Til sjávar - 01.12.1999, Side 15
Kynning á starfsmönnum
íslcnsk fiskiskip í alþjóðlegu umhverfi
frh. af bls. 7
sem tilskipunin nær til. Það felur í sér að
erlendum siglingayfírvöldum er heimilt að
fara um borð í íslensk fiskiskip, sem koma
í erlenda höfn, til að ganga úr skugga um
að skipin uppfylli ákvæði tilskipunarinnar.
Ef skipið er á einhvem hátt vanbúið geta
þessi yfirvöld gripið til margs konar
aðgerða, allt frá því að krefjast úrbóta til
sekta og jafnvel að setja farbann á skipið.
íslenskar sérkröfur
Þegar vinna hófst við tilskipun ESB vom
hérlendis í gildi kröfur sem gengu lengra
en ákvæði TA. Þess vegna miðaðist vinna
íslands að því að koma sem flestum af
þessum kröfitm inn í væntanlega tilskipun.
Þessi vinna skilaði þeim árangri að í
tilskipuninni er viðauki sem í eru
sérkröfur fyrir svokallað Norður-hafsvæði.
Allar kröfumar í viðaukanum nema ein
em íslenskar að uppruna. Þar em kröfur
um stöðugleika vegna ísingar og kröfur
um björgunarbúninga svo dæmi séu tekin.
Þær kröfur sem eru í gildi hérlendis og
voru ekki teknar inn í tilskipun ESB vom
annað hvort settar inn í nýju reglugerðina
sem íslensk sérákvæði eða þær felldar
niður. Meðal þeirra ákvæða sem verða
áfram í gildi em sérkröfur um ýmis atriði
varðandi smíði og búnað björgunarfleka
(gúmmíbjörgunarbáta) og kröfur um
sjálfvirkan sjósetningar- og losunarbúnað.
Meðal ákvæða sem felld eru niður er
ákvæðið um innfellda stiga í hliðum
borðhárra skipa.
Lærdómsríkt fyrir Islendinga
Þess má geta hér að lokum að þátttaka
íslands vegna undirbúnings að tilskipun
Evrópusambandsins hefur verið
lærdómsrík á margan hátt. Þessi
undirbúningur hófst á sama tíma og EES-
samningurinn öðlaðist gildi og
Siglingastofnun kom að vinnunni þegar á
byrjunarstigi. Stofnunin sá um að koma
afstöðu Islands og tillögum á framfæri í
samráði við samgönguráðuneyti og
hagsmunaaðila. Árangur þessa er einnig
athyglisveður. Eins og að framan getur
eru nokkur mikilvæg ákvæði
tilskipunarinnar til komin vegna tiilagna
íslands. Þetta mun vera eitt örfárra
tilvika, eftir að EES-samningurinn
öðlaðist gildi, þar sem íslandi hefur tekist
með afgerandi hætti að hafa áhrif á mótun
löggjafar Evrópusambandsins.
PL
E
Vitaverðir
Störfum vitavarða hefur farið verulega
fœkkandi undanfarin ár. I dag eru átta
fastráðnir vitaverðir starfandi. Fjölmargir
einstaklingar um allt land eru i vitavörslu
°g fá greidda þóknun frá stofnuninni fyrir
þá vinnu.
Óskar Jakob
Sigurðsson, vita-
vörður, Stórhöfða-
vita. Fæddur 19.
nóvember 1937.
Starfaði við fisk-
vinnslu 1954-1964.
Tók við stöðu vitavarðar 1965 en aðstoðaði
við veðurathuganir í ígripum frá 1952.
Óskar á einn son.
Pálmi Freyr Ósk-
arsson, aðstoðar-
vitavörður, Stór-
höfðavita. Fæddur
13. júní 1974 í
Reykjavík. Pálmi tók
við stöðu aðstoð-
arvitavarðar 1990 en aðstoðaði við
veðurathuganir í ígripum 1988-1990.
Sigurður Bjarnason
Hofsnesi í Öræfum,
vitavörður, Ing-
ólfshöfðavita.
Fæddur í Svínafelli í
Öræfum þann 12.
nóvember 1932.
Alinn upp á Hofsnesi frá fjögra ára aldri. Er
með bamaskólapróf. Hefur unnið fjölmörg
störf til sjós og lands en hefur gegnt
vitavarðarstarfinu frá 1989. Sigurður var
kvæntur Álfheiði Einarsdóttur. Þau skildu
en áttu saman 3 böm.
m
Guðlaug Jóhanns-
dóttir, vitavörður,
Skagatáarvita.
Fædd 29. apríl 1936
Saurbæ, Lýtings-
staðahreppi, Skaga-
ftrði. Var einn vetur í ____________
Húsmæðraskólanum að Löngumýri Skaga-
firði 1954-1955. Hefur verið vitavörður frá
1989. Er gift Rögnvaldi Steinssyni, bónda
og fyrrverandi vitaverði, og eiga fjóra syni.
Þorsteinn Gunnars-
son, bóndi og vita-
vörður, Dyrhóla-
eyjarvita. Fæddur
11. maí 1946 í Litla-
Hvammi í Mýrdal.
Er með próf í húsa-
smíði frá Iðnskólanum á Selfossi 1967.
Starfaði sem húsasmiður en er nú bóndi á
Vatnsskarðshólum. Hóf störf sem vita-
vörður 1999 og tók við af bróður sínum,
Stefáni, sem hafði gegnt starfmu frá 1978.
Þorsteinn er kvæntur Margréti Guðmunds-
dóttur og eiga þau tvær dætur og einn son.
Hávarður Ólafsson,
bóndi og vita-
vörður, Skaftárós-
vita og Skarðsfjöru-
vita. Fæddur 14.
október 1944 á
Fljótakrók. Er með
barnaskólapróf. Hávarður hefur unnið á
vertíð í Vestmannaeyjum og á vinnuvélum
en starfar nú sem bóndi og vitavörður.
Hávarður hefur verið vitavörður frá 1981.
Keran Stueland
Ólason, bóndi og
vitavörður, Bjarg-
tangavita. Fæddur
18. júlí 1966 á Pat-
reksfirði. Keran er
bóndi og er með
fjárbúskap á jörðinni Geitagili og í
Breiðavík. Tók við stöðu vitavarðar í apríl
1999. Keran er kvæntur Birnu Mjöll
Atladóttur, ferðaþjónustubónda, og eiga
þau fjögur böm.
Katrín S. Alexius-
dóttir, húsmóðir og
vitavörður, Æðey.
Fædd í Reykjavík
13. apríl 1954. Er
gagnfræðingur að
mennt. Katrín hefur
m.a. unnið við skrifstofustörf og hjá
fataverksmiðjunni Gefjunni. Hóf störf sem
vitavörður í Æðey 1985. Katrín er gift
Jónasi Helgasyni, bónda, og eiga þau þrjá
syni.
15