Verktækni - 01.08.1990, Síða 9

Verktækni - 01.08.1990, Síða 9
 fullri stærð í tölvufræsara. Hið síðar nefnda verður þó vonandi ódýrasti kosturinn áður en langt unt líður. Prófun rennu úr trefjaplasti hefur gengið með ágætum, en þegar endan- legt form hennar er fengið verður tekin af henni afsteypa úr trefjaplasti og hún notuð sem mót í vakúmformun eða beint til fjöldaframleiðslu. Lokaorö Markmiðið með þessari grein er að sýna lesendum fram á, að notkunar- möguleikar CAD/CAM tækninnar á Islandi eru rniklir og að það þarf ekki ávallt að eyða miklu fé til að nýta sér hana. Þess má geta að hönnunarkerfið Þrívídd var skrifað á u.þ.b. sjö vikum og ekki liðu meira en 2 vikur til við- bótar þar til fyrsta frumgerð rennunnar leit dagsins ljós. Þessi greinarstúfur ætti líka að gera lesendum ljósa nauðsyn þess að efla samstarf Háskólans við atvinnulífið. Það má einmitt gera á þennan hátt, þ.e. að fyrirtækin geti kynnt sér nýjustu svið tölvutækninnar án þess að þurfa að leggja út í kostnaðarsöm tækjakaup. Áhugasömum lesendum skal bent á lokaverkefni undirritaðs sem ber heit- ið Hönnunarkerfið Þrívídd. í því er hönnunarkerfinu lýst mun nákvæmar en gert er í þessari grein og auk þess er þar að finna listun á þeirn AUTOLISP forritum sem skrifuð voru og inn- lestrarskrár í tölvufræs og í COSMOS. Verkefnið er unnt að fá lánað á Háskólabókasafninu. Helgi Hjálmarsson. Höfundur er stúdent frá M.H. 1986. Vélaverkfrœðingurfrá H.í. 1990. Stundar nú niastersnám í vélaverkfrœði við Carnegie Mellon Háskóla í USA. Guðni A. Jóhannesson prófessor við KTH Um áramótin lá fyrir álit dómnefndar við Verkfræðiháskólann í Stokkhólmi, KTH, þar sem húnmælti með dr. Guðna A. Jóhannessyni verkfræð- ingi í stöðu prófessors við byggingartæknideild skól- ans úr hópi 8 umsækjenda. Guðni hóf störf við háskól- ann í Stokkhólmi nú með vorinu. Guðni er fæddur 1951, lauk fyrrihlutaprófi frá HÍ í eðlisverkfræði 1973, civ. ing. prófi í eðlisverkfræði frá Verkfræðiháskólanum í Lundi, LTH, 1976 og doktorsprófi frá bygg- ingartæknideild sama skóla 1981. Hann starfaði á árunum 1975 - 1982 sem sérfræðingur og kennari við byggin- gartæknideild LTH og hlaut dósents- nafnbót 1982. Það ár flutti hann heim til íslands og var fyrstu tvö árin í hluta- starfi hjá Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins, en meðfram því og síðan hefur hann rekið eigin verkfræði- þjónustu. Síðastliðið ár hefur hann og starfað í hlutastarfi við skipulagningu og stjórnun rannsókna í byggingar- eðlisfræði við eðlisfræðideild háskól- ans í Umeá. Guðni er formaður landssambands Búseta og hefur gegnt ýmsum trúnað- arstörfum á vegum ríkis og borgar, m.a. setið í nefndum um húsnæðismál og á nú sæti í byggingarnefnd Þjóð- leikhúss. Hann er einn af stofnendum og núverandi stjórnarformaður Verk- vangshf. V erkfræðiþjónustaGuðna verð- ur nú sameinuð Verkvangi hf. Prófessorsstaða Guðna verður með sérstakri áherslu á eðlisfræðilega eiginleika byggingarefna og byggingarhluta og sam- spil húss og lagnakerfis m.t.t. orkunýtingar. Þetta felur í sér m.a. rannsóknir á tímaháðum hitunarferl- um, áhrifum sólar og vinds og notkunarvenjum íbúa. Fræðileg líkön sem lýsa áðurgreindum ferlum og skipulagning og úrvinnsla mælinga á þeim verða meðal helstu viðfangsefna. Núgildandi ákvörðun Svía um að leggja niður kjarnorkuverin í landinu knýr á um áframhaldandi rannsóknir og þróunarvinnu á sviði orkuspamaðar og nýrra orkugjafa til húshitunar og heimilisnotkunar. I nýjum byggingar- áföngum og við endurnýjun eldri hverfa eru skipulögð sérstök tilrauna- verkefni í samvinnu við byggingar- aðila. Einnig færist í vöxt að bygging- araðilum sé gefinn kostur á að taka þátt í samkeppni um lóðir þar sem þeir leggja fram hugmyndir sínar og lausnir um hagkyæma og orkusparandi bygg- ingaráfanga. Sænska byggingarann- sóknaráðið veitir styrki og lán til þess að standa straum af rannsókna- og þróunarverkefnunr tengdum slíkum til- raunaverkefnum og verkefni Guðna á næstu árum munu að verulegu leyti tengjast þessari starfsemi. Guðni er kvæntur Bryndísi Sverris- dóttur safnkennara við Þjóðminjasafnið og eiga þau tvö börn. Tækniskóli íslands Hinn I. september lét Bjarni Krist- jánsson vélaverkfræðingur af starfi rektors Tækniskóla Islands, en hann hafði gegnt því starfi frá 1965. Við störfum tók Guðbrandur Stein- þórsson byggingarverkfræðingur. Hann lauk prófi frá Danmark Tekn- iske Hpjskole 1972 og starfaði hjá Hönnun hf. árin 1972 - 1980 og var jafnframt stundakennari við Tækni- skóla íslands frá 1974, í burðar- þolsfræði og hönnun steinsteypu- virkja. Var ráðinn deildarstjóri bygg- ingardeildar 1981, og hefur jafnframt sinnt kennslu og tekið saman náms- efni í burðarþolsfræði og hönnun steinsteypuvirkja. Við starfi deildarstjóra byggingar- deildar tekur Guðmundur Hjálmars- son byggingartæknifræðingur, sem verið hefur fastráðinn kennari við deildina frá 1986. Deildarstjóri véladeildar, Helgi Gunnarsson lést 5. maí sl. en hann hafði gegnt þeirri stöðu frá upphafi og þar áður átt drjúgan þátt í að konta starfsemi Tækniskóla Islands af stað. Við starfi hans tók Paul Jóhannsson véltæknifræðingur, sem hefur verið fastráðinn kennari við deildina frá 1982. 9

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.