Verktækni - 25.01.1988, Blaðsíða 19

Verktækni - 25.01.1988, Blaðsíða 19
Steinsteypufélag íslands Steinsteypudagur 1988 Steinsteypufélag íslands heldur nú, 5. febrúar nk., I annaö sinn eins dags ráöstefnu undir heitinu Steinsteypudagur. Aö þessu sinni verö- ur ráöstefnan haldin aö hótei Hoiiday Inn. Þátttökugjald er kr. 4.500,- fyrir félagsmenn, en kr. 5.500,- fyrir aöra. Innifaliö er mappa meö fyrirlestrum, matur, kaffi og aörar veitingar. Þátttöku skal tilkynna í síma 91-40098 fyrir kl. 12 þriöjudaginn 2. febrúar. Dagskrá verður eftirfarandi: 08.00 Skráning og afhending gagna. 09.00 Setning Steinsteypudags 1988. Hákon Ólafsson, formaður Steinsteypufélags íslands. I. Gæði steinsteypu. 09.10 Gæöi, hvaö er þaö? Gunnar Guðmundsson, formaður Gæðastjórnunarfélags íslands. — Fjallað veröur um hugtakið gæði og gæðastýr- ingu I framleiðsluiönaði. 09.30 Gæöi steyptra mannvirkja á íslandi fyrr og nú — framtíöar- horfur. Hákon Ólafsson, forstjóri Rb. — Fjallað verður um breyting- ar í steypu- og mannvirkjagerö, niöurstöður ástandskann- anna og framtíðarhorfur með tilliti til aukinnar þekkingar. 10.00 Vatnsfælur — veörunarþol. — Hvar gera vatnsfælur mest gagn? Jón Gestsson, tæknifræðingur hjá Rb. — Greint verður frá niðurstööum rannsókna á þessu sviði. 10.30 Umræöur — Kaffihlé. 10.50 Fjaöurstuöull íslenskrar steinsteypu. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, verkfræöingur hjá Landsvirkjun. Greint verður frá mælingum á fjaöurstuðli steypu með mis- munandi fylliefnum og borið saman við þrýstiþol og erlenda staöla. II. 10 Múr og múrhúöir — gæöamat og blöndunarhlutföll. Haraldur Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Rb. — Greint verður frá nýlegum rannsóknum á þessu sviöi og helstu niðurstöður kynntar. 11.30 Sprungur í nýrri steinsteypu og múr — ástandskönnun. Sigurður Guömundsson, verkfr. hjá Fjölhönnun hf. Skoöuö voru 90 hús byggð 1986-1987 og útveggir skoöaðir með tilliti til ýmissa galla. Helstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar. 11.50 Umræöur — Matarhlé. 2. Steinsteypa — margbrotið efni, fjölþættir notKunarmoguleikar. 13.15 Hástyrkleikasteypa. Finn Fluge, forstjóri Betokem í Noregi. — Greint verður frá þróun hástyrkleikasteypu í Noregi, framleiðslutækni, reynslu og framtíðarhorfum. Sýnd verða dæmi um notkun hástyrk- leikasteypu í mannvirkjum. 14.00 Nýting hástyrkleikasteypu á íslandi — hverjir eru möguleik- arnir? Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur hjá Línuhönnun. — Hástyrkleikasteypa hefur bæöi kosti og galla. Fjallað verður um möguleikana á að nýta kostina í mannvirkjum á íslandi á hagkvæman hátt og breikka notkunarsvið steinsteypu. 14.45 Umræöur —- Kaffihlé. 15.15 Undirvatnssteypa. Pétur Ingólfsson, yfirverkfræðingur hjá Vr. — Ný steypuí- blendi hafa nánast valdið byltingu í undirvatnssteypu. Greint veröur frá reynslu Vr á þessu sviði. 15.45 Þjöppuö þurrsteypa. Guömundur Guömundsson, forstjóri SR. — Er þjöppuð þurrsteypa raunhæfur kostur í vega- og stíflugerö? Greint veröur frá tilraunum hér á landi og þróun á þessu sviði erlendis. 16.15 Umræöur — Hlé. 16.30 Steinsteypufélag íslands veitir viöurkenningu fyrir störf á sviöi steinsteypu. Óformlegar umræður — Léttar veitingar. 17.30 Steinsteypudegi 1988 slitiö. FRÁ ORÐANEFND BYGGINGARVERKFRÆÐINGA Orð, sem verkfræðingar og tæknifræðingar taka sér oft í munn, er ,,að dímensjónera“ eitthvað. Þetta er heldur leiðinleg sletta úr dönsku, at dimensionere, en í dönskuna er hún komin úr þýsku, zu dimensionieren. Orðanefnd skilgreinir hugtakið þannig: „Hluti af hönn- un: að ákvarða með reikningi eitt eða fleiri stærðarmál, að gefnum forsendum''. Með því er þá átt við, að í hönnunarverkinu sé þegar búið að ákveða í meginatriðum tilhögun kerfist eða form mannvirkis, en eftir sé að reikna stærðir á einstökum hlutum, t.d. leiðslum eöa hlutum úr burðarvirki og slá þeim föstum. Hið síðar talda er þá dímensjónering og er hluti af hönnuninni. Orðanefnd leggur til, að tekið verði upp áhrifssögnin að stærða, t.d. aö stærða rörleiöslu eöa burðarbita i húsi. Við teljum ekki æskilegt að nota að stærða um það að ákvarða t.d. gildleika á borðfæti; það er aö vísu hluti af hönnun, en ekki gert með reikningi. Þá má mynda sagnorðin að ofstærða og að vanstærða. Að of- stærða þýðir þá að ákvarða stærðarmál við hönnun þannig, að það sé stærra en vera þyrfti samkvæmt reikningi. Dönsk orð eru ,,at over- dimensionere" og ,,at underdimensionere". Síðan má mynda lýsingarorðið stærðandi um það, sem er ákvarð- andi um stærð við hönnun, t.d. um regnskúr, sem er stærðandi fyrir þversnið fráveituleiðslu við hönnun hennar. Loks er stæröun fyrir danska orðiö dimensionering. Stærðun frá- veituleiðslu gæti þá verið reikningsleg ákvörðun á þversniði fráveitu- leiðslu, aö gefnum halla, hrýfi og þörf á rennslisrýmd. Gott væri að fá að heyra, hvernig mönnun falla nýyrðin, sem kynnt eru í þessum orðabelg. Þaö hefur lengi tíðkast að loftræsa skólpleiðslukerfi í húsi með því að leggja frá því loftræsileiðslu, sem nær upp úr þaki hússins. Sú loft- ræsting er reyndar ekki til þess ætluð að bæta loftið í leiðslunum, heldur til þess aö draga úr loftþrýstingsbrigðum í þeim, svo að vatn sogist ekki út úr vatnslásum þrifatækja. Stundum hentar þó ekki að leggja loftrásina upp í gegnum þakið. Iðntæknistofnun íslands hefur gefið út staðal ÍST 68 um fráveitulagnir í húsum. Samkvæmt honum þarf ekki að leggja loftrás upp fyrir þak, ef á henni er viðurkenndur loki, sem kemur i veg fyrir aö loft streymi út úr henni. Ekki er þó heimilt að nota þess háttar loka í hvaða landi sem er, en hér má kaupa þá í verslunum og ganga þeir undir furðu mörgum nöfnum. Ég hef heyrt 12 nöfn, þ. á m. Durgo-ventill. Durgo er bara nafn sænskrar verksmiðju. Orðanefndin leggur til, að slfkur loki verði nefndur loftsogslokl. Það er sjálfvirkur loki á loftræstileiðslu fráveitulagnar, sem opnast og hleypir lofti inn f leiðsluna, ef undirþrýstingur verður I henni, en lokast, þegar þrýstingsjafnvægi er komið á. Fyrr á þessu ári ræddi Glsli Júlíusson úr orðanefnd rafmagnsverk- fræðinga um oröin tilgængelig (danska) og accessible (enska) og auglýsti eftir hugmyndum um íslensk orð fyrir þau og nafnorð dregin af þeim. Orðanefnd okkar hafði áður fjallað um þessi orð i sambandi við leiðslur, sem auðvelt er að komast að. Orðin aðgengilegur og aðgengileiki eru þegar til í málinu og einnig tilgengilegur f gömlu máli. Okkur finnst aðkvæmur vera fegurra: aðkvæm leiðsla. Nafnorð dregið af þvl er aðkvæml (kvenkyns), en ekki aðkvæmni, vegna þess að lýsingarorðið endar á -ur. Neikvætt lýsingarorð er óaðkvæmur: óaökvæm leiðsla. Höfundur er Halldór Halldórsson. Einar B. Pálsson. zifHNDtx VERKTÆKNI — 25. JANÚAR 1988 15

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.