Til sjávar - 01.09.1997, Blaðsíða 4
Skipaskoöun Sialinaastofnunar
Skoöun fer fram á 6 stöðum á landinu
Skipaskoðunars við
Siglingastofnunar
annast eftirlit með nýsmíði
og innflutningi skipa og
almennt eftirlit með
skipum. Einnig sinnir
skipaskoðunarsvið alþjóðlegu hafnarríkis-
eftirliti, sem er mjög vaxandi þáttur í
starfseminni.
Sex umdæmi
Landinu er skipt upp í 6 umdæmi. Eitt
umdæmi er með aðsetur í höfuðstöðvum
Siglingastofnunar í Kópavogi. Hin eru
staðsett hringinn í kringum landið, í
Olafsvík, á Isafirði, á Akureyri, á
Fáskrúðsfírði og í Vestmannaeyjum.
í eftirliti með skipum felst m.a. að
yfirfara smíðateikningar og öryggis-
teikningar vegna nýsmíði og breytinga á
skipum, athuga stöðugleikaútreikninga,
taka ákvörðun um hallaprófanir vegna
breytinga á skipum og annast hleðslu-
merkjaútreikninga. Að auki annast
skipaskoðunarsvið ýmsar rannsóknir t.d. á
rafsuðu með röntgenmyndatöku,
hljóðbylgju- og þykktarmælingar og
hávaða- og titringsmælingar.
Siglingastofnun hefur eftirlit með öllum
íslenskum skipum sem eru sex metrar að
lengd eða lengri. Tegundir skoðana eru
þrenns konar; aðalskoðun, aukaskoðun og
skyndiskoðun.
Hafnarríkiseftirlit
Siglingastofnun annast eftirlit með
siglingum erlendra kaupskipa sem hafa
viðkomu í íslenskum höfnum. Er það gert í
samræmi við skuldbindingar siglinga-
málayfirvalda í aðildarríkjum EES og
kennt er við Parísarsamkomulagið um
hafnarríkiseftirlit. Markmiðið með þessu
eftirliti er fyrst og fremst að draga verulega
úr siglingum undirmálsskipa.
Siglingastofnun er gert skv. reglugerð
um hafnarríkiseftirlit nr. 128/1997 að
skoða eitt af hverjum fjórum skipum sem
koma til hafnar á ári hverju. Mikil aukning
hefur verið í skipakomum erlendra skipa
og eru á bilinu 800-900 skip að koma til
hafnar á ári hverju. Það eru því rúmlega
200 skip sem stofnuninni er gert að skoða
árlega. Til gamans má geta þess að
starfsmenn Siglingastofnunar skoðuðu
Elísabetu drottningu II (Queen Elizabeth
II) er hún kom til landsins í sumar. Engar
athugasemdir voru gerðar við þá skoðun.
Queen Elizabeth II lenti í hafnarríkiseftirliti við komuna til Reykjavíkur í sumar.
Lög og reglugerðir
Hér á eftir fer listi yfir helstu ný lög, reglugerðir, auglýsingar og
gjaldskrár, sem varða starfsemi Siglingastofnunar, frá janúar 1996
til ágúst 1997.
Lög
Lög nr. 6/1996 um Siglingastofnun íslands.
Lög nr. 7/1996 um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Vitastofnunar
íslands, Hafnamálastofnunar ríkisins og Siglingamálastofnunar ríkisins í
Siglingastofnun íslands.
Lög nr. 31/1996 um köfun.
Lög nr. 61/1996 um breyting á lögum nr. 32/1986 um vamir gegn mengun sjávar.
Lög nr. 28/1997 um sjóvamir.
Lög nr. 30/1997 um breytingu á lögum nr. 112/1984 um atvinnuréttindi
skipstjómarmanna á íslenskum skipum.
Lög nr. 38/1997 um breytingu á lögum nr. 6/1996 um Siglingastofnun íslands.
Lög nr. 39/1997 um breytingu á lögum nr. 115/1985 um skráningu skipa.
Lög nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands.
Lög nr. 82/1997 um breytingu á lögum nr. 113/1984 um atvinnuréttindi
vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum.
Reglugcrðir
Rg. nr. 118/1996 um atvinnuskírteini skipstjómar- og vélstjómarmanna.
Rg. nr. 232/1996 um hafnamál.
Rg. nr. 269/1996 um áhafnir íslenskra kaupskipa.
Rg. nr. 299/1996 um breyting á rg. nr. 174/1991 um Stýrimannaskólann í
Reykjavík.
Rg. nr. 394/1996 um breyting á mengunarvamarrg. nr. 48/1994.
Reglur nr. 496/1996 um efnanotkun á vinnustöðum.
Reglur nr. 498/1996 um öryggisleiðbeiningar vegna efnanotkunar á vinnustöðum.
Reglur nr. 661/1996 um smíði báta styttri en 6 metrar.
Rg. nr. 26/1997 um breyting á mengunarvamarrg. nr. 48/1994.
Rg. nr. 128/1997 um hafnarríkiseftirlit.
Rg. nr. 153/1997 um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl.
Rg. nr. 168/1997 um skemmtibáta.
Hafnarrg. nr. 335/1997 fyrir Dalabyggð.
Hafnarrg. nr. 336/1997 fyrir Vesturbyggð.
Reglur nr. 337/1997 um breytingu á reglum nr. 189/1994 um björgunar- og
öryggisbúnað íslenskra skipa.
Rg. nr. 384/1997 um breytingu á rg. nr. 533/1993 um kæli- og varmadælukerfi
með ósoneyðandi kælimiðlum.
Rg. 430/1997 um vamir gegn sorpmengun frá skipum.
Rg. nr. 439/1997 um breytingu á rg. nr. 128/1997 um hafnarríkiseftirlit.
Auglýsingar og gjaldskrár
Augl. nr. 18/1996 um frestun á gildistöku ákvæða um losunar- og sjósetningar-
búnað gúmmíbjörgunarbáta.
Augl. nr. 51/1996 um gildistöku EES-reglugerða um inn- og útflutning tiltekinna
hættulegra efna.
Augl. nr. 330/1996 um gildistöku ákvæða er leiða af samningum um Evrópska
efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó.
Augl. nr. 359/1996 um frestun á gildistöku ákvæða um losunar- og sjósetningar-
búnað gúmmíbjörgunarbáta.
Augl. nr. 574/1996 um gildistöku ákvæða er leiða af samningum um Evrópska
efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó.
Augl. nr. 587/1996 um heimild til innflutnings á vetnisklórflúorkolefnum (HCFC)
á árinu 1997.
Gjaldskrá nr. 648/1996 vegna eftirlits og vinnslu starfsleyfa og vegna þjónustu á
sviði mengunarvama.
Augl. nr. 705/1996 um frestun á gildistöku ákvæða um losunar- og sjósetningar-
búnað gúmmíbjörgunarbáta.
Gjaldskrá nr. 143/1997 fyrir eftirlit með köfunarbúnaði og aðra þjónustu varðandi
köfunarmál.
Gjaldskrá nr. 147/1997 fyrirhafnir.
4