Unga Ísland - 01.02.1918, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.02.1918, Blaðsíða 3
UNGA ÍSLAND H mín vegnn. Eg var í álögum langa stund. Þessi maður leysti mig úr þeim. Hann ætla eg nú að ganga að eiga en ekki son yðar. Hann hefir fátt sér til frægðar unnið og ekkert gert fyrir mig. Drengskap yðar treysti eg til að misvirða ekki þetta við mig«.. Konungurinn varð mjög undrandi. Hann kom ekki upp nokkru orði. Drotning hans reiddist svo að henni varð orðfall, en sonur kóngshjónanna gat varla tára bundist yfir þvi að missa af kóngsdótturinni fögru. Þau tóru þegar úr veislusalnum og fóru heim til sín. Daginn eftir var gengið til kirkju og ívar og kóngsdóttir voru gefin saman. Kóngsdóttir og ívar voru mjög glöð og ánægð. Veislan stóð i hálfan mánuð og var veitt rausnarlega. Síð- ast þegar menn vissu þá lifðu þau í sæld og ánægju og séu þau ekki dá- in eru þau á lífi enn þann dag í dag. (Frakkneskt æfintýri). Gullhárin þrjú. (Serbneskt æfintýri). Einu sinni var konungur. Hann hafði verið á veiðum, en vilst frá mönnum sínum. Það var tekið að rökkva og 'hann gekk æ lengra og lengra inn í skóginn. Loks kom hann auga á ljóstýru í ofurlitlum kola- mannakofa, svo að hann gekk þang- að og barði að dyrum. Kom þar út maður nokkur, mjög sorgbitinn að sjá. »Eg hef farið villur vegar«, mælti kóngur, »ef þú getur vísað mér á rétta leið, skal eg gjalda þér það, svo að um muni«. »Einhverntíma mundi eg hafa gert það fúslega«, svaraði kofabúinn, »en í kvöld má ég ekki fara að heim- an. Konan mín er nýlátin og inni í kofanum á eg ungbarn, dálítinn drenghnokka, sem er rétt Iveggja stunda gamall. Eg get ekki farið fyr en í fyrramálið, þegar eg hef náð i einhverja konu til þess að gæta hans á meðan. En ef þér viljið vera hérna í nótt, þá skal eg búa yður beð í heyinu uppi á Ioftinu hjá mér, — betur get eg ekki boðið — og svo skal eg fylgja yður á rétta leið í fyrramálið. Þarna varð kóngur að þiggja boð- ið, hvort sem honum var Ijúft eða leitt. Hann fékk flet uppi í lieyloft- inu og með því að liann var þreytt- ur mjög, þá sofnaði hann skjólt. Um miðnæturskeið vaknaði hann við einhvern umgang niðri í stofunni. Hann sá niður um rifu á gólfinu, að ljós var niðri, kynleg bláleit glæla, og liann gægðist niður um rifuna. Birtan kom frá þremur kvenlegum verum, sem slóðu álútar uppi yfir barnunganum. Konurnar voru sveipaðar hvítum slæðum, frá hvirfli til ilja og gat kóngur sér til, að þetta væru dísir. Ein disin snart höfuð sveinsins og mælti: »Eg gef þessu barni hugrekki til þess að mæta hverri hættu á Jífs- leiðinni«. Önnur lagði höndina á enni hans og mælti: »Eg skal vernda hann, svo að hann komist úr öllum mannraun- um og verði langlífur i landinu«, Hin þriðja klappaði á vanga barns- ins og sagði: »Og eg gef þér litlu kóngsdólturina sem núna var að fæð- ast í höll kóngsins, sem sefur í hey- loftinu yfir höfðum okkar«.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.