Til sjávar - 01.12.1999, Page 13
Losunar- og sjósetningarbúnaður
Ekki bíða með að panta búnað
Siglingastofnun hefur nú
viðurkennt þriðju gerðina
af losunar- og sjósetningar-
búnaði gúmmíbjörgunarbáta:
Olsenbúnaðinn. Áður hafði stofnunin
viðurkennt búnað Varðelds og Sigmunds-
búnaðinn. Hér á eftir er að finna kynn-
ingu á Olsenbúnaðinum, sambærilega
þeirri sem búnaður Varðelds og
Sigmundsbúnaðurinn fengu í 2. tbl. 1999
af Til sjávar.
Á fjórða hundrað skipa hafa pantað
Á þessu ári hefur Siglingastofnun rekið
mikinn áróður fyrir því að þessi búnaður
verði settur um borð í skip. Ennfremur
ákvað samgönguráðherra í sumar að flýta
gildistöku ákvæðis um búnaðinn frá
1. janúar 2000 til 1. september 1999. Við
þetta hefur komið talsverður skriður á
málin og Qölmargir útgerðarmenn hafa
tekið við sér. Á ijórða hundruð skip hafa
nú þegar pantað búnaðinn en það þýðir að
um 10% skipa og báta eiga enn eftir að
ganga frá sínum málum og til þess hafa
þau aðeins tíma fram til fyrstu aðalskoð-
unar ársins 2000. Það er því ekki seinna
vænna að gera viðeigandi ráðstafanir!
Enginn frestur eftir 1. janúar 2000
Með útgáfu umburðarbréfs nr. 10/1999 í
ágúst sl. var vakin athygli á því að skip
lengri en 15 m þurfi tvo losunar- og
sjósetningarbúnaði. Ennfremur kom fram
að ef útgerðarmaður getur sýnt fram á við
fyrstu aðalskoðun eftir 1. september 1999
að hann sé búinn að kaupa eða panta
viðurkenndan losunar- og sjósetningar-
búnað fær skipið haffæri til eins árs.
Þessari aðferð er beitt til áramóta.
Ef útgerðarmaður getur hins vegar
ekki sýnt fram á að búnaðurinn hafi verið
keyptur eða pantaður við fyrstu aðal-
skoðun eftir 1. september 1999 þá fær
hann frest til úrbóta til áramóta.
Við fyrstu aðalskoðun eftir 1. janúar
2000 er síðan ekki um að ræða neinn frest
því þá skal búnaðurinn vera kominn um
borð í íslensk fiskiskip.
Staðsetning búnaöar
í umburðarbréf nr. 9/1999 eru fyrirmæli
um staðsetningu losunar- og sjósetningar-
búnaðar. Þar er athygli vakin á því að
staðsetning sé háð samþykki Siglinga-
stofnunar íslands og þar er einnig að
fmna nánari fyrirmæli. Umburðarbréfin
eru aðgengileg á heimasíðu Siglinga-
stoíhunar, www.sigling.is.
Ný reglugerð
Þegar blaðið fór í prentun var rétt
óútkomin breyting á reglugerð um
losunar- og sjósetningarbúnað. Efni
hennar er rakið hér á eftir.
Ákvæði um sleppibúnað er að finna í
7. gr. reglugerðar nr. 189/1994, með
síðari breytingum, um losunar- og
sjósetningarbúnað gúmmíbjörgunarbáta
íslenskra skipa. Ýmsar breytingar hafa
nú verið gerðar á 7. greininni og eru þær
helstar að orðalag hefur verið gert
skýrara, dagsetningar uppfærðar og bætt
hefur verið við tveimur viðaukum, annars
vegar viðauka um SOLAS-reglu um
losunarbúnað og viðauka
um viðurkenningarkröfur
fyrir sleppibúnaðinn.
Almennt eru helstu atriði
7. greinarinnar eru þessar:
1. Farþegaskip og kaupskip
skulu hafa losunarbúnað.
2. Fiskiskip, sem eru styttri
en 15 m (skráningarlengd),
skulu hafa losunarbúnað.
3. Fiskiskip, sem eru lengri
en 15 m, skulu hafa sleppi-
búnað á hvorri hlið.
4. Fiskiskip, sem eru lengri
en 15 m en styttri en 24 m,
geta verið með einn
sleppibúnað ef ekki verður öðru við
komið.
5. Búnaðurinn skal uppfylla kröfur um
staðsetningu, fyrirkomulag, álag, ísingu
og virkni.
6. Skoða skal búnaðinn árlega af
Siglingastofnun eða þeim aðila sem
Siglingastofnun hefur gefið leyfi til þess
að annast skoðunina.
7. Skip, smiðuð fyrir 1. september 1999,
er heimilt að hafa þann sleppibúnað sem
var um borð þann 1. september 1999 og
viðurkenndur var samkvæmt eldri
reglum. Þessi skip skulu þó uppfylla
reglur um lágmarksfjölda sleppibúnaða
við fyrstu búnaðrskoðun sem fer fram
eftir 1. janúar 2000.
8. Siglingastofnun er heimilt að veita
sérhverju skipi, öðru en farþegaskipi eða
fiskiskipi, undanþágu frá ákvæðum
greinarinnar, ef öryggi skipverja er tryggt
á annan hátt að mati stofnunarinnar.
Olsen búnaðurinn
Olsenbúnaður
Framleiðandi: SS Stál í Hafnarfirði
Hönnuður: Karl Olsen
Stutt lýsing: Búnaðurinn er gerður fyrir allt að 20 manna gúmmíbjörgunarbáta (180 kg)
og samanstendur af þremur meginhlutum sem eru gormur, sylgja og membra. Sjósetning
getur verið sjálfvirk á ákveðnu dýpi og einnig getur verið handvirk losun á staðnum eða
með fjarstýringu.
Sjálfvirk sjósetning: Búnaðurinn vinnur þannig að þrýstistýrð losunareining losar
vogarm sem heldur sjósetningarbúnaðinum samanspenntum. Drifkraftur sjósetningar er
samanpressaður gormur sem opnar eininguna um leið og vogararmurinn hefur losað takið
sem heldur búnaðinum samanspenntum.
Nánari lýsing: Sjá kynningarefni sem SS Stál í Hafnarfirði hefur gefið út og einnig
heimasíðu þeirra: www.islandia.is/~sssteel.
13