Til sjávar - 01.09.1999, Side 1
4. tbl. 3. árg. september 1999
Fréttabréf Siglingastofnunar
1
Ráðherra
svarar
2
Þrjú ár frá
sameiningu
3
Farbann í
fyrsta sinn
4
Hannað fyrir
Norðmenn
5
Dýpkun lokið
í Grindavík
6
Starfsreglur í
skipaskoðun
7
Starfsmanna-
kynning
Öryggismál sjómanna
Langtímaáætlun um öryggismál
sjómanna tímabær
- segir Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra. Til sjávar beindi
nokkrum spurningum til hans um
málefni Siglingastofnunar.
Sturla var fyrst spurður að
því hver yrðu helstu verk-
efni samgönguráðuneyt-
isins á sviði siglingamála og
öryggis sjófarenda á þessu kjör-
tímabili? „Ég geri ráð fyrir því að
verkefni ráðuneytisins á kjör-
tímabilinu er lúti að siglinga-
málum og öryggi sjófarenda
verði nokkur, eins og við er að
búðast hjá þjóð sem á allt sitt
undir sjómennsku og siglingum.
Það var mér sérstakt ánægjuefni
að geta fyrr í sumar gefið út reglu-
gerð um sjálfvirkan sleppibúnað,
en gildistöku hennar hafði verið
margsinnis ífestað. En ljóst er að
með útgáfú þeirrar reglugerðar var
stigið stórt skref í áttina að auknu
öryggi sjómanna. Er nú kominn
góður skriður á það mál, og þegar
byrjað að setja búnað í fjölda
skipa.
Nýjar áherslur í hafnamálum
Helstu verkefni framundan mótast
nokkuð af því að alþóðlegar regl-
ur, einkum reglur sem í gildi eru
vegna aðildar okkar að hinu
evrópska efnahagssvæði, setja
aukinn svip á þær reglur sem gilda
hér á landi á sviði sjóflutninga.
Um leið og öryggi í siglingum
hefur ávallt verið eitt af
óumdeildum málum í íslenskum
stjómmálum, þá er þaó einnig um
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra
þessar mundir eitt af for-
gangsverkefnum Framkvæmda-
stjómar ESB. Og um leið og lögð
er áhersla á að auka öryggi sjó-
farenda er stefnan að bæta sam-
keppnisstöðu útgerðarinnar. Af
okkar hálfu tel ég nauðsynlegt að
gera langtímaáætlun um öryggis-
mál sjómanna, og að því vil ég
vinna.
Á kjörtímabilinu verður
hafnaáætlun endurskoðuð, og geri
ég ráð fyrir nýjum áherslum við
uppbyggingu hafna í tengslum við
samræmda samgönguáætlun sem
ég mun beita mér fyrir að verði
unnin. Bætt hafnaaðstaða er mikið
hagsmunamál og mikið öryggis-
mál allra sjófarenda.
Sjálfstæð skoðunarstofa
Eins og gefur að skilja em mörg
verkefni framundan og ekki rétt
að tíunda þau öll hér. Þó vil ég
nefna að um þessar mundir er
unnið að því á vegum Siglinga-
stofnunar að koma upp samræmdu
eftirliti, þ.e. gæðakerfi við eftirlit
með skipum. Það er mitt mat að ef
vel tekst til með gæðakerfi sem
þetta, gæti hér verið um að ræða
eitt markverðasta skref til aukins
öryggis á sjó síðari ár. Þá er
stofnun sjálfstæðrar skoðunarstofu
skipa nokkuð sem ég hef mikinn
áhuga á að geti orðið að veruleika
á kjörtímabilinu, en mitt mat er að
löngu sé orðið tímabært að kanna
hagkvæmni þess að koma skipa-
skoðun í annan farveg en nú er.
Þá er ljóst að fara þarf kerfis-
bundið yfir reglur um gerð og
búnað skipa. Nú er á lokastigi
undirbúningur að viðamikilli
reglugerð um öryggi fiskiskipa,
sem byggist að hluta til á tilskipun
ESB, en hefur einnig að geyma
ákveðnar sérkröfur til íslenskra
skipa, samanber reglugerðina um
sleppibúnaðinn. Þá er ánægjulegt
að geta þess að sá árangur hefur
nú orðið að ESB hefur sæst á, og
viðurkennt, sérstöðu okkar um
strangari reglur gagnvart íslensk-
um skipum um öryggisbúnað en
almennt er krafist innan aðildar-
rikja EES. Með því erum við að
tryggja öryggi sjómanna okkar
frekar en aðrar Evrópuþjóðir.
Af öðrum markverðum verk-
efnum sem framundan eru má
nefna útflöggun kaupskipa og
hugsanlegar aðgerðir til að fá
Kröfur íslendinga viðurkenndar
ESB hefur fallist á og viðurkennt sérkröfur Islendinga
um strangari reglur um öryggisbúnað í íslenskum
skipum. bls. 1
frh. bls. 2
Norðmenn leita til íslendinga
Bermigarðurinn sem Siglingastofnun hefur hannað
fyrir norsk stjómvöld er með hæstu ölduáraun af öllum
grjótgörðum í Noregi. bls. 4