Unga Ísland - 01.06.1914, Side 4
44
UNGA ÍSLAND
IJá voru þar geisi flænii af landi
óbygð, sem nú eru bygð og ræktuð.
Árið 1607—1611 fór Hudson fjór-
ar rannsóknarierðir.
Tilgangur hans með þessum rann-
sóknum, var að finna siglingaleið
til Kina og Japan norður eftir fljót-
um Ameriku. Hugðist hann með
því geta greitl fyrir verslunarvið-
skiftum við Austurlönd.
Skip Hudsons.
Á 3. landkönnunarferð sinni fann
Hudson fljót, sem kent var við hann
og kallað Hudsonsfljót. það fellur
út i Hudsonsllóann.
Hudson sigldi uppeftir fljótinu og
nam staðar, þar sem bærinn Albong
er nú. Þar sá hann marga Indiána.
Seinna fór hollenskur maður sömu
Ieið og Hudson, og stofnaði nýlendu
þar sem New-York er, lang stærsti
bærinn i Ameríku; ibúatala borgar-
innar er talsvert yfir 7 miljónir. (Á
slærð við Lundúnir).
Veturinn 1610—1611, var Hud-
son á samskonar ferð í Norður-
Ameriku. Sú ferð hefir orðið hljóð-
bær um heiminn, sökum þ.ess hve
hörmulega hún endaði.
Skipverjar frömdu uppreisn á
móti Hudson og létu hann og son
hans i lítinn opinn bát ásamt 8
mönnum dauðveikum, og yfirgáfu
þá svo. Aldrei spurðisl neitt til þeirra
siðan.
Margir hafa siðan leitast við að
finna veg yfir Ameríku til Asíu og
margir þeirra hafa verið ágætis-
menn, þótl tæplega nokkur þeirra
jafnist á við Hudson.
Heimskautafarinn heimsfrægi, Hró-
aldur Ámundason, hefir sigll norður
með Ameriku, en sú sjóleið er svo
torsótt, að hún hefir tæpast nokkra
þýðingu fyrir siglingar og verslun.
Hudson ruddi Amerikumönnum
braut til fiskimiðanna við Spitsberg-
en, og stærsta skinnvöruverslun
heimsins heitir enn í dag xFélags-
verslun Hudsons.«