Unga Ísland - 01.08.1933, Side 15

Unga Ísland - 01.08.1933, Side 15
tlNGA ÍSLAND 123 Þorskalýsi. Eftir Dr. med. G. Ciaessen. Það er gömul reynsla á íslandi, að þorskalýsi sé hollt, einkum börnum og' unglingum. Og á síðari árum hefir lækn- isvísindunum tekist að færa sönnur á, að lýsið hefir að geyma dýrmæt f.iör- efni eða bætiefni (á útlendu máli: víta- mín). Læknarnir nefna þessi efni A- og D-efni. Hið fyrra er likamanum nauð- synlegt til vaxtar og þroska á unga aldri; en D-efnið kemur í veg fyrir bein- kröm (,,ensku sýkina“). Þessi dýrmætu lífefni heíir þorskalýsið að geyma. — Áður en smjörlíki þekktist var notað- ur bræðingur, sem viðbit, en er nú orð- inn fáséour hér á landi. í bræðinginn var alltaf látið lýsi, og þess vegna er hann mjög hollt viðbit. Bræðingurinn hefir vaíalaust átt mikinn þátt í aö bjarga landsmönnum á hörmungatím- um og í hungursneyð fyrr á öldum. Sömu efnin, sem eru í þorskalýsi eru líka í nýmjólk, rjóma og smjöri, en ekki í undanrennunni. í smjörlíki vantar líka fjörefnin, nema það sé blandað rjóma. Hvað má af þessu læra? Börn og unglingar í sveitum fengu áður i’yrr næga nýmjólk að drekka, og smjör sem viðbit. Á þessu er nú orðin mikil breyting. Rjóminn fer í mjólkur- búin, en undanrennan verður eftir heima. Smjörlíki er líka notað í sveit- unum, í stað smjörs. Þetta er varla hægt að bæta sveitabörnunum upp með öðru en þorskalýsi eða bræðing. Annars er heilsa sveitafólksins í veði. En við sjávarsíðuna? Þar fá rnörg börn nýmjólk af skornum skammti og sáralítið smjör. Hér rekur að því sama: Þorskalýsið, með sínum dýrmætu f.jör- efnum, getur bætt upp það, sem undan- rennuna og smjörlíkið vantar. Því miður gengur misjafnlega að fá unglinga til að taka lýsi, vegna bragðs- ins. Lýsisvinnslan hefir reyndar tekið stórfelldum framförum á íslandi á síð- ustu árum, og er því flestum vorkunn- arlaust að taka lýsi. Það má súpa nokk- ura mjólkursopa á eftir, eða bíta í þurrt rúgbrauð. Lýsið má taka á kveldin und- ir svefninn, ef það fellur betur. Óhætt er að byrja að gefa misserisgömlum börnum nokkra dropa af lýsi á dag. Það er gott að geta læknað sjúkdóma. Hitt er þó enn dýrmætara, að koma í veg fyrir þá. Þjoðfélagið á enga dýr- rnætari eigu, en fólkið sjálft, sem í land- inu á heima. íslensk börn geta gert mik- ið til þess að varðveita heilsu hinnar uppvaxandi æsku, með því að taka 1—2 skeiðar af þorskalýsi á dag. Sigur hins góða. Félag var stofnað í New York, til þess að vinna á móti þrælahaldi. Á aðalfundi iélagsins réðist skríll á húsið og veittist að ræðumönnunum. Meðal ræðumanna var frú ein mjög líc- il vexti, Mrs. Mott að nafni. Einn af fé- lagsmönnunum tók að sér að hjálpa henm gegnum þröngina. „Hjálpaðu heldur þessum konum þarna“, sagði frúin“. „Hver sér þá um þig?“ spurði hann. „Þessi maður“, svaraði frúin, og greip um handlegg eins hrottalegasta árásar- mannsins. — Og hann gerði það. Slík áhrif hafði traust konunnar á hann. Daginn eftir sá hún þennan sama mann á veitingahúsi og tók hann tali. Eftir það varð hann vinur hennar.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.