Unga Ísland - 01.08.1918, Síða 8

Unga Ísland - 01.08.1918, Síða 8
64 UNGA lSLAND Tveir menn svartir i framan héldu honum, en sá þriðji tók asnann og fór með hann. Ræningjarnir rifu af honum höfuðfatið, ílettu hann klæðum og skildu hann eftir hálf- nakinn við veginn. Þarna lá hann og þorði ekki að láta á sér bæra, því að þeir höfðu hólað honum þvi, að snúa til báka og drepa hann, ef hann hreyfði sig, eða léti til sín heyra, en yrði hann kyr, skyldu þeir þyrma lífi hans. Hassúf sá hvar ræningj- arnir stefndu til fjalla, og harmaði mjög rnissi steinsins, sem hann hafði falið í yíirhöfn sinni. f dögun, er hann hélt að ræningjarnir væru komnir langt í burt, þorði hann fyrst að hreyfa sig. Hann stóð upp og Iabbaði til borgarinnar. En hann þorði ekki að koma á sölulorgið, þvi að hann skammaðist sin fyrir að svikja loforð sitt, og kaupa ekki sverðið. Dag nokkurn er hann sat og var að fiska, nálægt gyltu brúnni, til þess að hafa eitthvað ofan i sig að eta, kom kaupmaðurinn, sem átti sverð- ið góða, og sagði við hann: »Jæja, nær ætlar þú að koma og sækja sverðið, AIi Hassúf?« Hverju átti hann að svara? Sverð- ið og kalífadóttirin var honum að eilífu glatað. Eldri bræðurnir höfðu nú báðir verið rændir hinum dýrmætu stein- um, en á meðan hafði yngsli bróð- irinn setið heima í garðinum við hús sitt, og íhugaði hvernig hann best unnið sér inn lífsviðurværi. Fyrir framan hann stóð járnkassinn á Iitlu borði. Hann hafði tekið kassann upp, til þess að horfa á hann, og minn- ast síns kæra framliðna föðurs. Hliðið að garðinum opnaðist, og inn kom Mikkaben Jassel, gyðingur- inn, sem hafði lánað yngsta bróð- urnum dálitla peningaupphæð fyrir mánuði. Hann var alvarlegur á svip- inn og sagði: »Eg er kominn til þess að segja þér, Abdul, að« — lengra komst hann ekki, því að í því bili varð honum litið á járnkassann, en bélt þó áfram og breytti málrómnum — »til þess að segja þér, að það liggur ekkert á að endurborga þá 10 gullpeninga, sem eg hafði þann heiður að lána þér. Rú mátt hafa þá þennan mánuð, jafnvel árið, ef þú vilt. Mér liggur ekkert á þeim«. Hann hneigði sig kurteislega fyrir Abdul og fór. Abdul Kassim brá í brún við hina snöggu breytingu sem varð á fram- komu Jassels, en þegar honum datt i hug svipbreytingin sem á honum varð, er hann leit járnkassann, gat hann ekki að sér gert en að brosa. Dagur þessi átti eftir að færa Ab- dul enn þá önnur viðbrigði. Nágranni hans, fatasalinn, sem ekki hafði heim- sótt hann lengi, kom vingjarnlegur inn í garðinn, og hélt á stórum böggli. (Framh.). Mjög margir hafa greitt yfirstand- andi árgang »UNGA ÍSLANDS« og eru þeim hér með tjáðar bestu þakk- ir. Pess er vænst, að þeir sem ekki hafa greitt hann, geri það sem allra fyrst. Útg. Útgeíendur: Steingr. Arason. Jörnndur Brynjólfsson. Prentimiðjan Gutenberg.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.