Unga Ísland - 01.02.1933, Blaðsíða 8

Unga Ísland - 01.02.1933, Blaðsíða 8
20 UNGA ÍSLAND in 4. Hann mátti þá fara að borða nónmatinn. Hann leysti af sér nestispokann. Hvað skyldi ]mð nú annars vera, sem honum hafði verið _ skammtað? Það væri gaman að vita það. Siggi leysti frá pokanum og tíndi matinn upp úr honum og setti í kjöltu sér. Jú, þarna var rúg- brauð, hveitibrauð., smjör, ostur, harðfiskur og mjólk. Siggi byrjaði á brauðinu. Honum þótti svo gott bveitibrauðið. En það var eins og það stæði allt í honum. — Hann gat ekki borðað nema einn sneið. Hann hafði ekki lyst á því. Sigga varð litið norður á heiðamar. Þarna var hann þá að koma með þokuna, eins og hún var þá líka skemmtileg. Hún teygði sig smátt ogsmátt suður heiðarnar, að lokumvar hún bú- in að hylja alla útsýn fyrir Sigga, svo að liann sá naumast yfir ærnar, sem voru á beit allt í kring um hann. Það fór hrollur um hann. Hún var svo leiðinleg þessi þoka. Það var eins og hún ætlaði að gleypa allt. _— Hún var svo mis- kunnarlaus, köld, grimm og grá, þar sem hún þeyttist allt í kring um hann, eins og grár ullarflóki. Siggi starði með tárvotum augum út í þok- ■ una. En hvað var þetta? Honum sýndist svart ferlíki koma fram úr þokunni. Hann varð ákaflega hræddur. Gat ekki skeð, að þetta væri huldumaður úr svörtu klettunum í gilinu, eða hólunum. Alls staðar gat huldufólldð verið. Hann hafði svo oft hevrt fullorðna fólkið tala um það. Huldufólkið fór helst á kroik í þokunni. — Þá voru allar illar vættir á ferli. — Þetta gat líka verið tröll, sem væri á mannaveiðum. Siggi svitnaði af hræðslu. Það fór titringur um hann allan af skelfingu. — Hann var kominn að því að hníga niður. I því birti lítið eitt til þok- una, svo að Siggi sá, að þetta var þá bara stór steinn, sem sýndjst svona hrikalegur í þokunni. En þokuna dreif yfir aftur, og hún varð jafn grá og leyndardómsfull sem fyr. — Sigga lá við að reka ærnar af stað heim. Hann gat varla haldist hér við lengur. Allt var svo ömurlegt í ])okunni. Klettarnir sýndust svo háir og illi- leo-ir og hólarnir eins og risafjöll, sem hefðu ])að til að steypast vfir hann, þegar minnst varði. Siggi bað guð hátt og í hljóði að leysa -sig frá þessu leiða verki. Hann vonaði að guð, sem er öllum svo góður, mvndi hjálpa sér, þó að pabbi hans væri svona harður við hann. En pabbi hans gat nú varla annars verið góður, úr því að hann píndi hann við hjásetuna. Hann skyldi víst ekki kyssa hann, þegar hann kæmi heim í kvöld. Siggi leit á klukkuna. Það var þá kominn tími til að fara heim. Hann mátti þá fara að ganga kring um ærnar og reka þær af stað þeim. Það gerði ekkert til, þó að hann Lubbi hlypi í þær, rétt sem snöggvast, þær rækjust þá betur heim á leið. Þegar Siggi kom ofan á dalbrúnina, sá hann að þokulaust mundi með öllu niðri í byggð- inni. Hann rak ærnar í kvíarnar, áður en hann fór heim. Hann sá pabba sinn vera að slá fram átúninu, en nú ætlaði hann ekki að heilsa hon- um. Nei hann gat ekki komið sér að því, þar sem liann ætlaði honum, svona ungum, að sitja hjá allt sumarið. „Ætlarðu ekki að heilsa. pabba, eins og þú ert vanur, Siggi minn“, kallaði pabbi hans framan af túninu. Siggi stóð kyr um stund. — Hvað átti hann að gera, átti hann að hlaupa heim og láta sem hann heyrði ekki, eða átti hann að fara til pabba síns og heilsaði lionum, eins og hann var vanur? Jú, hann gat ekki ánnað en gegnt hon- um j)abba sínum. Honum hafði alltaf þót.t svo vænt um hann. „Komdu sæll, pabbi“, sagði Siggi fremur lágt o~ kvssti pabba sinn. „Komdu sæll, elsku drengurinn minn“ sagði pabbi .hans og klappaði á kinnina á hon- um. „Hefir þér leiðst í dag. Mér sýnist þvi eitthvað svo daufur í dálkinn“. „Já“, sagði Siggi og leit niður á fætur sér. „Eg- get ekki setið hiá í sumar. það er svo voðe leiðinlegt. Þú mátt ekki þröngva mér til þess, pabbi“. „Þú mátt ekki láta þér leiðast, góði minn‘ ‘, sagði pabbi hans blíðlega. „Þú verður að herða þig upp og bera þig karlmannlega. Það er svo margt, sem maður verður að láta á móti sér í lífinu. Þú hefir ekki nema gott af því að láta á móti þér, meðan þú ert. ungur, þá verðurðu hæfari til að taka á móti erfiðleikum lífsins, ])egar ])ú eldist. Ef þú sigrar ]>essa þína fyrstu ]>raut, þá áttu hægra með að sigra ])á næstu. —Þú verður meiri maður. — En ef ])ú vilt ekk- ert á þig leggja. eða láta á móti þér, þá áttu á hættu að verða vesalmenni. — En ég vil að drengurinn minn herði sig og verði duglegur, pabba til gleði og öðrum til fyrii'myndar“. —

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.