Unga Ísland - 01.04.1937, Blaðsíða 9

Unga Ísland - 01.04.1937, Blaðsíða 9
51 UNGA ÍSLAND má ekkert skólabarn fara að hátta“. Hans: .,Þetta var gott að íheyra; eg er 10 ára, nú má eg vera á fótum til kl. hálf níu. Mamma vill alltaf að eg hátti kl. 8, en þá get eg ekki sofnað strax“. Hjúkrunark.: ,,Segðu mömmu þinni bara frá þessari reglu, þá lofar hún þér líklega að vera lengur á fótum. En meðal annara orða, þið hafið von- andi opinn glugga í svefnherbergjum ykkar. Það er nefnilega miög mikils- vert fyrir heilsuna, að loftið í her- bergjunum sem þið sofið í, endurný- ist. Þið andið frá ykkur lofttegund, sem nefnist kolsýra. en kolsýran er skaðleg ef þið andið henni aftur of- an í lungun, en það er hætta á að svo verði, ef þið eruð lengi í herbergi, sem enga loftræstingu hefir. Opnir gluggar eru ekki hættulegir, síður en svo. Þið ofkælist ekki þó þið sofið fyrir nnnum gluggum, sé þess gætt, að ekki sé dragsúgur í herberginu. En hvað getið þið sagt mér um, hvern- ig bið eigið að klæðast?“ Gréta: „Maður á að klæða sig eft- ir veðráttunni”. Hjúkrunark..: ,,Já. það er jafn slæmt að klæða sig of mikið, eins og að klæða sig of lítið. Séuð þið of mikið dúðuð. rýrnar hæfileiki húðar- innar til að halda jafnvægi á líkams- hitanum. Svo þeim sem of mikið er klæddur, er fullt eins hætt við ofkæl- ingu og hinum, sem er léttara búinn. Þið eigið að klæða ykkur þannig, að vkkur sé notalega heitt. Á vetrum, þegar kalt er í veðri, er hlýrra að vera í ullarbol en silkiskyrtu. Ullin sýgur líka í sig svitann ef ykkur verð- ur of heitt. Fötin eiga að vera nægi- lega víð, svo loftlag sé milli líkamans og fatsins, það er hlýrra. Þið verðið að gæta þess að vera ekki vot í fætur og aldrei megið þið sitja inni í gúmmí- stígvélum". Hans: ,,Mig langar að spyrja um, hvort eg megi koma í skólann, þegar eg er kvefaður“. Hjúkrunark.: ,,Ef þú ert hitalaus og þér finnst þú vera frískur, gerir það þér ekkert til, þó þú fárir í skólann með smávegis kvef. En þú verður að taka tillit til skólasystkina þinna. Þeir hinir sömu sýklar, sem valda kvefi hjá þér, geta kannske orsakað diúpt lungnakvef eða jafnvel lungnabólgu hjá einhverjum félaga biuna, sem veilli er. Þess vegna verður þú að muna að halda fyrir munninn, þegar þú hóstar eða hnerrar og ekki kyssa aðra né taka í hönd þeirra eða handfjattla hluti, sem aðrir þurfa að nota á eftir. En nú heyri eg að kennarinn er að koma og ætla eg því að kveðia vkkur börnin góð. Vona eg að þið munið eftir því, sem við höfuð talað um, og farið eftir því, af fremsta megni. Verið þið blessuð. Eldspýtnaþraut. Taktu 3 spýtur burtu, svo að að- eins verði eftir 5 reitir, allir jafnstór- ir. Svar í næsta blaði. Munið! Gjalddagi blaðsins var fyrsti apríl sl.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.