Verktækni - 25.01.1988, Blaðsíða 8
FÉLAGSFRÉTTIR
Árangurinn þekkja allir. Það er ekki
fyrr en horfið var frá þessum tölum og
farið að ræða aðrar nokkru lægri og
raunhæfari tölur að áhugi vaknaði hjá
erlendum aðilum um þátttöku í bygg-
ingu ktsilmálmverksmiðjunnar á
Reyðarfirði.''
Meðalverð 1986 til ÍSAL var 12,6
mill/kWst, en það er sambærilegt og
í helstu samkeþpnislöndunum, ef
undan er skilið Kanada þar sem raf-
orkuverð er verulega lægra.
„Staðsetning miðja vegu milli
Evrópu og Ameríku, tveggja mikil-
vægustu markaða fyrir málma og toll-
frjálsa aðgangur að mörkuðum í
Evrópu styrkir samkeppnisstððu
verksmiðju hér á landi."
,,Þótt raforkuverðið sé mikilvægasti
innlendi kostnaðarliðurinn í rekstri
orkufreks iðnaðar þá skiptir annar
innlendur kostnaður einnig verulegu
máli. Af rekstrarkostnaði án fjár-
magnskostnaðar er launakostnaður á
bilinu 10-20% og annar rekstrar-
kostnaður, sem að nokkrum hlut er
innlendur, 10-15%. Af byggingar-
kostnaði má gera ráð fyrir því að 35-
45% sé innlendur kostnaður."
,,Ef könnuð er innlend kostnaðar-
þróun undanfarinna ára kemur í Ijós
að þróunin hefur verið mjög óhag-
stæð og veikt mjög samkeppnisstöðu
okkar. Byggingarkostnaður t. d. ál-
vers á íslandi hefur hækkað um 15-
20% frá því 1983-1984 og fer ört
hækkandi."
„Löngum hefur verið talið að laun
á islandi væru lægri en í flestum
nágrannalöndum okkar, en það virð-
ist nú ekki lengur vera til staðar. Á
árinu 1982-1985 var kostnaður á
vinnuklukkustund í orkufrekum iðnaði
hérlendis 10-13 $/klst. Er þá reikn-
aður allur kostnaður er til fellur vegna
starfssmanna, laun, launatengd
gjöld, fatnaður, matur o. fl. Nú á árinu
1987 er þessi kostnaður nálægt 19
$/klst. og miðað við óbreyttar for-
sendur um gengi má gera ráð fyrir
því að á næsta ári verði þessi kostn-
aður yfir 21 $/klst.“ Sjá meðfylgjandi
mynd sem sýnir samanburð við önn-
ur lönd.
Geir gagnrýndi tilveru ráðherra-
skipaðra „stóriðjunefnda" og val ís-
lenskra manna í stjórn stóriðjufyrir-
tækja. Þar skorti oft nokkuð á þekk-
ingu og reynslu.
,,Á (Dessu fyrirkomulagi er nauð-
synlegt að verði breyting. Setja ætti
saman á einum stað, annað hvort í
sérstöku fyrirtæki, eða deild í iðnað-
arráðuneytingu öll mál varðandi stór-
iðju og orkufrekann iðnað. Þar yrði
unnið að markaðsöflun, samningum,
rekstri þeirra fyrirtækja er viö eigum
hlut í og eftirlit með fyrirtækjum í eigu
annarra. Meö sliku fyrirkomulagi yrði
tryggð betri samfelldni í starfi. Þeir
sömu og sætu í stjórn núverandi fyrir-
tækja ynnu að markaðsöflun og
samningum við nýja aðila, og nýttu
þannig reynslu sína úr rekstri fyrir-
tækjanna til að vinna að og meta nýja
möguleika. Slík vinnubrögð væru
markvissari en núverandi fyrirkomu-
lag, tryggðu betur hagsmuni íslend-
inga og skiluðu betri árangri.''
,,Það viðhorf hefur verið ríkjandi
hér á landi að íslendingar ættu að
eiga orkuverin en erlendir aðilar iðju-
verin. En er þetta sú stefna sem skilar
mestum arði? Er rétt að binda fé okk-
ar ( framkvæmdum þar sem viðun-
andi arðsemi án skatta er talin 6% og
endurgreiðslutími fjármagns 30 til 40
ár. Láta jafnframt öðrum eftir að eiga
þann hluta verkefnisins sem ekki er
ráðist í nema taliö sé nokkuð tryggt
að arðsemi verði 10-15% eftir sköttun
og endurgreiðslutími fjármagns innan
við 10 ár. I þessu sambandi ber aö
hafa í huga aö fjárfesting í virkjun og
verksmiöju er af sömu stæröargráöu.
Er ekki ástæöa til aö taka tii athug-
unar þann möguieika að bjóða virkj-
un og verksmiðju sem einn pakka?
Hlutdeild íslendinga I heildardæminu
væri sú sama og verið hefði hefðu
þeir byggt virkjunina eina. Að nokkr-
um áratugum liðnum félli svo bæði
verksmiðja og virkjun til íslendinga.
Með þessu næðum við aukinni arð-
semi á okkar eigið fé. Fyrir hina er-
lendu aðila væri eytt allri óvissu um
hugsanlega hækkun orkuverðs til
iðjuversins. Tilboð sem þetta vekti án
efa athygli erlendra fjárfestingaraðila
og styrkti stöðu okkar I samkeppni
LAUNAKOSTNAÐUR í ORKUFREKUM IÐNAÐI
1986
Hitastrengir til margra nota
Erum með
á lager hita-
strengi til
margvís-
legra nota.
Auðveldir í
uppsetningu.
Hitastrengir til gólf-
hitunar
t.d. flísagólf, forstof-
ur, arinstofur, hað-
herhergi, tröppur o.fl.
Leitið nánari upplýsinga
Hitastrengir til jarð-
vegshitunar, sólstof-
ur, garðhús, garðreiti.
Hitastrengir til frost-
varna
pakrennur, gangstétt-
ar, niðurföll.
HAFNARFIRÐI LÆKJARGÖTU 22
50022
8
VERKTÆKNI — 25. JANUAR 1988