Unga Ísland - 01.08.1933, Side 18

Unga Ísland - 01.08.1933, Side 18
126 UNGA ÍSLAND Snotra. Þegar ég var lítil, átti ég heima á Kaldárbakka. Mamma og pabbi áttu margar kindur. Einu sinni gáfu þau mér eitt lamb, sem hét Snotra; mér þótti fjarska-vænt um það; ég gaf því oft brauð og sykur og mjólk. Þegar það langaði í brauð, þá krafsaði það á gluggann, en þá kom ég og gaf því brauð og mjólk. Einu sinni fór ég til kirkju, með pabba og mömmu; þá' sá Snotra til mín, og kom hlaupandi, og elti mig alla leiðina inn á kirkjugólf, og þá þurfti að láta hana út. Þá hljóp hún jarmandi kringum kirkjuna, þangað til við komum út, þá elti hún ckkur alla leið heim. Jakobína Kristjánsdóttir, 9 ára. Rúsínur. Alkohól (vínandi) er eitur, sem hefir íargað fleiri mannslífum en öll önnur eitur samanlögð. Dr. John Harvey Kellogg, heimsfrægur heilsufræðingur. ¥ ¥ ¥ Vínframleiðsla gerði nokkra menn auðuga, en f jölmarga fátæka og atvinnu- lausa. Bannið hefir bætt efnahag vinn- enda og vinnuveitenda. Færi svo ólíklega, að bannið yrði afnumið, myndu fyrstu afleiðingarnar verða eymd og siðspill- ing vinnulýðsins, því að hvorttveggja er allt af samfara víndi'ykkju. Henry Ford.. V ^ Svartsýnn maður gerir böl úr tækifær- um, en bjartsýnn maður gerir böl að tækifærum. ______sf 'b___________________rrL_______ UNGA ÍSLAND. Eign RauÖa Ivross íslands. Keniur út 12 sinnum á ári; alls 192 bls. Verö blaösins er aöeins kr. 2,50 árg. Gjalddagi blaösins er 1. aprll. UitstjÖrar: Arngrímur Kristjánsson. Steingrímur Arason, Gjaldkeri blaösins er Arngrímur Kristjáns- son, Bergþórugötu 33, sími 2433. Utanáskrift blaösins öllu viövíkjandi er: Póstliólf 3G3. AÖal útsölu Unga íslands í Reykja- vík annast Bókhlaðan, Lækjargötu 2. — t>ar er tekið á móti nýjum kaupendum og andviröi blaösins. Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f. Vínnautn og glæpir hafa jafnan verið tvíburar. v v v Það má afkasta heilmiklu í heiminum, ef maður getur látið sér á sama standa hverjum er þakkað það. * ¥ * * Það leiðinlegcista, sem hugsast getur, er erfiði sumra manna við að forðast leiðindin. * * * Gæfa mannsins er ekki eins mikið kom- in undir því, að fá að vinna það, sem maður hefir ánægju af, eins og hinu að hafa ánægju af því, sem maður vinnur. \ Læknir hringir dyrabjöllu. Vinnu- stúlkan kemur út og segir: „Það er leitt að þurfa að segja yður það, að frúin er allt of veik, til að taka á móti yður í dag. v- v * Vtsölumenn, sem hafa hjá sér eintok nf fyrsta tiiluhlaili þessa árs, eru vinsamlega beðnir a& settda þuu til V. 1. fyrir miSjan október, helst strui. Bla'ðiS borgar burSargjahl.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.