Unga Ísland - 01.12.1954, Blaðsíða 34
t'g sá ókunna manninn fá honum peninga.
] ’abbi! Pabbi!“
Pabbi tók hann í fangið og þrýsti litla,
t .trandi kroppnum upp að sér.
„Svona, svona ... drengur minn, hann
hífur sjálfsagt ekki ætlað að gera þér neitt
il t. Hvað gerðirðu af þér, fyrst Erlingur
frændi varð svona reiður við þig?“
Meðan faðir hans bar hann heim, sagði
Finnur pabba sínum kjökrandi frá ókunna
manninum og spilinu og peningunum, og
hvernig Erlingur frændi hefði gripið um
hálsinn á honum og hlaupið eftir honum út
á ísinn.
,,Hvar í ósköpunum hefurðu verið?“
stundi mamma hans, þegar þeir komu
heim. „Hvernig geturðu fengið af þér að
gera rpig svona hrædda?“
„Hann virðist hafa fengið taugaáfall,“
sa jði pabbi. „Ég skil ekki, hvað getur hafa
komið fyrir, en hann heldur því fram, að
Erlingur frændi hafi elt hann út á ísinn og
æt'að að slá hann eða kyrkja.“
Mamma fór að afklæða vota og þrekaða
dronginn sinn.
„Ég skil það ekki,“ sagði hún við pabba.
„É j símaði til Erlings fyrir hálftíma, og
hann sagðist ekki hafa séð Finn.“
i'vo reyndi pabbi að hringja til Erlings
frænda, en það var ekki svarað. Og þegar
Firnur hafði fengið heitt að drekka og rúm-
ið lians hafði verið flutt inn í stofuna, þar
sem jólatréð stóð, sagði hann alla söguna
í Ijósara máli. Mamma var orðin náföl, og
pabbi stóð með kreppta hnefa og var ákaf-
leg;i reiður á svipinn.
„Erlingur," sagði hann. ,„Hann var sá
síðasti, sem ég hefði grunað um slíkt. Það
er 1 ezt að ég hringi í lögregluna, en senni-
leg.o eru engar líkur til þess, að hann hafi
kondzt upp úr. ... “
Pann þagnaði, þegar mamma lagði fing-
urna á munninn og hnykkti höfðinu í átt-
ina til Finns.
„Pabbi,“ sagði drengurinn og hnerraði
ofbi'ðslega, „refsar Erlingur frændi mér,
þeg ir ég sé hann næst?“
„Nei, vertu alveg rólegur þess vegna,
drengur minn, hann getur áreiðanlega
aldrei framar gert þér illt. ... Hvað lang-
ar þig mest af öllu til að eignast, Finnur
minn?“
„Stórt reiðhjól með bjöllu,“ svaraði
Finnur án þess að hugsa sig um.
Pabbi klappaði honum á kinnina.
„Þú skalt líka fá það, Finnur. Ég ætla að
aka út til reiðhjólaverzlunarinnar, og kaup-
maðurinn, sem býr þar á efri hæðinni, skal
fá að opna búðina og selja mér reiðhjól,
jafnvel þó að það sé aðfangadagskvöld.“
„Ég verð að fara fram og gá að matn-
um,“ sagði mamma og þurrkaði sér um
augun.
„Þið megið ekki byrja að borða, fyrr en
ég kem aftur,“ sagði pabbi og gekk fram
og fór í frakkann.
„Pabbi, pabbi!“ hrópaði Finnur á eftir
honum.
„Já, hvað er það, drengur minn?“
„Heldurðu — heldurðu, að hann hafi
rautt reiðhjól í búðinni?"
'---------------------------------------
Gleöileg jól. Farsælt nýár!
VERKSMIÐJA REYKDALS,
Hafnarfirði
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUIMIISI VÖXTUR,
Öldugötu 29, Hafnarfirði
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
Verzl. Jóhannesar Gunnarssonar,
Strandgötu 19, Hafnarfirði
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
Verzlun Geirs Jóelssonar,
Strandgötu 21, Hafnarfirði
-----------------------------
30
UNGA ÍSLAND