Unga Ísland - 01.09.1919, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.09.1919, Blaðsíða 6
70 UNGA lSLAND þjer alla þá góðvild, sem þjer verður sýnd. Allir munu keppast um að greiða fyrir þjer og gera þjer gott. Og þegar þú ert orðin gömul kona og grá fyrir hærum, þá átt þú ótal vini, sem vilja fegnir gera alt sem þeir geta fyrir þig. Foreldrum þínum og vinum hlýtur að vera það mikil gleði, hve vel þjer fer fram. Það er mjög lofsvert, ekki aðeins fyrir þig, heldur líka kennar- ana þína, sem bafa brotið niður múrinn, sem útilokaði þig frá öðru fólki, svo að framtíð þin sýnist nú bjartari en margra barna, sem bæði hafa sjón og heyrn. Yerlu sæl, góða, litla vinstúlka. Með bestu kveðju til vina þinna. Oliver Wendell Holmes. Góðskáldið Whittier var einnig vin- ur Helenu. Um hann skrifar hún þetta: »Fagran sumarmorgun fórum við ungfrú Sullivan að hitta Whittier í kyrláta heimilinu hans i Merrimac. Það var stuttu eftir að jeg hitti Dr. Holmes. Hann var mjög hæglátur og látlaus í orðum og framkomu. Varð jeg strax hrifin af prúðmensku hans. Hann hafði bók, þar sem ljóðin hans voru prentuð með upphækkuðum stöfum, svo að blint fólk gæti lesið þau. Jeg opnaði bókina, og varð fyr- ir mjer kvæðið »Minningar frá skóla- dögum«. Jeg færði fingurna eftir stöf- unum og las kvæðið. Hann var hrif- inn af hve vel jeg gat borið orðin fram. Hann sagðist skilja hvert orð sem jeg sagði. Jeg spurði hann margra spurninga viðvikjandi kvæðinu, og las það sem hann svaraði mjer, með því að leggja fingurna á varirnar á honum, meðan hann var að tala. Hann sagðist sjálfur vera litli dreng- urinn í kvæðinu, og að litla stúlkan hefði heitið Sally. Margt fleira sagði hann, sem jeg er nú búin að gleyma«. Á áttugasta og þriðja afmælisdegi sinum, fjekk Whittier eftirfarandi brjef frá Helenu: Soutb Boston, 17. des. 1890. Kæra góða skáld! Nú er afmælið þitt í dag, og það var það fyrsta, sem mjer datt í hug, þegar jeg vaknaði í morgun. Og jeg varð svo glöð, þegar jeg hugsaði um það, að nú gæti jeg skrifað þjer brjef, og sagt þjer hve litlu vinunum þín- um þykir vænt um þig og afmælis- daginn þinn. í kvöld ætla þeir að skemta með því að lesa upp kvæðin þín og syngja þau. Jeg vona að ást- ar-englarnir verði hjer viðstaddir, til þess að flytja dálítið af unaðsómi söngsins til þín, þar sem þú situr í litlu skrifstofunni þinni í Merrimac. Jeg varð fyrst sorgbitin, þegar jeg fann það að sólin huldi andlitið sitt bjarta á bak við skýin drungalegu. En eflir á skildist mjer af hverju hún gerði það, og þá varð jeg glöð aftur. Sólin veit að þjer þykir gaman að sjá jörðina hjúpaða fannhvítum hrein- nm snjó, og svo huldi hún sig á bak við skýin og ljet litlu kristallana myndast í þeim, og svo falla þeir hægt og mjúklega niður á jörðina og klæða hana í hvítan skrúða, og þá kemur sólin fram í allri sinni dýrð og uppljómar veröldina. Ef jeg væri hjá þjer í dag, þá skyldi jeg gefa þjer áttatiu og þrjá kossa, fytir áttatíu og þrjú árin, sem þú hefir lifað. Mjer finst áttatíu og þrjú ár svo fjarska langur tími. Finst þjer það ekki líka? Hvað ætli annars að sjeu mörg ár í eilífðinni. Jeg er hrædd um að jeg geti ekki hugsað mjer svo langan tíma.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.