Alþýðublaðið - 05.02.1924, Blaðsíða 1
1924
Erlend sQnskejtL
Khöfn, 4. febr.
Wilson látinn.
Wilson fyrrverandi Bandaríkja-
forseti andaðist í gær um miðjan
dag að því, er segir í símskeyti
frá Washington.
Eftirmaðar Lenins.
Frá Moskva er símað: Eáð-
stefna helztu ráðstjórnarveldanna
heflr í gær kosið Rykov þjóðfull-
trúa fyiir eftirmann Lenins sem
formann þjóðfulltrúaráðsins og
sambandsráðs ráðstjórnar-lýðveld-
anna.
Kamenev heflr verið kosinn
eftirmaður Rykovs, en Tschitcherin
utanríkisfulltrúi. Trotsky heflr verið
kosinn hermálafulltrúi, en Sokolni-
kov fjármálafulltrúi.
[Alexei Ivanovitsj Rykov er
fæddur 1881 í Saratoff var fyrst
skjalaþýðari, fór til útlanda 1908,
en er hann kom heim, var hann
tekinn fastur og dæmdur í útlegð
1. febr. 1910 til Archangelsk;
flýði hann þaðan, en var aftur
tekinn í dezember 1910 og sendur
í útlegð til Marinski, en slapp til
útlanda 1914. Hann var innan--
ríkismálafulltrúi í fyrsta þjóðfull-
trúaráðinu og nú síðast formaður
stjórnarflokksins rússneska (meiri-
hluta-jafnaðarmanna, >bolsivíka<)
en við því starfl heflr nú Kamenev
tekið.j
Innlend tíðindi.
(Frá fíéttastofanni.)
Stykkishólmi, 4, febr.
Vélbáturinn >Bliki«, sem ekkéit
heflr spurst til síðan á þriðjudag-
inn var, er nú talinn af. Þykir
líklegt, að hann hafl rekið upp á
Þriðjudagina 5. febrúar.
30. tölublað.
Or’úsending til Hafnflrðinga.
Undanfarlc tvö ár hefir Samverjinn f Hafnarfirði starfað að því
að gefa fátækuro törnum að borða, og hefir það sýnt sig, að þess
hefir verið fullkomlega þörf.
En eins og þér vltlð, þá er það yður að þakka, að það hefir
verið 'hægt að frámkv^ema þetta starf. Nú hefir verið byrjað í þriðja
sinn með lítil efni, eins og vant er, i þeirri von, að þér munið snúast
vel við eins og að undanförnu.
Undanfarin tvö ár hefir Samverjinn starfað í tvo mánuði árlega;
nú hefir hann að eins starfað í þrjár vikur eg verður að hætta í
þessari viku, komi honum ekki hjálp.
Þess vegna eru það vlnsamleg tilmæli vor, að ef þér hafið
ákveðið að styrkja hann á þessu ári með einhverri gjöi, að þér
dragið það ekki fram yfir næstu he’gi; látið oss að eins vite í sfma
83, ef þér getið sint þessa að elnhverju ieyti.
Öil hjálp, í hvaða mynd sem er, verður þegin með þökkum.
Virðingarfylst.
Stjórn Samverjans.
sker og farist þar með allri áhöfn,
7 mönnum.
Þegsir menn voru á bátnum:
Sigvaldi Valentínusson hafnsögu-
maður í Stykkishólmi, formaöúr
bátsins, Var hannkvæntur maöur,
40 — 45 ára og átti 3 börn stálp-
uð, Þorvarður Helgason, Hannes
Gíslason, maður yflr þrítugt og
lætur eftir sig 3 börn, Guðjón
Guðlaugsson, kvæntur og lætur
eftir sig 1 barn, Guðmundur Ste-
fánsson 18 ára unglingur, Krist-
inn Stefánsson, una tvítugt, og
Kristján Bjarnason, kvæntur mað-
ur, eu barnlaus.
Gullfoss hefir legiö hér í dag,
en kemst ekki að bryggjunni
vegna roks. Fer hann til Flateyjar
í fyrra málið og kemur hingað
aftur annað kvöld.
Vik, 4. febr,
í rokinu í síðustu viku fauk
heyhlaða á Söndum í Meðallandi
og állmikið af heyi. f sama veðr-
inu fauk önnur hlaða í Álfta-
verinu, og hafa allmiklar skemdir
aðrar orðið þar í sveit.
Rjómabúið á Deildará í Mýrdal,
sem ekki heflr starfað nokkur
Stðrf við Alþingi.
Umsóknir um störf við Alþingi
eiga að vera komnar til skrifstofu
þingsins í síðasta lagi 10. þ. m.,
og skulu þær vera skriflegar og
stílaðar til forseta.
undanfarin ár, ællar að byrja aftur
í sumar.
5. febr,
Joseph Larsen skipstjóri á >ís-
landi< va>ð bráðkvaddur í nótt, á
leið hér inn flóann. Hafbi hann
ætlaö að fara að sofa ki. 11 í
gærkveldi, en beðið um að vekja
Big, ef veöur versnaði. Einni
stundu siðar kom stýrimaður inn
tii hans, og var hann þá örendur.
Skipið hefir fengið óvenju vont
veöur í þessari ferð og skipstjóri
orðið að reyna afarmikið á sig.
Er sennilegt, að það hafl flýtt
fyrir dauða hans, því hann var
maður fremur heilsutæpur. Larsen
heitinn mun hafa veriÖ í sigling-
um hingað um 25 ár, fyrst í
strandferðum og síðan í millilanda-
siglingum, og þótti dugandi skip-
stjóri og gætinn.