Unga Ísland - 01.04.1937, Blaðsíða 7
49
UNGA ÍSLAND
Samfal um heilsufræði
í skólastofu.
Skólahjúkrunarkonan: „Sæl og
blessuð börnin góð“.
Börnin: „Sæl“.
Hans: „Af hverju kemur þú hing-
að? Átt þú að fara að kenna okkur
líka ? “
Hjúkrunark.: „Nei, en kennarinn
ykkar þurfti að skreppa frá, í bili, og
bað mig um að hafa hemil á ykkur
á meðan“.
Gréta: „Viltu þá segja okkur sögu,
ef við verðum stillt og góð?“
Hjúkrunark.: „Það tekur því nú
varla, að fara að byrja á sögu. Þið
skuluð heldur segja mér eitthvað, til
dæmis um það, hvernig þið ætlið að
fara að því að verða sterk og stór, því
það ætlið þið öll að verða. Heilbrigði
og hreysti er fyrir miklu eins og þið
vitið. Sá sem er heilbrigður er betur
undir baráttu lífsins búinn en hinn,
sem er sífelt lasinn og veill. Jæja,
spjallið þið nú við mig og segið mér
hvað þið gerið til að verða hraust“.
Hans: „Við gerum alls ekki neitt“.
Hjúkrunark.: „Jú, jú, þið gerið sitt
af hverju, en þið eruð bara oi'ðin svo
vön því, að þið veitið því ekki eftir-
tekt. Við getum til að mynda tekið
hreinlæti. Gréta, þú getur sagt okkur
hvað þú gerir á morgnana, áður en þú
kemur í skólann“.
Gréta: „Ég þvæ mér vel, bursta
tennur, skola munninn og kverkarn-
ar“.
Hjúkrunark.: „Þarna sjáið þið, þið
þvoið ykkur öll og það verðið þið að
gera vel og vandlega. Vatnið og sáp-
an leysir upp ysta lag húðarinnar og
skolar burt með því svita, óhrein-
indum, sýklum og gerlum. Ef þið
þvoið ykkur ekki daglega, þá situr
þessi óþverri áfram í húðinni, eins
og gráleitt lag og auk þess, sem það
er óþrifalegt og ógeðslegt, þá er það
líka óholt, því það er eitt af störfum
húðarinnar, að skilja út ýms skaðleg
efni, sem myndast stöðugt í líkam-
anum. En það nægir ekki, að þvo
höndur og andlit, ef vel á að vera,
verðið þið, að þvo allan kroppinn
daglega. Hörundið hefir nefnilega
fleiri hlutverk með höndum, meðal
annars það, að halda líkamshitanum
eðlilegum. En til þess, að það starf
gangi vel, þarf að þjálfa og stæla
hörundið á þann hátt að þvo daglega
allan líkamann og nudda vel á eftir.
Þeir sem hafa vel þjálfað hörund eru
ekki kulvísir og ofkælast þessvegna
sjaldan. En af ofkælingu getið þið
fengið kvef, hálsbólgu og jafnvel
lungnabólgu".
Hans: „Ég baða mig á hverjum
degi, en samt er ég vanalega með
óhreinar hendur“.
Hjúkrunark.: „Hraustir krakkar
óhreinkast fljótt á höndunum, því þau
hafa margt fyrir stafni, en munið að
þvo ykkur vel um hendurnar áður en
þið borðið, eins, ef þið farið á sal-
erni, eigið þið ávallt að þvo hendur
ykkar á eftir. Það hefir afar mikla
þýðingu fyrir heilsu ykkar og heil-
brigði, að þessar tvær reglur verði
ykkur að föstum vana. Minnist þess“.
Öll börnin: „Við eigum að þvo
heridur okkar áður en við borðum og
eftir að við höfum farið á kamarinn“.
Hjúkrunark.: „Við það að tennurn-
ar eru burstaðar og munnur og kverk-
ar skolað, þvæst burtu mikið af gerl-