Verktækni - 01.08.1990, Page 3

Verktækni - 01.08.1990, Page 3
 7. árg. 3. tbl ágúst 1990 Fréttablaö gefiö út sameiginlega af Tæknifræöingafélagi íslands og Verkfræðingafélagi íslands Útgáfustjórn Guöni A. Jóhannesson, eölisverkfræöingur (VFÍ) Hs. 2 19 16, vs. 2 44 70 Guðmundur Fljálmarsson, tæknifræöingur (TFÍ) Hs. 7 28 75, vs. 8 49 33 Ritstjóri og ábyrgöarmaður Jón Erlendsson Pósthólf 7043, 127 Reykjavík Hs. 65 22 38, vs. 62 99 20, 62 99 21 og 69 46 65, Telefax 2 56 95 Efnisöflun, fjármál og auglýsingar Útgáfustjóri Viktor A. Ingólfsson Póstfang: Vegagerð ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík Hs. 8 25 74, vs. 2 10 00 og 2 10 03 eftir lokun skiptiborös. Telefax 62 23 32 Setning, umbrot og dreifing Skrifstofa og áskriftir VFÍ, Verkfræöingahúsi, Engjateigi 7-9, 105 Reykjavík, s. 68 85 11 Prentun: Gutenberg Efnisyfirlit bis VFl, stjórn, deildir og nefndir 2 Leiöari 3 Gagnahólf 4 Ný þjónusta í tölvusamskiptum Karl M. Bender Hönnun fisktalningarrennu hjá Vaka hf. 6 Dæmi um hagnýtingu CAD/CAM í íslenskum iönaði Helgi Hjálmarsson Guðni A. Jóhannesson, prófessor við KTH 9 Tækniskóli (slands 9 Fréttir frá Tæknifræöingafélagi íslands 10 Nýr sjóður Alþjóðabankans fyrir íslenska ráögjafa 10 íslenska kortagerðarfélagið 11 Frá kynningarnefnd 11 Skjalalaus samskipti milli tölva 12 Er ekki kominn tími til aö tengja Pétur Einarsson Námskeið Endurmenntunarnefndar 14 Togstreitan \am mylsnuna úr þjóðarkökunni og nauðsyn aukinnar þekkingar á bakstri. Hver einasti íslendingur þekkir orðatiltækið „Mennt er máttur". Sú trú sem að baki þvi býr er rík í landsmönnum. Því er mikil aðsókn aö langskólamenntun hér á landi. Flestir þeir sem ganga menntaveginn hafa um langan aldur geta treyst á hlutfallslega vel launuð og þægileg störf að námi loknu. Nú virðast tímarnir á hinn bóginn að vera að breytast. Stóraukin „framleiðsla" á menntafólki leiðir til hins óhjákvæmilega, þ.e. lækkandi launa vegna mikils framboðs. Menntamenn eru á góðri leið með að verða að láglaunastétt sé t.d. miðað við iðnaðarmenn. Gott dæmi um það sem er að gerast er sú launadeila sem BHMR hefur átt í að undanförnu og skrif þau sem birst hafa í tengslum við hana. En þarf þetta að vera svo? Er það óhjákvæmilegt að síaukiö framboð á menntafólki leiði til lækkandi launa? Einföld ályktun af lögmálinu um framboð og eftirspurn virðist gefa þetta til kynna. Sem betur fer gildir þetta lögmál því aðeins að um sé að ræða framboð „einnar og sömu eða náskyldrar tegundar á tilteknum markaði". (þessu felast nokkrir möguleikar á að bæta tekjurnar, þ.e. með auknum fjölbreytileika og aukinni sérhæfni sem unnt er að finna eða skapa þörf fyrir. Síaukinn fjöldi sérfræðinga sem hafa sömu menntun og berjast um takmarkaðan fjölda starfa eða tækifæra leiðir einungis til þess aö meöaltekjurnar lækka. Enfleira þarf til. Þjóðarkakan hefur takmarkaðastærð. Allir vita aö reyni menn að deila milli sín köku sem þeir ímynda sér að sé stærri en raun er, þá uppskera þeir ímynduð verðmæti og verðbólgu sem spillir nauðsynlegum stöðugleika í efnahagslífinu. Þessa ágætu köku þarf að stækka. Sá sem þetta ritar hefur að undanförnu fylgst með því með sívaxandi undrun hvernig deilur um smávægilegar úrbætur á kaupum og kjörum hafa komið þjóðinni í því sem næst móðursýkislegt ástand sem efnisrýrir fjölmiðlar kynda undir með ótrúlegri elju. Út af fyrir sig er svo sem ekkert undarlegt viö það þegar menn verða vondir og fúlir yfir því aö á þeim séu brotnir samningar. Ellegar hitt að viðsemjandi í vondri stöðu reyni að klóra sig frá henni með því að velja afleitan kost þegar annað sem við blasir viröist enn verra. Allt eru þetta skiljan- leg viðbrögö gagnstæðra fylkinga í togstreitunni um mylsnuna úr kökunni. Hitt er verra og reyndar með öllu óskiljanlegt að öll þessi mikla umfjöllun og þras fer fram án verulegra tengsla við þann grunn sem á verður að byggja, þ.e. verðmætasköpunina. A hana er varla minnst í þessu mikla stappi nema sem einhverja fjarlæga og almenna viömiðun í prósentum sem menn taka eins og hverju öðru óviðráðanlegu náttúrulögmáli sem ekki verður við hróflað. Hver heilvita maður veit þó að ef vel gengur þá er unnt að greiða góö laun. Væri ekki hægt að gera einhverja þá eðlisbreytingu á togstreitunni um kaup og kjör, að verðmætasköpunin kæmi inn sem miklu sterkari áhersla? Þetta bæöi almennt og eins sértækt. Mér virðist að í tímans rás þá hafi þróast hér upp ótrúlega mikil færni og umsvif við aö deila þjóðarkökunni. Heill her af sérfræðingum og samningamönnum hefur af því mikla vinnu að rannsaka í smæstu atriðum rýrnandi bakkelsið og mylja það sín á milli. Þetta um leiö og áherslan á aö stækka það og færnin til þessa er oröin aö einhverskonar hornreka sem sárafáir viröast líta á sem verkefni sitt. Þvi tala menn um „rétt til tiltekinna launa". Öllu gæfulegra væri að þess í stað þá beindist umræðan aö „hlutdeild í verðmætum" sem mönnum hefði tekist aö skapa með atorku sinni eða hugviti. Gjarnan ríflega hlutdeild en ekki einhver skelfilega fá prósent eins og nú er deilt um. Eflaust er það ekki auðvelt verk að tengja umbunun og árangur í öllum tilvikum. Miklu skiptir á hinn bóginn að reyna að nálgast þetta verkefni eins víða og eins faglega og kleift er. Ella verða laun ekki hvati til þess að styrkja þann grunn sem þau byggja á heldur einhver fjarlæg og óskyld „réttindamál" fólks sem lítur alls ekki á það sem viðfangsefni sitt að skapa síaukin verömæti. Þar sem best gengur í rekstri fyrirtækja erlendis ríkir gífurleg áhersla á nýsköpun, fullvirkjun starfsfólks við að skapa nýjar hugmyndir til hagræðingar og aukins árangurs almennt. Aö auki er beitt hvetjandi og jákvæðum stjórnunaraðferðum. Þessi fyrirtæki geta borgað góð laun í krafti öflugrar verðmætasköpunar og sívirkrar áherslu á framfarir í stóru og smáu. Sé ástandið athugað hér á landi þá blasir við gerólík mynd. Víðast hvar ríkir ótrúlegur doði um framfarir. Stórir hópar launþega eru „demóralíseraðir“ eftir langvarandi skak um sáralitlar kjar- abætur. Og afkoma manna er ekkert sérlega góð þrátt fyrir háar þjóðartekjur. Er ekki kominn tími til að sjálfur grundvöllurinn fái stóraukna áherslu og að dregið sé úr þeim fjölmiðlahasar sem fylgir togstreitunni um mylsnuna úr þjóðarkökunni ? Jón Erlendsson 3

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.