Unga Ísland - 01.08.1933, Page 9

Unga Ísland - 01.08.1933, Page 9
UNGA ISLAND 117 svona sár. Hann lét vel yfir aðgerð- um ,,yfirlæknisins“. og þeirra félag- anna, og það heyrði eg fyllilega á honum að öll líkindi væru til, að Nonni litli hefði dáið þarna ef engin hjálp hefði komið. — Eitthvað heyrði eg hann líka vera að tauta um að það væri nær að kenna unglingunum eitthvað í þessum fræðum, að stöðva blóðrás og þess háttar, heldur en að láta þá vera að læra langa-langar romsur af kónga- eða keisara-tali, hvenær þeir hefði ráðið ríkjum ein- hvers staðar úti í löndum, eða að vera að troða í börn nöfnum á tor- nefndum ám og fjöllum, einhvers staðar í Síberíu og Suður-Ameríku. Framhald. Sjö undur veraldar. í síðasta blaði var sagt frá pýramidum Egyptalands. Þeir eru nú einir eftir af undrunum sjö, sem í fornöld báru af öllu öðru. Næst þeim að frábærleik voru hengi- garðarnir í Babílon, borg undra og auð- logðar. Bogar og súlur, 25—100 metra háar héldu þessum görðum uppi, og í þeim S])ruttu fjölmörg fegurstu blóm og tré. Til þess að vökva garðana, hafði Ne- búkkanesar byggt vatnsgeymi, sem vatn rann í frá ánni Evfrat. Sagan segir, að garðarnir hafi verið gerðir til þess að geðjast drottningu, sem fluttist að Tungu (Mesopotamíu) frá f.iallalandi. Saknaði hún fjallanna, eftir að hún kom á sléttuna, og varð henni hugarhægð að hengigörðunum, af því að þeir minntu hana á heimahagana. litli og úrið. w | Eftir L. Pantelejew. (Þýtt eftir dönsku og sænsku útg.). ' Framh. „Á stað með þig, segi eg“. Pétur litli tók betur upp um sig bux- urnar sínar og drattaðist síðan af stað á undan lögregluþjóninum. Þeir gengu þarna í gegnum þéttustu mannþyrping- una á markaðstorginu. Allt í kring um þá heyrðust hróp og köll, allskonar auglýsingaskvaldur, grammófón og hljóðdósa músikk. Á markaðstorginu gaf að líta marga kinduga sjón. En Pétur skeytti því ekki. Hann hafði allan hugann á að koma því svo fyrir, að honum tækist að flýja út í mannþröngina, og því fyr, því betra. Eins og vel vaninn rakki, trítlaði Pét- ur á undan lögregluþjóninum; en eins og nærri má geta, var piltur í þungum þönkum. Hvernig í ósköpunum gat hann týnst eða horfið í múginn, þegar þessi ljóti og luralegi karlhlunkur var sífellt á • hælunum á honum. Fyr en varði höfðu þeir gengið þvert yfir torgið, og lá nú leið þeirra inn á hliðargötu; þar virtist enn verra und- ankomu. Pétur gekk nú álútari en fyr, og lög- regluþjónninn grenjaði másandi í eyr- að á honum: ,,Þú gerir út af við mig á þessum hlaupum. Það er naumast að þér liggi á. Hafðu þig nú ofurlítið hægan, geml- ingur. Eg þoli ekki þessi hlaup, eg er ofurlítið veill fyrir brjósti". Pétur svaraði ekki. Hvað kom honum við brjóstveiki karlsins. — Hann hafði öð,rum hnöppum að hneppa, því spurn- rT Pétur

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.