Unga Ísland - 01.08.1935, Page 9

Unga Ísland - 01.08.1935, Page 9
UNGA ÍSLAND 125 til mín: „Ert þú drengurinn, sem hjálpaðir hraðboðanum af hestin- um?“ Ég játti því. „Guði sé lof! .... Guði sé lof!“ endurtók hann. „Við Sherry vorum orðnir svo hræddir um, að óvinirnir hefðu náð í þig“. Síðan sagði ég honum frá því helsta, sem gerðist í ferð minni. „Ágætt, ágætt!“ sagði forsetinn. „Gakktu nú inn í herbergið þitt“. Hann benti á opnar dyr. „Yfirforing- inn sér um, að það verði hugsað um þig. Svo þarf ég að tala við þig seinna“. Ég hafði talað við forsetann. Ég hafði leyst ætlunarverk mitt af hendi. Þetta gerðist svo snögglega, að ég varð að nudda augun, til að.ganga úr skugga um, að ég væri vakandi. Ég var að eins bumbuslagari og allt of ungur til að gerast hermaður. Þó hafði ég staðið frammi fyrir for- seta Bandaríkjanna, og hann hafði talað við mig. Nú beið ég eftir fyrir- skipunum hans. Yfirforinginn leiddi mig inn í ann- að herbergi. „Mér er óhætt að full- yrða“, sagði hann, „að þú hefir losað forsetann við alvarlegar áhyggjur, því að ef óvinirnir hefðu náð í þessi skjöl, hefðu þeir fengið nána vitn- eskju um herafla vorn á vesturvíg- stöðvunum". Hann sagði mér einnig, að óvinirnir hefðu komist á snoðir UW, að þessa skýrslu átti að senda. Þeir vissu þá auðvitað, að hraðboði flytti hana frá aðalherstöðvunum að vestan til Indianapolis og þaðan í lest til Washington. Hraðboðinn skildi Þetta, og frestaði þess vegna för sittni í tvo daga. Þrátt fyrir það höfðu fjandmennirnir næstum kló- fest hann í skóginum, þegar hann var að komast til herbúða vorra. Hann hafði fengið 5 sár, en var nú á góðum batavegi. „Láttu nú fara vel um þig“, sagði yfirforinginn og fór út. Ég var dauð- þreyttur. Ég tyllti mér á stól og sofn- aði samstundis. Ekki veit ég, hve lengi ég svaf. Svertingi vakti mig. Hann fór með mig inn í annað her- bergi, færði mig úr hverri spjör og setti mig í bað. Þess var líka full þörf. Svo gaf hann mér föt úr heima- unnu efni og spánnýja skó. Er ég var klæddur, leiddi hann mig inn í geysistórt eldhús. Það var tandur- hreint og hvítt sem mjöll. Ég hafði hvorki bragðað vott né þurrt 15 stundir, svo að það þurfti ekki að neyða í mig matinn. Þegar ég var að 'ljúka við síðustu pönnukökurnar hennar „Libby frænku“, heyrði ég fótatak fyrir utan og rödd, sem kall- aði: „Libby frænka, Libby frænka! Hvað hefirðu gert af litla hermann- inum mínum?“ Lincoln forseti og yfirforinginn komu inn. Ég stóð þegar upp og heilsaði að hermannasið. „Sittu kyrr, drengur“, sagði for- setinn. „Hún Libby frænka getur gefið okkur Sherry yfirforingja kaffi- sopa, meðan þú segir okkur nánara frá ferðinni“. Forsetinn spurði mig síðan spjör- unum úr. Ég leysti úr öllu eftir mætti. Hann hlustaði með athygli, einkum þegar ég sagði frá móður minni. Hann varð allt í einu alvarlegur á svip, þegar ég sagði, að það væri

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.