Verktækni - 25.01.1988, Blaðsíða 17

Verktækni - 25.01.1988, Blaðsíða 17
VÖRUKYNNING Nýr notendaaðgangur Aðgangur að stýrikerfinu PC-DOS er í gegnum skipanalínu sem var full- boðlegur staðall á árinu 1979. ( dag vilja notendur ekki þurfa aö hafa áhyggjur af því hvernig á að slá inn skipanir. Þeir vilja til dæmis nota ,,mús" til að flýta fyrir vinnslu. OS/2 hefur nýjan notendaaðgang. Notandi getur valið úr röð skipana meö ein- faldri aðgerð. DOS skipanir eru þann- ig valdar með ,,mús“, úr skjámynd. Verja forrit og stýrikerfi hvort fyrir öðru Forritun er í eðli sínu þróunarvinna þar sem forritari er að prófa sig áfram með hugmyndir. Eins og gefur að skilja eru mistök algeng. Forritið skrif- ar óvart yfir stýrikerfið sem þá lognast útaf. Villur í forritum geta truflað stýri- kerfið, jafnvel þannig að skrár týnist. OS/2 gerir betur. Minni er varið þann- ig að hvorki forrit né stýrikekrfið sjálft geta breytt kóða. Örgjörvinn sér sjálf- ur um alla minnisverndun. Hins vegar geta forrit breytt sínum eigin gögnum og stýrikerfið getur breytt öllum gögnum. En um leið og eitthvert forrit reynir að breyta kóða eða gögnum annars forrits er forritið stöðvað. Nýta allt það afl sem er í ör- gjörvanum 80286 PC-DOS var skrifaður fyrir örgjörv- an Intel 8088 og sá örgjörvi notaði raunminni. Þar að auki er ekki um að ræða neina minnisverndun. Örgjörv- inn 80286 getur hins vegar unnið á tvennan hátt. Annars vegar sem stóri bróöir 8088 í,,real mode" með sömu takmörkunum eða I „protected mode" sem er næsta skref í þróun- inni þar sem minnisverndun er ( ör- gjörvanum sjálfum og vinnsluminni er mikið stærra. Tilvísun í „protected mode" er ekki raunveruleg tilvísun heldur er tilvísun reiknuð út frá þess- ari tölu. PC í net tengingu og ,,gateway“ Forrit hámark 120K IBM PC 3270 emulaltion 210K IBM PC NETWORK 210K PC DOS 75K Dœml um takmarkanir DOS kerfisins, þegar t. d. net & hermiforrit eru keyrð samhilða. Fylgja staðlinum SAA SAA staðall samanstendur af nokkrum megin þáttum: — Sameiginlegur notandaaðgang- ur. — Sameiginlegur forritunarstaðall. — Sameiginlegur samskiptastaðall. SAA er svar IBM við óskum not- enda um samvinnu mismunandi tölvukerfa frá IBM. ( dag býður IBM viðskiptavinum sínum upp á þrjár mismunandi tölvugerðir sem allar hafa sína kosti. Forritun undir SAA staöli gerir forritara kleift að skrifa hugbúnað á sína eigin vél, flytja hann síðan yfir á aðrar IBM-vélar án veru- legra breytinga. Notandi getur því lært á forritakerfi eða tölvuverkefni á einni vélagerð og fært sig síðar yfir á aðra án þess að þurfa að læra allt að nýju. Einfalda forritun OS/2 er hluti af SAA staðli sem þýð- ir að forritun á að fylgja ákveðnum reglum, sem mun einfalda forritunar- vinnuna. OS/2 er þar að auki með „Application Programing Interface" (API) sem er staðlaður aðgangur for- ritara að stýrikerfinu. Með því að nota API getur forritari á einfaldan hátt framkvæmt allar algengustu forrit- unaraðgerðir í stað þess að þurfa að finna sjálfur upp hjólið í hvert sinn. OS/2, 16 sýndarskjáir. 512-640k OS/2 minni. forrit Stöðvar 16 M. bakg. + Virtual Eitt OS/2 forrit forrit 16 M PC DOS + Virtual Dæmi um sklptingu vlnnsluminnis I OS/2, ein DOS-vél og allt að 15 OS/2 vélar. Setja algengustu notenda- forrit inn í stýrikerfið Þriðja útgáfa OS/2 (OS/2 Extended Editition) kemur með eftirtalin forrit innbyggð í stýrikerfið: SQL sem er gagnagrunnur og fyrirspurnarkerfi er einnig fylgir staðlinum SAA. Sam- skiptahugbúnað fyrir staðal IBM- 3270, ASYNCH/ASCII og fleiri. Með þessu móti er búið að setja þann hugbúnað sem mest er notaður inn í stýrikerfið strax og auðveldar þetta notendum að hafa samskipti sfn á milli þar sem margir verða með sama grunnhugbúnaðinn. Einfalda skjávinnslu með gluggakerfi Gluggakerfi er innbyggt í OS/2. t>að þýðir að hægt er að einfalda vinnslu flestra forrita. Gluggakerfið gerir not anda kleift að fylgjast með vinnslu nokkurra forrita í senn án þess að hafa áhrif á vinnslu þeirra. Forritin halda öll að þau eigi allan skjáinn. Þar að auki getur notandinn fært á einfaldan hátt gögn á milli for- rita. Gluggakerfið gerir notanda Ifka OS/2 SE 1.1 og nýrri. LOTUS j- SQL | SYSTEM/3x skjár | Please check prinler Dæmi um skjámynd þegar unnið er f OS/2. mögulegt að velja sér forrit til vinnslu án þess að þurfa að muna hvernig á að slá inn allar skipanir. Þvf er hægt að velja sér forrit með mús og láta stýrikerfiö sjá um að útfæra skipunina nánar. n NÝTT UM STAÐLA NÝR TÖLVU- STAÐALL ISO 8859/1-1987 — Information processing — 8-bit single-byte coded graphic character sets — Part 1: Latin alphabet No. 1, er hér með sendur til gagnrýni sem íslenskur staðall. Gagnrýnistimanum lýkur 29. febrúar 1988 og verður staðallinn þá staðfestur og gefinn út ef ekki berast veigamikil mótmæli við því. Einfalda yfirfærslu notenda á OS/2 Til þess að auðvelda yfirfærslu frá PC-DOS á OS/2 var búin til „DOS- vél" inn f OS/2. Þetta þýðir að not- andi getur keyrt sín gömlu forrit í hluta stýrikerfisins. Þannig þarf ekki að kasta öllum gamla hugbúnaöinum fyrir róða heldur er hægt að fikra sig áfram hægt og rólega yfir í OS/2. □ Guðmundur Hannesson, rekstrarhag- fræðingur. Hefur unnið hjá IBM síðan 1974, m. a. sem kerfisfræðingur, sölu- maður, deildarstjóri kerfísfræði-, sölu og PC deild. Helgi Pétursson, tölvunarfræðingur. Hefur unnið hjá EBM síðan 1985, fyrst sem sérfræðingur PC deild, síðan sem kerfísfræðingur í Kerfísfræðideild. Allar nánari upplýsingar er aö fá hjá Jóhannesi Þorsteinssyni, deild- arstjóra Staðladeild löntæknistofn- unar (slands, Keldnaholti, Reykjavík, sími: 91-687000. □ J.Þ. Rb-FRÉTTIR Nýlega kom út 2. tölublað Rb- frétta. Það hefur að aeyma udd- lýsingar um ný RB-bioð, serrn, skýrslur og greinargerðir sem gefnar eru út á þeirra vegum. Nánari upplýsingar fást hjá Rb, Keldnaholti, sfmi 91-83200. ÍSLENSKA VATNAFRÆÐINEFNDIN Heimilisfang: Orkustofnun, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík Sími 83600 Nánari upplýsingar: Miljastyrelsen The Danish Watercouncil National Agency of Environmental Protection Strandgade 29 DK-1401 Copenhagen K. Denmark VERKTÆKNI — 25. JANÚAR 1988 13

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.