Unga Ísland - 01.12.1954, Side 17
Kanntu rett krosssaumsspor
Nokkrar ungar „hannyrðakonur" hafa
skrifað Unga íslandi og beðið um myndir,
er sýni rétt saumuð krossspor. Benda þær
á, að ekki fari allir eins að.
Hér eru sýndar nokkrar aðferðir, sem al-
mennt eru taldar réttar.
Saumað er frá vinstri til hægri. Á 1.
mynd er sýnt, hvemig undirsporið er saum-
að, en á 2. mynd er verið að sauma yfirspor-
ið. Þannig er farið að, þegar sporin eiga að
liggja í láréttri röð (sjá nánar 5. mynd).
Yfirsporin eru saumuð frá hægri til vinstri.
Á 3. mynd er verið að sauma spor, sem
liggur á ská upp á við. Þegar næsta spor er
saumað þama, er nálinni stungið niður við
Blómakörfu þessa er mjög auðvelt að
teikna upp og stækka, því það er ekki nauð-
synlegt að blómunum sé raðað nákvæmlega
á sama hátt og hér er sýnt.
Karfan sjálf, haldið og leggirnir tveir er
saumað með kontórsting (leggsaumi). En
takið eftir því, að blómin vinstra megin
eru saumuð á annan veg en þau, sem em
hægra megin.
Vinstra megin við körfuna (A3) er sýnt,
hvemig blómið er saumað. í miðið em
nokkrir fræhnútar. Sýnishornin tvö fyrir
ofan eiga við blómin hægra megin. A1 er
“saumað með löngum kappmellusporum
(tungusporum), en A2 sýnir venjulegan
flatsaum.
Þið kunnið sjálfsagt að sauma venjuleg-
an flatsaum. En reynið að sauma blöð með
fjaðursaumi. Á mynd A4 er aðferðin sýnd.
Nálinni er stungið niður í miðju blaði'og
út aftur við jaðrana á víxl.
Þríhyrningurinn umhverfis körfuna er
saumaður með kappmelluspori (tungu-
spori).
svarta depilinn (sem örin A bendir á), en
upp við B.
Á 4. m. er verið að sauma skáspor niður á
við. Þegar nýtt spor er saumað, er stungið
niður við A, en upp við B. Myndin sýnir,
hvernig lokið er við spor og byrjað á nýju.
Athugið myndirnar vel og reynið að
sauma undir og yfirspor eftir þessum regl-
um.
UNGA ÍSLAND
13