Neytendablaðið - 01.09.1967, Side 4

Neytendablaðið - 01.09.1967, Side 4
NEYTENDABLAÐIÐ k smám saman sjálfsögð og jafnvel heilög, krefst meira áræðis en ef til vill er hægt að krefjast af kjörnum fulltrúum. Ég sagði þó aðeins hrófla við, ekki afnema. Að vísu fylgja réttindum alla jafna einhverjar skyldur og oft er sérlega vandað til orðalags, hvað þær snertir. Og það má út af fyrir sig segja, að það eigi vel við, því að svo oft eru skyldurnar aðeins í orði, en ekki á borði. Þeir sem réttindin fá eiga sjálfir að sjá um þau, og það gengur auðvitað ágætlega, en svo er það hið opinbera, sem á að sjá um skyldurnar við neyt- endurna, en það má yfirleitt ekki vera að því og telur sig jafnvel ekki hafa efni á því, og um framkvæmdir í þeim efnum er á stundum lítið hugs- að við setningu laga og reglugerða. Það hefur komið fyrir, að alveg hafi „gleymzt" að setja viðurlög við því, að reglur væru brotnar á neytendum. Áhrif vanmats á sjónarmiði neytenda. Aðgerðarleysið í þessum efnum og ef til vill skilningsleysi á því, hvað sjónarmið hins almenna neyt- anda gildi í þjóðfélaginu, í efnahags- lífinu, hefur verið mjög áberandi, og er það enn á margan hátt. Hér ei' þó í rauninni um mjög alvarlegt mál að ræða, sem okkur varðar öll. Þetta hefur í heild sinni neikvæð áhrif á lífskjör þjóðarinnar, auk þess sem hið daglega líf verður á margan hátt erfiðara, stirðara og hreint og beint leiðinlegra. Þetta hefur áhrif til hins verra á gæði vara og þjónustu á mörgum sviðum, á öryggi í viðskipt- um, á upphæðina, sem á reikninginn er sett og kaupandanum er gert að greiða að viðlögðum refsiaðgerðum, á efndir loforða, sem honum eru gefin, þar sem ekki er hugsað fyrir refsiaðgerðum fyrir brot á þeim. Áhrif þessa skorts á jafnrétti, eftir því hvort menn eru í aðstöðu kaup- andans eða seljandans, verða aldrei mæld, en hitt er víst, að þau eru mikil og slæm, og þau koma niður á okkur öllum, þegar allt kemur til alls. Raunhæfar úrbætur í þessum efnum eru mjög aðkallandi. Neyt- endasamtökin hafa það markmið eitt að leitast við að efla rétt neytenda í átt til jafnvægis. Og hér er ekki einungis mn réttlætismál að ræða og réttarfarslegt, heldur beint og óbeint efnahagsmál, sem alla snertir. Ég sagði áðan, að í lögum Neyt- endasamtakanna segði, að markmið samtakanna væri: að gæta hagsmuna neytenda í þjóðfélaginu. En þar segir ennfremur: Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná meðal annars með því: a) að vaka yfir því, að sjónarmið neytenda séu virt, þegar ákvarð- anir eru teknar eða reglur sett- ar, er varða hagsmuni neytenda. b) að reka útgáfu- og fræðslustarf- semi til aukningar á verð- og vöruþekkingu neytenda og til skilningsauka á málum, er varða hagsmuni þeirra. c) að veita félagsmönnum sinum leiðbeiningar og fyrirgreiðslu, ef þeir verða fyrir tjóni vegna kaupa á vörum og þjónustu. Samkvæmt þessu hafa Neytenda- samtökin starfað í nær 15 ár. Neyt- endahreyfingin er ung, hér sem ann- ars staðar. En skilningur almennings

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.