Unga Ísland - 01.12.1954, Qupperneq 27
Frímerkjaklúbbur Unga íslands
Jólamerki
Það er gaman að minnast þess nú, að
fyrir hálfri öld — árið 1904 — voru fyrstu
jólamerki veraldárinnar gefin út. Danskur
maður átti hugmyndina. Þetta sama ár var
fyrsta íslenzka jólamerkið gefið út af
Hvítabandinu; grár fálki á bláum skildi,
með orðunum: „Barnahæli, Caritas“, en
Caritas þýðir kærleikur.
Árið 1913 tók Thorvaldsensfélagið að sér
útgáfu jólamerkjanna og hefur gefið þau
út síðan til ágóða fyrir barnauppeldsissjóð
félagsins.
Á árinu sem leið var haldin frímerkja-
sýning í Danmörku í tilefni þessa merka
afmælis. Og sýningin hlaut einmitt nafnið
„Caritas", eftir fyrsta íslenzka merkinu.
Fyrsta sænska jólamerkið kom einnig út
1904, norska merkið 1906 og fyrsta finnska
jólamerkið 1912.
Mörg íslenzku merkjanna eru uppseld
fyrir löngu, en rúmlega 30 merki eru þó
enn fáanleg.
Úrslit í
verðlaunagetrauninni
Alls hafa Sameinuðu þjóðirnar gefið út
30 tegundir frímerkja.
Enginn hitti á rétta tölu, en Skúli Þ.
Jónsson, Melum, Kópaskeri, N.-Þing., varð
hlutskarpastur, — gat upp á 23 tegundum.
Hann fær því fyrsta-dags umslagið frá
bækistöðvum Sameinuðu þjóðanna í New
York, — „Mannréttindadagur S. Þ.“, útg.
1953, og er mynd af einu þeirra hérna, (3c).
Önnur verðlaun'hlaut Óli H. Þórðarson,
Kleppjárnsreykjum, Reykholtsdal, Borgar-
firði. Hann giskaði á töluna 21 og fær 2
flugmerki útgefin 1951. Mynd af öðru
merkinu er prentað héma (15c).
Þriðju verðlaun hlaut Herbert Guð-
mundssonr Einarsnesi, Blönduósif A.-Hún.
Hann tilnefndi töluna 19. Hann fær frí-
merkið „Barnahjálp S.Þ.“ (5c), með mynd
af hendi fullorðins manns, sem heldur um
barnshendi, gefið út 1951; og ennfremur
merki með fána S.Þ.
Unga ísland þakkar öllum þeim, er þátt
tóku í getrauninni og óskar þeim til ham-
ingju, sem verðlaun hlutu.
Skrýtla.
Kennarinn: „Geturðu sagt mér, hvaða
not við höfum að vatninu?"
Nemandinn (sem er mikið íþróttamanns-
efni): „Ja — ef við hefðum ekki vatnið,
gætum við ekki synt, og*ef við kynnum
ekki að synda, gætum við drukknað.“
23
U3STGA ÍSLAND