Til sjávar - 01.12.1999, Blaðsíða 5
Veður og sjólag
írskur ráðherra kynnir sér upplýsingakerfið
Dagana 14. - 16. nóv-
ember sl. var írskur
ráðherra, Michael Woods,
sem fer með málefni
hafsins og náttúruauðlinda, í opinberri
heimsókn í boði Arna M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra
Undir ráðuneyti Michaels Woods falla
einnig öryggismál sjómanna. Auk funda
um sjávarútvegsmál átti ráðherrann fund
með Sturlu Böðvarssyni samgöngu-
ráðherra m.a. um öryggismál sjómanna.
Woods kom til Siglingastofnunar íslands
og varði hér drjúgum tima í að kynna sér
starfsemi stofnunarinnar og þá sérstak-
lega upplýsingakerfið um veður og
sjólag. írar hafa nú þegar hafið undir-
búning að starfrækslu slíks kerfis og vilja
því leita í smiðju Siglingastofnunar.
Við lok heimsóknarinnar undirrituðu
ráðherrarnir þrír sameiginlega viljayfir-
lýsingu um fyrirhugað samstarf ráðuneyta
sinna og undirstofnana. Ætlunin er að
gera samstarfssamning um víðtækt
samstarf á sviði sjávarútvegsmála og um
öryggismál sjómanna, þ.á m. um upplýs-
ingakerfið og tilkynningaskyldukerfi
skipa.
Ráðstefna í Lundúnum
A ráðstefnu sem var
haldin í Lundúnum ný-
lega um rannsóknir á sjó-
slysum vakti einn fyrir-
lesarinn, Emil Aall
Dahle, athygli á mikil-
vægi forvama. Nauðsyn-
legt væri fyrir sjómenn
að eiga greiðan aðgang
að upplýsingum. í þessu
sambandi tiltók fyrir-
lesarinn sérstaklega upp-
lýsingakerfi Siglinga-
stofnunar um veður og
sjólag sem dæmi um mikilvægt
öryggistæki fyrir sjómenn. Hann nefndi
einnig að Norðmenn væru nú sjálfir
byijaðir að setja út öldudufl og hygðust
koma upp sambærilegu kerfi fyrir
sjófarendur á norsku hafsvæði.
Frá heimsókn Michaels Woods til Siglingastofnunar 15. nóvember sl.
Dyrhólaey
Nýtt deiliskipulag fyrir Dyrhólaey
ann 30. nóvember sl.
vom kynnt frumdrög
a \ að deiliskipulagi fyrir
* Dyrhólaey í Mýrdalshreppi
á fundi með Hreppsnefnd Mýrdalshrepps
og Skipulags- og byggingarnefnd
Mýrdalshrepps ásamt fulltrúum frá
Siglingastofnun, Náttúravemd ríkisins og
Vegagerðinni.
í drögunum er gert ráð fyrir tals-
verðum endurbótum þannig að hægt sé að
taka á móti þeim gríðarlega fjölda
ferðamanna sem leggur leið sína þangað á
hvetju ári. Meðal annars er gert ráð fyrir
afmörkuðum og merktum göngustígum,
útsýnispalli, nýjum bílastæðum og
gömlum útihúsum á að breyta i gesta-
stofu. Fundurinn samþykkti að nýja
deiliskipulagið færi í hefðbundna
kynningu.
Siglingastofnun kemur að málinu þar
sem hún ræður yfir talsverðum hluta þess
lands sem fjallað er um. Hér til hliðar er
að finna kort af svæðinu í kringum
Dyrhólaeyjavita.
Drög að nýju deiliskipulagi - Landslag ehf.
5