H. Jónsson
bóndi, 96 ára' að aldri.
Verður hans nánar getið síðar
hér í blaðinu.
leihjéliigiil sjnir »lld fyrir
MgreW«r« í mestn vihu
Undanfarnar vikur hefir Leik-
félag Akureyrar æft af kappi nýj-
an leik, sem nefnist „Skóli fyrir
skattgreiðendur“, og mun hann
að öllu forfallalausu verða frum-
aýndur í næstu viku.
Þessi leikur gerist í syndarinn-
ar borg París og fjallar að sögn
á einkar skemmtilegan hátt um
skattafram’.öl og venjulega ná-
kvæmi á framtölum, og hvernig
sé hægt að hagræða þeim á heppi
legastan hátt.
Með aðalhlutverk fara Jón
Norðfjörð, Brynhildur Stein
grímsdóttir og Júlíus Júlíusson
frá Sigíuflrði- Leikstjóri er Jón
Norðfjörð. Leikritinu er snúið á
íslenzku af Páli Skúlasyni.
liátíftaliöld kvenna^kdl-
ans á Blöndud§i
Kvennaskólinn á Blönduósi
minnist 75 ára afmælis sins með
hátíðahöldum um næstu helgi.
Verður þar kynningarmót nem-
enda, gamallra og ungra auk al-
mennra hátíðahalda.
Mótið hefst laugardaginn 21.
maí með kvöldskemmtun í sam-
komuhúsinu á Blönduósi, þá verð
ur og opnuð sýning í barnaskóla
þorpslns- Á sýningunni verður
handavinna nemenda skólans, og
auk þess ýmsir munir, sem unnir
voru í skólanum í Ytri Ey. Einn-
ig verður þar sýning á gömlum
húnvetn?kum tóskap af ýmsu læi.
Á sunnudaginn 22. maí verðui
nemendakynning, sem hefst með
guðsþjónustu í kvennaskólanum-
Síðan verða ræðuhöld og söng-
Shipuð þríjjjp manna
nejfld til að annast
rekstur sjúkrajlugs
i Horðurlandi
Á síðastliðnu sumri afhenti
Slysavarnaíélag íslands slysa-
varnadeildunum á Norðurlandi
að gjöf, sjúkraflugvél þá, er það
hafði starfrækt að undanförnu
með Birni Pálssyni flugmanni, en
þetta er 3ja sæta Austervél. Var
henni flugið hingað norður og
hefir hún síðan verið geymd í
skýlinu á Melgerðismelum. Af
ýmsum ástæðum hefir vélin ekki
verið starfrækt fram að þessu hér
nyrðra. En nýlega hafa slysa-
varnadeildirnar, Rauða kross-
deild Akureyrar og Flugráð út-
nefnt 3 menn á Akureyri til að
undirbúa og annast rekstur
sjúkraflugs hér. í nefndinni eru:
Gísli Ólafsson, frá Rnuða kross-
inum, Árni Bjarnarson, frá
slysavarnadeildunum og Kristinn
Jónsson, frá Flugráði-
ur, þar sem karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps og Karlakórinn Hún
ar á Blönduósi syngja.
Um kvöldlð verður sameigin-
legt borðhald í leikfimishúsi skól-
ans- Formaður skólanefndar Run
ólfur Björnsson á Kornsá mun
flytja þar ræðu. Landbúnaðarráð i
herra, fræðslumálastjóri og náms
stjóri húsmæðraskólanna munu j
að forfallalausu sækja hátíðina í (
boði skólans.
Norðurleið h.f. annast ferðir
fyrir þá nemendur og gesti, sem
hug hafa á að sækja há'.íðlna.
Stórhríð um allt
Norðurland
Að undanförnu hefir verið hin
mesta kuldatíð hér Norðanlands
og frost margar nætur. En þó
keyrði um þverbak aðfaranó't
fimmtudagsins, en þá gerði norð-
vestan stórhriðarveður víða um
Vestur-, Norður- og Austurland-
í Eyjafirði og á Akureyri svo og
Þingeyjarsýslum varð víða mikil
snjókoma, og einnig í Austur-
Húnavatnssýslu, en minni í
Skagafirífi. Hér í bænum gerði
sums staðar meters djúpa skafla,
svo fólksbílar komust ekki leiðar
sinnar um sumar göturnar. Frost
varð og víðast frá 2—7 stig. —
Allan fimmtudaginn var hér hið
versta veður en batnaði í gær.
Ekki rnunu þó hafa orðið veruleg-
ar tafir fyrir bíla á suðurleiðinni,
og á fimmtudagskvöldið kom
langferðabíll að sunnan. Var
snjólítið á veginum víðast, nema
í Langadal, en þar var færi mjög
þungt- Mikinn snjó gerði á!
Vaðlaheiði og var illfært þar yfir
á fimmtudaginn og í gær. Ekki
urðu verulegar tafir á ferðum
miólkurbíla hingað til bæjarins.
ANNÁLL 19. ALDAR,
samstæður, 1.—4. blndi, fæst nú hjá
okkur. Örfá eintök. Verð kr. 350.00.
Bókaverzlunin Edda h.f..
—-Dagbók vikunnar —
Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju
kL 2 n. k. Bunnudag. (Hinn almenni
bænadagur.) Sálmar: 374, 376, 378, 1.
- (P.S.)
Nœturvörður
laugardag og sunnudag, 14. og 15.
maí, er í S^örnu Apóteki, sími 1718,
annars alla næstu viku í Akureyrar
Apóteki, sími 1032.
Nœturlœknar.
Laugardag og sunnudag, 14. og 15.
maí: Frosti Sigurjónsson, Helgamagra-
rtræti 17, sími 1492. Mánudag 16. maí
Bjarni Rafnar, Skólastíg 11, sími 2262.
Þriðjudag 17. maí Frosti Sigurjónsson.
Miðvikudag 18. maí Bjami Rafnar.
Fimmtudrg 19. maí Pttur Jónsson,
Hamarstíg 14, sími 1432. Föstudag 20.
maí Frosti Sigurjónsson.
Skógrœktarfélag Akureyrar
tilkynnir, að framvegis verði gróður-
sett á vegum félagsins á þriðjudags- r
fimmtudagskvöldum. Lagt verður ‘
stað öll kvöldin á sama t.ma, kl. 7.3(
frá Hótcl KEA. Félagið heitir á bæjai
búa að styrkja starf.ð með þátttöku
gróðursetningu og flutningi tjálfboði
liða. Þátttakendur eru beðnir að gaf
sig fram við Tryggva Þorsteinsso
(sími 1281).
Skógrœktarfélag Eyfirðinga,
og Ungmennasamband Eyjafjar®2
hafa gert áætlanir um gróðursetninga
ferðir í vor eins og að undanförnu. ^
fyrsta ferðin fyrirhuguð í dag, 14- 1112
en þá átti að gróðursetja í Kjarn:
skógi. Af þeirri ferð mun þó ekl
verða sökum snjóa og illviðris. N®:
mun því verða gróðursett 21. mai
/aðlareit. Þátttaka frá Akureyri c
deildum í Eyjafirði, Hrafnagils-, Sau
bæjar- og Öngul staðahreppum. Viní
hefst kl. 4 s.ðdegis.
Smósagnasöfn
Einars Krisliánssonar
frá Hermundarfelli:
Septemberdagar
og
Undir högg að
sækja
fást hjá bóksölum.
Bækurnar má einnig panta fr«
Bókaverzl. Eddu, Akureyri, —
Ve.ð kr. 46.00, bóðar bækurn-
ar óbundnar.
NAN-O-THE
plastveggdúkurinn
er kominn aftur.
MAN—O—TILE er mjög auðvelt að hreinsa, þolir sápulút
og sóda án þess að láta á sjá.
MAN—0—TILE, 3 litir, hvífur, bleikur og grænn.
MAN—O—TILE er límt með ATLAS-lími, rakaþétt.
/