Unga Ísland - 01.02.1933, Blaðsíða 14

Unga Ísland - 01.02.1933, Blaðsíða 14
26 UNGA ÍSLAND Sagan af Kolbít, sem stal siíf«röndunam, ábreíðunní 1 og gullhörpu tröllsins. Þýðing úr æfintýrasafní Asbjörnsen og Moe. _________** V-----------J Það var einu sinni fátækur maður, sem átti þrjá sonu. Þegar hann dó, fóru tveir eldri synirnir út í heiminn, til að íreista hamingjunnar. En þeir viídu ekki hafa yngsta bróður sinn með sér, því að þeir sögðu, að hann væri ekki til annars en að róta til í öskunni og liggja í henni. „Þá fer ég einn“, sagði Kolbítur; svo hét yngsti bróðir þeirra. Bradður hans fóru og komu til kon- ungsríkis, þar fengu þeir atvinnu, ann- ar hjá hestaverðinum, en hinn hjá garð- stjóranum. Kolbítur fór líka af stað og hafði með sér trogið, sem var eini arfurinn eftir foreldra hans, en bræður hans höfðu ekki viljað eiga það, því að það var svo þungt í vöfunum. En Kolbítur vildi ekki láta það verða eftir. Þegar hann hafði gengið um hríð, kom hann til konungsríkis þess, sem bræður hans voru nú þjónar i. Þar bað hann um atvinnu, en honum var sagt, að þar væri ekkert við hann að gera. En fyrir ítrekaðar bænir hans, fékk hann atvinnu við að bera spýtur og vatn til eldhús-stúlkunnar. Hann var iðinn og duglegur, og það leið ekki á löngu, áður en öllum þeim, sem umgeng- ust hann, þótti vænt um hann. En bræð- ur hans voru latir, og voru þeir þess vegna oft barðir. En svo fóru þeir að öfunda Kolbít, af því að honum gekk betur en þeim. Rétt á móti konungsríkinu, hinum meginn við stórt vatn, bjuggu tröll, sem áttu sjö silfurendur. Þær voru oft að synda á vatninu og sáust þá frá kóngs- höllinni. Þessar endur langaði konginn til að eiga. Einu sinni sögðu bræðurnir hesta- verðinum, að Kolbítur hefði sagt, að hann gæti vel náð í endurnar handa kónginum. Það leið ekki langur tími, áð- ur en hestavörðurinn sagði kónginum þetta. Kóngurinn kallaði strax á Kolbít og sagði við hann: „Bræður þínir hafa sagt, að þú gætir útvegað mér silfur- endurnar". „Það hefi ég hvorki hugsað né sagt“, svaraði drengurinn. En kóngurinn hélt áfram: „Þú hefir sagt það, og þú skalt gera það“. „Já“, svaraði drengurinn, „ef þú lætur mig hafa einn fjórðung af rúgi og annan af hveiti, þá skal ég reyna“. Hann fékk það, og lét það í trogið sitt, sem hann hafði haft með sér að heiman. Hann reri síðan yfir .vatnið með það. Þegar hann kom yfir vatnið, gekk hann að vatnsbakkanum og stráði þar matnum, og að þessu var hann, þangað til hann hafði ginnt endurnar upp í trogið. Svo bar hann þær út í bátinn. Hann reri síðan af stað, eins hart og hann gat með endurnar. Þegar hann var kominn á mitt vatnið, kom tröllið út og sá hann. „Ertu farinn með silfurendurnar mínar?“ hrópaði tröllið. „Já“, svaraði drengurinn. „Kemur þú ekki bráðum aftur?“ spurði tröllið. „Það getur vel verið“, svaraði dreng- urinn. Þegar Kolbítur kom með silfurend- urnar til konungsins, óx álit hans, en að sama sakpi óx öfundsýki bræðra hans. Framhald.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.