Unga Ísland - 01.08.1933, Side 10

Unga Ísland - 01.08.1933, Side 10
118 UNGA ÍSLAND ingin um það, hvernig hann gæti sloþpið úr klóm karlsins, var ávallt efst í huga hans. „Heyrðu, lagsi, segðu mér nú eins og er. Þú ert líklega að gera tilraun til að megra mig“. ,,Gera þig magran?“ sagði Pétur og glápti. ,,Já, skilurðu það ekki?-----Jæja, skinnið, þú hefir líklega ætlað að reyna að strjúka, það er nú eiginlega það, sem eg meinti“. Nú hló Pétur. ,,Ónei“, sagði Pétur. ,,Þó að þú skip- aðir mér að stökkva burt frá þér út í mannfjöldann, þá mundi eg ekki hlýða þér“. Nú var það lögregluþjónninn, sem glápti af undrun. ,,Jæja, þú segist ekki mundi flýja, þótt þér stæði opin leið til þess, og þú ætlast til að eg trúi þessu“. Þetta er annars einkennilegur snáði, sem mér hefir verið trúað fyrir, hugs- aði lögregluþjónninn og klóraði sér á bak við eyrað. Allt í einu nam hann staðar og benti með hægri hendinni í áttina til torgsins. „Gjörðu svo vel. Þér er velkomið að strjúka fyrir mér. Þú mátt víst sannar- lega hverfa, Guði á vald“. Pétur fékk óhemju hjartslátt. Það var eins og honum hefði vei’ið gefið bylmingshögg. Hann var allur á nálum, og gagntekinn af tilhugsuninni um, hvort hann ætti að taka lögregluþjón- inn alvarlega eða ekki. En hann áttaði sig fljótlega, þegar hann sá háðsglottið á andliti karlsins. „Jæja“, hugsaði Pétur. „Svo þú ert þá bara að hæðast að mér“. Og nú náði hann sér á strik og ávarpaði lögreglu- þjóninn hvergi smevkur. „Þér getið sparað yður þessa fyrir- höfn mín vegna. Eg fer ekkert frá yðui'. Þér megið gjarnan berja mig, ef þér vilj- ið, en eg fer ekki spor frá yður, skal eg láta yður vita, þótt þér kannske feginn vilduð losna við mig“. Nú horfði lögregluþjónninn skömm- ustulega á Pétur, en hann hélt áfram í sama tón. „Jæja, hvers vegna fer eg ekki? — Vegna þess, að þér hafið engan rétt til að skipa mér að flýja. Þér nennið ekki að gera skyldu yðar. Yður ber að hlýða lögunum og fylgja mér þangað, sem yð- ur var sagt. Ef þér gerið það ekki, klaga eg yður fyrir dómaranum. Skiljið þér það ? “ Pétur var sjálfur bæði undrandi og hreykinn yfii’, hve vel honum hafði tek- ist að ausa skömmunum yfir fylgdar- mann sinn. En lögregluþjónninn atyrti hann á ný, og var nú heldur ófrýnileg- ur. Sagði hann honum að hætta þessu þvaðri, hann hefði hvort sem væri aldrei meint neitt af þessu, að eins verið að gera ofurlítið grín með hann. „Já, þakka yður kærlega fyrir“, sagði Pétur litli; ,,eg þekki þess háttar grín, en eins og eg hefi sagt yður, getið þér sparað yður allar þessar hundakúnstir. En sannleikurinn er sá, að þér eruð allt of latur til þess að nenna að fylgja mér, og viljið þess vegna reyna að mana mig til þess að flýja. Eða var það kannske ekki meiningin? Eg er í alla staði heið- arlegur piltur, — og þetta og annað eins átti að eins að vera meinlaust grín. — Hvaða rétt hafið þér annars til að gera grín að mér?“ Framh.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.