Unga Ísland - 01.06.1914, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.06.1914, Blaðsíða 3
UNGA ÍSLAND 43 á hann. með svo ferlegu augnaráði, að liann hörfaði brolt. Hún hafði áður gengið lotin undir betlipoka sinum, en nú rétti hún úr sér: »Eg er ránkerlingin úr Dimmaskógi,« sagði hún. Hreyfðu við mér, ef þú þorir.« Og það lejmdi sér ekki, að hún var jafn- viss um, að hann snerti sig ekki, eins og hún hefði verið drotning landsins. Klausturþjónninn færðist í auk- ana og áræddi nú að standa fyrir henni, þótt hann vissi hver hún væri. Hann ávarpaði hana kurteis- lega: »Þú verður að gæta þess, að þetta klaustur er munkaklaustur, og engri konu í öllu landinu leyft að stíga fæti sínum inn fyrir múr- veggi þess. Farir þú ekki burtu, reiðast munkarnir mér, því það var eg, sem átti að gæta hurðarinnar. Og vel getur farið svo, að þeir reki mig úr garðinum og á brott úr ldaustrinu.« Hjal þetta hafði engin áhiif á kerlingu. Hún gekk til og frá um garðinn, ýmist virti hún fyrir sér ísópana, með fagurbláu blómunum eða einkennilegu geitablöðin. Klausturþjónninn sá nú ekki ann- að vænna, en fara inn í klaustrið og fá mannhjálp. Hann kom á svipstundu aftur með tvo munka með sér, er virtust hafa krafta í köglum. Nú þótti henni leikurinn fara að verða alvarlegur. Hún nam staðar i garðinum og öskraði með grimmi- legri raust, að hún skyldi hefna sín greipilega, hún skyldi hrópa bölvun yflr klaustrið, ef hún fengi ekki að vera óáreitt í garðinum, svo lengi sem hún vildi. Munkarnir hugðu að þeir þyrftu ekki að hræðast hana og einsettu sér að reka hana út. En ránkerlingin æpti og réðist á munkana og beit þá bæði og klór- aði, hið sama gerðu grislingar henn- ar allir. Þrímenningarnir fundu brátt, að hér var við ofurefli að eiga, þeir lögðu á flótta inn í klaustr- ið, til að safna liði. Þegar þeir komu inn í klaustur- garðinn, mættu þeir Hans ábóta. Hann var á leiðinni út, til að for- vitnast um, hvaða háreysti væri í garðinum. Munkarnir urðu nú að segja satt frá, að ræningjakonan úr Dimmaskógi væri komin inn i garðinn, og að þeir hefðu ekki kom- ið henni út og væru nú að safna liði. Hans ávitaði þá fyrir að hafa beitt valdi við kerlingu, og bannaði hann þeim að sækja fleiri. Fyrir rúmum 300 árum, var uppi enskur maður, er hét Henry Hudson. Henry Hudson. Hudson er heimsfrægur orðinn fyrir rannsóknarferðir sinar í Norð- ur-Ameríku.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.