Til sjávar - 01.09.1997, Qupperneq 7
Útgáfumál
Eftirfarandi skýrslur og rit hafa verið gefin
út á þessu ári hjá Siglingastofnun.
Skrá yfir íslensk skip. Siglingastofnun
Islands - janúar 1997.
Skrá yfir opna vélbáta. Siglingastofnun
Islands - janúar 1997.
Skýrsla um stööugleika íslenskra
fiskiskipa. Siglingastofnun íslands -
febrúar 1997
Gísli Viggósson, Sigurður Sigurðarson,
Baldur Bjartmarsson og Ingunn Jónsdóttir.
Grindavíkurhöfn. Innsigling. Rannsókn-
ir og tillögur til úrbóta. Skýrslur Siglinga-
stofnunar íslands, nr. 1 - maí 1997.
Dahle, E.A., Myrhaug, D. og Gísli
Viggósson. Information System on
Waves and Stability of Small Fishing
Vessels. Skýrslur Siglingastofnunar íslands,
nr. 2 - júlí 1997.
Hafnaáætlun 1997-2000 ásamt skýrslunt
uni hafnaframkvæmdir 1995 og 1996.
Siglingastofnun Íslands-júní 1997.
Ymis önnur eldri rit eru til hjá stofnuninni,
gefm út af Vita- og hafnamálastofnun og
Siglingamálastofnun, t.d.:
Sérrit Siglingamálastofnunar nr. 1: Notkun
gúmmíbjörgunarbáta. Siglingamála-
stofnun ríkisins - 1981.
Sérrit Siglingamálastofnunar nr. 2:
Lækningabók fyrir sjófarendur.
Siglingamálastofnun ríkisins - 1982.
Sérrit Siglingamálastofnunar nr. 4:
Kynning á stöðugleika fiskiskipa.
Siglingamálastofnun ríkisins - 1991.
Sérrit Siglingamálastofnunar nr. 5: Eldur
um borð. Siglingamálastofnun ríkisins -
1990.
Hafnalýsing. Flokkun fiskihafna,
staðalkröfur og ástandskönnun. 55
hafnir skoðaðar frá desember 1983 til
september 1995. Vita- og hafnamála-
stofnun - september 1996.
Hafnasambandsþing
Dagana 9. - 10. október nk. verður
haldinn 28. ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga að Hótel Sögu í Reykjavík.
Aðalframsögumenn verða Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi og Einar K.
Guðfmnsson, formaður samgöngunefndar
Alþingis.
Forstööumenn Siglingastofnunar
Hermann Guðj
er forstjóri Siglinga-
stofnunar. Hann er
fæddur 17. okt. 1952 á
Patreksfirði Hermann
hafði áður gegnt stöðu
vita- og hafnamálastjóra
frá árinu 1986. Hann er
með próf í byggingaverk-
fræði frá H.f. og M.Sc.
próf frá DTH í Kaup-
mannahöfn. Hermann er kvæntur Berthu Sigríði
Sigurðardóttur, framhaldsskólakennara, og eiga
þau tvö böm.
Benedikt E. Guðmundsson
gegnir stöðu ráðgjafa á
sviði skipatækni. Bene-
dikt er fæddur 23. sept.
1939 á Patreksfirði.
Hann gegndi áður stöðu
siglingamálastjóra hjá
Siglingamálastofnun
ríkisins. Benedikt er með
M.Sc. próf í skipaverk-
fræði frá DTH í Kaup-
mannahöfn. Hann er kvæntur Sigurlaugu
Jónsdóttur, röntgentækni, og eiga þau þrjú böm.
Gísli Viggósson
er forstöðumaður rann-
sókna og þróunar hjá
Siglingastofnun. Hann er
fæddur 3. maí 1943 í
Reykjavík. Gísli er með
M.Sc. próf í bygginga-
verkfræði frá NTH í
Þrándheimi í Noregi.
Hann var áður forstöðu-
maður rannsóknadeildar
Vita- og hafnamálastofnunar frá 1986. Gísli er
kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur, skrifstofu-
manni, og eiga þau 3 böm.
Jón Leví Hilmarsson
er forstöðumaður tækni-
sviðs. Hann er fæddur 3.
okt. 1953 á Litlalandi,
Mosfellshr. í Kjós. Jón
starfaði áður hjá Vita- og
hafnamálastofnun sem
forstöðumaður tækni-
sviðs frá árinu 1987.
Hann er með próf í
vélaverkfræði frá HÍ og
M.Sc próf í vélaverkfræði frá Stanford
University. Jón er kvæntur Elísabetu Láru
Þorsteinsdóttur, jarðfræðingi, og eiga þau 3 böm.
Tómas Sigurðs
er forstöðumaður
rekstrarsviðs. Hann er
fæddur 29. apr. 1932 á
Sauðárkróki.Tómas
gegndi áður starfi
forstöðumanns Vita-
stofnunar. Tómas hóf
störf hjá stofnuninni í
sumarvinnu árið 1944
og hefur helgað alla
sína starfsævi vitamálum. Hann er með meistara-
réttindi í vélsmíði. Tómas er kvæntur Sigrúnu
Sigurbergsdóttur, kennara, og eiga þau eitt bam.
Hallgrímur Ásgeirsson
er forstöðumaður
stjómsýslusviðs. Hann
er fæddur 3. jan. 1962.
Hallgrímur starfaði
áður sem lögmaður hjá
Búnaðarbanka íslands.
Hallgrímur útskrifaðist
úr lögfræði árið 1993
og varð hdl. árið 1994.
Hann er kvæntur
Marion Wiechert, framhaldsskólakennara, og
eiga þau tvö böm.
Guðmundur Guðmundsson
kom til starfa í febrúar
1997 og gegnir hann
starfi forstöðumanns
skipaskoðunarsviðs.
Hann er fæddur 7. nóv.
1962 1 Reykjavík.
Guðmundur er með
meistararéttindi í stál-
skipasmíði og M.Sc. í
vélaverkfræði frá
Álaborgarháskóla í Danmörku. Hann starfaði
áður hjá Bifreiðaskoðun íslands sem
aðstoðarrekstrarstjóri. Guðmundur er kvæntur
Þómnni Stefánsdóttur, hjúkmnarfræðingi, og eiga
þau tvö böm.
onsson
son
Upplýsingaskilti við
Reykjanesvita
Siglingastofnun hefur sett upp
upplýsingaskilti við Valahnjúk á
Reykjanesi. Þar var fyrsti vitinn
við Islandsstrendur byggður,
Reykjanesviti, árið 1878. Á
skiltinu eru upplýsingar um sögu
vitans á fimm tungumálum:
íslensku, ensku, dönsku, þýsku og
frönsku. Gamli Reykjanesvitinn
var endurnýjaður árið 1897 en hann hafði
orðið fyrir skemmdum i jarðskjálftum.
Vitinn stóð fram við sjávarbrún,
þar sem bjargið stendur þverhnípt.
„Nýi” Reykjanesvitinn var
byggður á árunum 1907-1908 á
Bæjarfelli. Hann er mun stærri en
sá gamli var og er 73 m. yfir
sjávarmáli.
7