Til sjávar - 01.12.1999, Blaðsíða 4
www.sigling.is
Stuttar
fréttir
Skýrsla um hafnaframkvæmdir
Samgönguráðuneytið hefur sent Alþingi
skýrslu um hafnaframkvæmdir fyrir árið
1998 og verður hún brátt lögð formlega
fram af ráðherra. í skýrslunni er að fmna
yfirlit um allar framkvæmdir í höfnum og
við sjóvamargarða auk sérstaks kafla um
rannsóknir og þróun hjá Siglingastofnun.
Samstarf um landmælingar
Um nokkurt skeið hefur verið starfandi
samvinnunefnd um landmælingar. í
nefndinni sitja fulltrúar frá Landssíma
íslands, Landmælingum, Vegagerðinni,
Siglingastofnun, umhverfísráðuneytinu
og Flugmálastjórn. Formleg samvinna er
komin á milli Siglingastofnunar og
Landmælinga um kvörðun á síritum fyrir
sjávarborðsmælingar og tengingu þeirra
við landshæðarkerfið.
Viðbótarúthlutun Hafnabótasjóðs
Úthlutanir Hafnabótasjóðs fyrir árið 1999
umfram það sem áður hefur komið fram
eru eftirfarandi (Ijárhæðir eru í þúsund-
um króna).
Bráðabirgðalán:
Grímseyjarhreppur 6.200
Sandgerði 6.600
Hafnasamlag Eyjafjarðar 31.500
Styrkheimild:
Grímseyjarhreppur 1.250
Vopnaíjörður 5.100
Sandgerði 8.150
Raufarhöfn 3.450
Lánveitingaheimild:
ísafjörður 9.450
Tjónastyrkur:
Þórshöfn 7.650
Nýjungar á heimasíðu
- vita- og hafnakort
v:
iðskiptavinir Siglinga-
fylgjast reglulega með
heimasíðu Siglingastofn-
unar, www.sigling.is. Þar eru allar helstu
nýjungar kynntar og hægt að nálgast
mikið af gögnum sem geta komið sér vel.
Að undanförnu hefur verið talsvert um
nýjungar og aukið efni.
Um þessar mundir er unnið að því að
setja á síðuna vita- og hafnakort. Grunn-
upplýsingar um hvem vita og hverja höfn
verður hægt að finna með því smella á
viðeigandi punkt á síðunni. Þegar til
lengri tíma er litið verður hægt að skoða
ljósmyndir af öllum vitum og höfnum auk
mikilvægra tæknilegra upplýsinga um
hafnir og innsiglingar. Ennfremur er gert
ráð fyrir að hægt verði að sækja teikningar
af höfnum á þessum sama stað.
Umburðarbréf Siglingastofnunar, eða
starfsreglur skipaskoðunarmanna, eru nú
aðgengileg á vefnum. Um er að ræða
leiðbeingar, túlkun á reglum og aðrar
upplýsingar sem skoðunarmenn þurfa á að
halda umfram lög og reglur.
Til að auðvelda mönnum leit að efni
hefur verið sett upp vefyfirlit þar sem með
hægt að sjá hvar tiltekið efni er staðsett á
heimasíðunni.
Nú er hægt að sækja útgáfu af
fréttabréfinu á Netinu á svokölluðu pdf
formi (Acrobat) um leið og það kemur út
á prenti.
Mikilvæg skjöl, svo sem drög að
reglugerðum, frumvörp að lögum og
annað efni er að frnna á www.sigling.is.
Hér hefur aðeins verið stiklað á því
helstu nýjungum á heimasiðu stofnunar-
innar. Eins og ávallt eru allar ábendingar
vel þegnar um það sem betur má fara.
Sömuleiðis er vakin athygli á því að hægt
er að beina fyrirspurnum til einstakra
starfsmanna með því að senda tölvupóst
en netföng allra starfsmanna eru birt á
vefsetrinu.
Ljósmyndari: Kristján Maack
4