Unga Ísland - 01.12.1954, Qupperneq 13
kvikmyndahandritið og leikur
eitt aðalhlutverkið.
Erfitt er að spá nokkru um
framtíð þessa unga fyrirtækis
að svo stöddu, en ef aðstand-
endur þess vinna áfram af sama
áhuga og hingað til, er ekki úti-
lokað að þeir geti með tímanum
boðið íslenzkum bömum upp á
kvikmyndir, sem þau skilja og
sem hafa meiri fræðandi og
þroskandi áhrif á þau en mikið
af þeim erlendu barnamyndum,
sem nú tíðkast í kvikmynda-
húsum okkar.
Með snarræði bjarg-ar Nonnl
flugskipfnu, er eldur kemur upp.
SKRÝTLUR.
Líffærafræði.
Eitt úrlausnarefnið í efsta bekk bama-
skólans var ritgerð um líffærafræði. Einn
efnilegur unglingur sendi eftirfarandi rit-
smíð:
„Höfuðið er einhvem veginn kringlótt og
hart, og heilinn er innan í því, og hárið er
utan á því.
Andlitið er framan á höfðinu þar sem
maður etur og grettir sig í framan. Hálsinn
er það, sem heldur höfðinu upp úr kragan-
um. Það er erfitt að halda honum hreinum.
Maginn er svoleiðis, að ef maður borðar
ekki nógu oft, finnur maður til í honum.
Hryggurinn er löng röð af beinum í bakinu,
sem koma í veg fyrir að maður bögglist
saman. Bakið er alltaf fyrir aftan, alveg
sama hve fljótt maður snýr sér við.
Handleggimir em festir við axlimar á
þann hátt, að maður getur slegið bolta og
teygt sig í matinn.
Fingumir standa út úr höndunum svo
maður geti gripið bolta og lagt saman
dæmi á töflu.
Fótleggirnir eru þannig, að ef þú hefðir
ekki tvo, gætirðu ekki hlaupið í boltaleik.
Fætumir em það, sem maður hleypur á,
og tærnar eru það, sem maður rekur í. Og
þetta er allt, sem er á manni, nema það,
sem er innan í, og það hef ég aldrei séð.“
Bréfið.
Hún Sigríður var orðin ósköp áhyggju-
full út af Jóni litla syni sínum, sem var
farinn í heimavistarskóla. Það vora liðnar
nokkrar vikur án þess að hann hefði skrif-
að. Svo kom allt í einu bréf, sem hljóðaði
svo: „Elsku mamma. Mér er sagt að skrifa
bréf til þín. Ég bið að heilsa öllum. Vertu
sæl. Jón.“
UNGA ISLAND
9