Neytendablaðið - 01.09.1967, Síða 5
NEYTENDABLAÐIÐ
5
og stjórnarvalda á gildi og nauðsyn
þess, að hagsmunir þjóðfélagsþegn-
anna sem neytenda séu sem bezt
tryggðir, hefur farið mjög í vöxt hin
síðari ár. Tilgangur allrar framleiðslu
og lokatakmark er neyzla. Með ein-
földum orðum má segja sem svo, að
uppbygging okkar efnahagskerfis
hljóti fyrst og fremst að eiga við það
að miðast, að við skjótum ekki fram-
hjá því marki.
Ég mun nú hér á eftir sérstak-
lega gera að umtalsefni samskipti
seljenda og kaupenda vöru og þjón-
ustu og þann þátt í starfi Neytenda-
samtakanna, sem felst í því að veita
neytendum leiðbeiningar og fyrir-
greiðslu, ef þeir telja sig verða fyrir
tjóni vegna kaupa á vörum og þjón-
ustu. Þegar sama ár og samtökin
voru stofnuð opnuðu þau skrifstofu
með daglegum viðtalstímum til þess
að verða neytendum að liði í þessum
efnum. En satt bezt að segja, þá
bjuggumst við ekki við því, að
ástandið í þessum málum væri eins
slæmt og raun hefur borið vitni. En
því hafa Neytendasamtökin reynt
eftir megni að aðstoða einstaklinga
í slíkum málum, að hin óbeinu áhrif,
sem meðferð margra þeirra mála
hafa, geta orðið mikil og hafa
sannanlega orðið það á margan hátt.
Tilvera samtakanna ein og aðgangur
að þessari þjónustu hefur einnig sín
áhrif. Og þess ber sérstaklega að
geta, þar sem það er grundvallarat-
riði, og sú ákvörðun var tekin þegar
í upphafi, að samtökin hafa aldrei
tekið neitt sérstakt gjald af þeim,
sem hafa leitað aðstoðar skrifstofu
samtakanna til að ná rétti sínum eða
viljað fræðast um það, hver réttur
þeirra væri. Unnið er að lausn hundr-
aða mála á ári hverju, og fyrirspum-
ir hvers konar em óteljandi, oftast
margir tugir dag hvern.
Þeir vissu ekki betur.
Það er sök sér, þótt neytendur al-
mennt viti ekki, að til séu lög í land-
inu, sem heita lög um lausaf járkaup
og fjalla um rétt og skyldur kaup-
enda og seljenda, en hitt er öllu al-
varlegra, að þeir sem fengið hafa
verzlunarréttindi, virðast yfirleitt
ekki vita fremur en neytendur um
tilvist, hvað þá efni, þessarra laga,
sem þó hafa gilt í hálfan fimmta ára-
tug — eða frá 19. júní 1922. Hundr-
uð seljenda hafa fyrst fengið upplýs-
ingar um tilveru þessarra laga — og
þar með um skyldur sínar og rétt
lögum samkvæmt — frá Neytenda-
samtökunum. Og það hefur ósjaldan
breytt afstöðu þeirra til muna. Þeir
vissu ekki betur, en að þeir væm í
fullum rétti, þegar þeir beittu órétti,
en þessi fræðsla hefur áhrif á fram-
tíðarviðskipti eða viðskiptaháttu. Og
til að nefna raunhæf dæmi, þá er
það ekki aðeins, að neytendur þykist
oft hafa himinn höndum tekið að fá
skírteini upp á eins árs ábyrgð vegna
framleiðslugalla á einhverjum hlut,
sem þeir hafa keypt, heldur telja
seljendur sig oft með því sýna bæði
rausn og sanngirni, sem þeim beri
engin skylda til og gætu alveg eins
látið vera. En hvort tveggja er mis-
skilningur, þvi að þessa árs ábyrgð
á seldum hlut hafa seljendur borið
síðastliðin 45 ár og bera enn — nema
annað sé sérstaklega og greinilega
Framh. á bls. 10.