Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 11
NEYTENDABLADIÐ
11
SKÓM ATSNEFND
og leiðbeiningar um meðferð á skóm
Margar kvartanir hafa skrifstofu
Neytendasamtakanna borizt um dag-
ana varðandi skó. Að sjálfsögðu
margar mjög réttlætanlegar, en
einnig er ástæðan því miður fyrst
og fremst sú, að skómir hafa verið
valdir með augunum en eklii fótun-
um. Mál þessi eru oft vandleyst af
þeirri ástæðu einni, að oft er erfitt
að sanna ástæðuna fyrir því, hvernig
skónum er komið, og þótt það væri
út af fyrir sig í flestum tilfellum
hægt, þá svarar sú rannsókn ekki
kostnaði. Hér er yfirleitt ekki um
mikil verðmæti að ræða, en eðlilegt
er, að fólki finnist dýrt að borga
t.d. 10 kr. fyrir sporið, svo dæmi
sé tekið, sem gæti verið satt.
Mál þessi eru á ýmsan hátt hlið-
stæð þeim vandamálum, sem Mats-
nefnd í ágreiningsmálum vegna fata-
hreinsunar leitast við að leysa, en
þar eru mál oft á tíðum leyst frá
sanngirnis sjónarmiði og farið eftir
líkum, þótt sönnun sé ekki fyrir
hendi. Nú er á döfinni að koma á
fót hliðstæðri matsnefnd varðandi
skófatnað, og eru viðræður þegar
hafnar við þá aðila, sem til greina
Leiðbeiningar um meðferð á skóm.
kæmu að eiga hlut að máli. Hafa
undirtektir þeirra verið mjög já-
kvæðar og gefa góðar vonir um það,
að slík nefnd verði senn skipuð. Til-
vera slíkrar nefndar ein myndi skapa
aðhald, og hún gæti, eins og þegar
hefur komið fram í viðræðunum,
stuðlað að því á ýmsan hátt að koma
í veg fyrir ágreiningsmál — og
reyndar tjón. Röng meðhöndlun,
notkun og vai á skóm sem og að
sjálfsögðu innflutningur á þeim og
skortur á upplýsingum og leiðbein-
ingum, sem fylgja ættu, eru megin-
ástæður tjóns og vonbrigða neyt-
enda. Það yrði því hlutverk nefndar-
innar jafnframt því að leysa úr
ágreiningsmálum að hafa bætandi
áhrif á neytendur og seljendur al-
mennt með ýmsum ráðum.
En það er óþarfi að bíða eftir
nefndarskipuninni, hvað vinsamlegar
ábendingar snertir til íslenzkra neyt-
enda, sem stíga sín skref við hinar
fjölbreytilegustu ástæður á margvís-
legan hátt. Fyrst höfum við hlið-
sjón af þeim árstíma, sem er hvað
viðsjárverðastur til fótanna:
® Gætið þess vel, að allt leður þohr iha að blotna. Sérstaklega eru
rúskinnsskór viðkvæmir. Þegar snjór og hálka fer að myndast, er gripið
til þess úrræðis að bera salt á götur og gangstéttir, en saltmengað vatn
er mjög slæmt að fá á skófatnað. Það er illgerlegt að ná því úr, og það
myndar gráar saltrákir á skóna. Til varnar þessu ber að nota efni, sem
vatnsver skóna, silicone-efni eða önnur hliðstæð, en þau fást hjá flestum