Verktækni - 01.08.1990, Blaðsíða 10
Sveinn Frímannsson
Fréttir frá Tæknifræöinga
félagi íslands
Feani
I byrjun júní kom varaforseti FEANI
Anton B. Nielsen í heimsókn til
Islands. Anton ereinnig framkvæmda-
stjóri norska tæknifræðingafélagsins
NITO. Tilgangur hans hingað var að
kynna FEANI og einnig viðhorfum
sem við hefðum til þess. Fundur var
haldinn í íslandsnefnd FEANI.
A vegum félagsins hefur verið unnið
að því að fá alþjóðlega viðurkenningu
á námi við Tækniskóla Islands og er
þá átt við viðurkenningu eftir flokkun-
arkerfi FEANI.
A fundi æðstu stjórnar FEANI í lok
maí í ár var nám byggingartækni-
fræðinga við Tækniskóla Islands
samþykkt í grúppu 1 á sama hátt og
danskir tækniskólar. Með þessu teljum
við að náðst hafi nauðsynleg viður-
kenning á námi tæknifræðinga hér sem
er grundvöllur samnings TFÍ við
iðnaðarráðuneytið.
FEANI hefur ekki samþykkt norska,
sænska og að hluta til þýska tækni-
skóla í grúppu 1, en danskir tækni-
skólar eru samþykktir.
Endurmenntun
Á síðasta ári var unnin stefnumörkun
Endurmenntunarnefndar Háskólans
fyrir komandi ár. Fram hafa komið
margar hugmyndir að nýjum nám-
skeiðum og kennsluefni.
Nú er að fara í gang annað árið nám
sem tengist viðskiptafræði við Háskól-
ann. Þessi nýja braut hefur verið mjög
vel sótt og stendur til að halda áfram
næsta ár ef allt gengur vel. Miðað við
þátttöku okkar manna gæti ég trúað að
þetta hafi ekki verið kynnt nægilega
vel. Benda má á framtak Kjarafélags
tæknifræðinga sem stofnað hefur
starfsmenntunarsjóð og styrkir sína
félaga til slíks náms.
Ásbrú húsfélagið
Að undanförnu hefur staðið yfir athug-
un á húsnæðismálum félagsins og líf-
eyrissjóðsins. Félögin eiga ríflega 27%
af húsfélaginu Ásbrú sem á hluta af
Lágmúla 7. Félögin eru nú að athuga
möguleika á stærra húsnæði, en starf-
semi lífeyrissjóðsins hefur aukist veru-
lega á undanförnum árum.
Afmælisritið,
saga tæknifræðinga
Samningur sem gerður var við Jón
Böðvarsson ritstjóra um söfnun frum-
heimilda um sögu félagsins er nú að
Ijúka.
Staðfesting hefur fengist hjá núver-
andi menntamálaráðherra Svavari
Gestssyni á þriggja mánaða starfslaun-
um til ritunar sögunnar með ákveðnum
skilyrðum og standa nú samningar yfir
við Jón Böðvarsson um ritun og útgáfu
sögunnar.
Undirbúningur og frumgagnavinnsla
hefur verið unnin á sfðustu tveimur ár-
um. Þessi söguritun er unnin í sam-
vinnu við Iðnsögu Islendinga.
Handbókin
I júní mánuði kom handbókin aftur út.
Vert er að vekja athygli á nýmæli í
handbókinni, en það er nýstofnaður
Kjaradeilusjóður Kjarafélags tækni-
fræðinga og Vísinda- og starfsmennt-
unarsjóður Kjarafélags tæknifræðinga.
Atvinnuleysistryggingar
Réttindi verk- og tæknifræðinga eru
engin til atvinnuleysisbóta lögum
samkvæmt. Sem betur fer þá hefur ekki
þurft að hafa miklar áhyggjur af þessu
vandamáli. En á síðasta ári þá leituðu
ungir arkitektar og viðskiptafræðingar
eftir samstarfi við félögin um að fá
þessum lögum breytt og hefur verið
unnið að því.
Á síðasta ári var nokkuð um dulbúið
atvinnuleysi þar sem menn fóru í önnur
störf en þau sem þeir voru menntaðir til.
Á næstu árum má búast við að mikill
fjöldi af verk- og tæknifræðingum skili
sér heim. Ef ekkert skeður í atvinnu-
málum í nánustu framtíð þá má búast
við vandamálum ef að kreppir á öðrum
stöðum í þjóðfélaginu.
Capri fundur FEANI
Á næsta fundi FEANI munu liggja fyrir
breytingartillögur á skilgreiningu
grúppu 1. Tillaga sú sem breyta mun
mestu hvað okkur snertir byggist á því
að starfsreynslu er hægt að öðlast eftir
að námi líkur, en þarf ekki að liggja
fyrir áður en nám hefst eða að menn
öðlist hana í eða með námi. Þessar
reglur munu ef þær verða samþykktar
koma á einskonar kandidatsári eða
árum, fyrir menn sem ekki hafa áður
fengiö tilskylda starfsreynslu.
Nýr sjóður Alþjóðabankans fyrir íslenska ráðgjafa
Frá viðskiptaráðuneytinu
ísland og Alþjóðabankinn hafa gert
með sér samning um ráðgjafarsjóð sem
talinn er muni auka möguleika ís-
lenskra sérfræðinga á að fá skamm-
tímaverkefni, m.a. verkefni á sviði
jarðhita og fiskveiða, hjá Alþjóðabank-
anum (IBRD) og systurstofnunum hans,
Alþjóðaframfarastofnuninni (IDA) og
Alþjóðalánastofnuninni (IFC). Sjóður-
inn er ekki eingöngu bundinn við
verkfræðinga heldur einnig aðra ráð-
gjafa, t.d. hagfræðinga, og jafnvel ráð-
gjafarfyrirtæki. ísland mun á næstunni
leggja 75.000 dali eða tæpast 5 milljón-
ir króna í sjóðinn og rennur féð aðal-
lega til að greiða laun íslenskra ráð-
gjafa hjá þessum stofnunum.
Samningurinn var undirritaður í höf-
uðstöðvum Alþjóðabankans í Wash-
ington hinn 5. mars af Ingva S. Ingvars-
syni sendiherra og Moeen Querashi,
yfirmanni lánadeildar bankans. Við-
staddir undirritun voru Björn Dag-
bjartsson, framkvæmdastjóri Þróunar-
samvinnustofnunar Islands, Ulfur Sig-
urmundsson viðskiptafulltrúi og
fulltrúar tveggja ráðgjafarfyrirtækja,
Svavar Jónatansson og Pálmi P. Pálma-
son frá Virki-Orkinl og Páll Gíslason
og Lárus Ásgeirsson frá Icecon. Full-
trúar fyrirtækjanna áttu síðan viðræður
við fulltrúa bankans um hugsanleg
verkefni, íslenskum ráðgjöfum til
handa, og voru þær taldar lofa góðu.
Reykjavík 7. mars 1990
Jón Ogmundur Þormóðsson,
skrifstofustjóri
(Undirritaður veitir nánari upplýsingar.)
10