Unga Ísland - 01.08.1935, Page 15
UNGA ÍSLANÍ)
Í3Í
dal nærri drukknaður, þó ekki væri
vegalengdin nema sem svaraði 800
metrum.
Ellsworth segir, að sér hafi virst
Amundsen hafa eldst um tíu ár á
þessum fimm dögum. En stjórn hans
var hin fullkomnasta. Tímanum var
skipt nákvæmlega niður til hvíldar,
borðhalds og vinnu við vélina, sem
aðeins hafði frosið niður en ekki
skemmst.
Það var lítið talað, en ótti eða
óreiða var hvergi. Hver vann sitt verk
á þennan stillta og óskeikula hátt,
sem leiddi þá loks til sigurs á döpr-
um kringumstæðum. Það getur eng-
inn gert sér í hugarlund hve ógnandi
aðstæður þeirra voru.
Suður í mannheimum var beðið
nieð óþreyju og gefnar út allskonar
skýringar, því upphaflega var gert
ráð fyrir, að þeir félagar kæmu eftir
tvo daga.
Menn muna ekki eftir mörgum sem
voru öruggir um afturkomu Amund-
sens, en sjálfur var hann sannfærður
um heimkomu sína.
Og Amundsen kom aftur, eftir
mikið erfiði. Þá voru vonir allra um
að hann kæmi fljúgandi, löngu horfn-
ar. — Matarskamturinn hafði verið
minnkaður niður á hálft pund á mann
yfir daginn.
Þann 15. júní höfðu þeir ákveðið
að leggja af stað fótgangandi til
Grænlands, 400 mílna leið, ef þeim
heppnaðist ekki að fá nógu stóra vök
til þess að ná sér upp af. Úr þessu
ferðalagi varð þó ekki; Amundsen
var kyrr. Enginn gat séð fyrir enda
bessarar ferðar, ef farin yrði. Frá
því fyrsta höfðu þeir unnið viðstöðl-
laust að byggingu rennibrautar, sem
ætluð var til þess að ná vélinni upp
af, og 2. júní var hún reynd. Tilraun-
in mistókst, brautin var of brött. Vél-
in skarst niður í brautina, en náði
ekki fluginu.
Amundsen var alla tíma mjög ár-
vakur og um miðnætti nóttina eftir
vakti hann félaga sína með því að
hrópa, að vélin væri að brotna. Brátt
heyrðu þeir hvernig ísinn nerist við
byrðing vélarinnar. Allar föggur sín-
ar fluttu þeir úr vélinni, og nú varð
að byrja á öllu að nýju. Fyrst varð
náttúrlega að bjarga vélinni og síðan
að finna út heppilegan stað fyrir
nýja rennibraut.
Pramhald.
Skrifist á.
Eg undirritaður óska að komast í bréfasam-
band við pilta 9—12 ára í Vestmannaeyjum og
Þingeyjarsýslum.
Jón I. Hannesson,
Brekkukoti, Reykholtsdal, Borgarfjarðars.
Eg' undirritaður óska eftir að komast í
bréfasamband við dreng' eða stúlku, 14—18
ára að aldri, í Snæfellsnessýslu og' Fljótshlið.
Elías Hannesson,
Brekkukoti, Reykholtsdal, Borgarfjarðars.
Eg óska eftir að komast i bréfasamband við
dreng á aldrinum 14—18 ára í Hafnarfirði.
María Jensdóttír,
Ólafsfirði við Eyjafjörð.
I hope to recive some mail of some kind
from somebody in Iceland. If some person
will send their address, I will mail a souvenir
card of Omaha in return.
Will C. Matthews,
2310 Fort. st., Omaha, Nebraska, U. S. A.