Neytendablaðið - 01.09.1967, Síða 13

Neytendablaðið - 01.09.1967, Síða 13
NEYTENDABLAÐIÐ 13 Erindi á iðnþingi fulltrúar neytenda og efnalaugaeig- enda. Nær allar efnalaugar eiga að- ild að nefndinni og skuldbinda sig til að hlíta umsögn hennar. Hér er oft um mjög erfið mál að eiga, hvað sönnunaratriði varðar. En það er aldrei látið hindra umsögn, sem oft verður að byggja á líkum og mótast af vilja til sanngirni. Með þessu hef- ur skapazt aðhald og öryggi í við- skiptum á þessu sviði, og er það mik- il breyting og framför, frá því sem var, er nefndin tók til starfa. Efna- laugaeigendur kunna ekki sízt að meta starf þessarar nefndar, en hún gerir mögulega lausn á málum, sem hvorugur aðila hefði fallizt á ella og að minnsta kosti ekki báðir. I nefnd- inni eiga sæti 2 fulltrúar neytenda og jafnmargir frá efnalaugaeigend- um, og í þau 12 ár, sem hún hefur starfað, hefur aldrei þurft að kveðja til oddamann. Stofnun fleiri svipaðra matsnefnda hefur verið og er á döfinni. Á s.l. ári komu Neytendasamtökin og Hús- gagnameistarafélag Reykjavíkur sér saman um reglugerð um ábyrgðar- merkingu húsgagna og stofnun mats- nefndar. Undirbúningur að því máli var mjög ítarlegur og nákvæmur og ætti að geta auðveldað og flýtt fyrir stofnun hhðstæðra matsnefnda. Æskilegt væri, ef við ekki segjum beinlínis nauðsynlegt, að stofnaðar yrðu slíkar matsnefndir, sem næðu yfir sem flestar tegundir almennra viðskipta. Þær myndu, ef vel tækist, ekki aðeins geta skjótlega leyst úr málum, sem annars eru nær óleysan- leg í voru réttarfari, heldur um leið veitt þarft aðhald og hafa bætandi áhrif á gæði vara og þjónustu og þar með á viðskiptalífið og lífskjör landsmanna. Ef ávallt hallar á neyt- andann, hvað rétt snertir í viðskipt- um, þá stuðlar það að lakari vöru- gæðum, lélegri þjónustu og um leið hærra verði. Og á dæmi um þetta má benda í allar áttir í íslenzku efna- hagslífi. Reglugerð um merkmgu vara knýjandi nauðsyn. Ég tel rétt að nefna hér eitt dæmi, sem síðan getur verið til hliðsjónar. Það sýnir reyndar, hvernig hags- munamál neytenda almennt eru af hálfu stjórnarvaldanna oft tekin sem annars, þriðja eða fjórða flokks vandamál. I meira en áratug hafa Neytendasamtökin barizt fyrir því, að sett væru lög eða reglugerðir um merkingu vara, þannig að neytand- inn geti fengið þær upplýsingar um vöruna, sem hann á skýlausa kröfu á, áður en kaup eru gerð, og fá þær skriflegar, þ.e.a.s. á meðfylgjandi miða og á móðurmáli neytenda, eins og tíðkast með f jölmörgum menntuð- um þjóðum, og ekki sízt þeim, sem við eigum mest menningarleg sam- skipti við og ætti því að vera auð- velt að leita fyrirmynda til. Ýmislegt hefur að vísu gerzt í þessu máli, en engin reglulgerð né lög um almenna merkingarskyldu hafa enn séð dags- ins ljós. Önnur mál hafa verið talin brýnni. Hér er þó um mjög mikilvægt mál að ræða, ekki aðeins réttlætis- mál, sem eykur öryggi í viðskiptum, heldur beinlínis efnahagsmál og þar með talið gjaldeyrismál. Skortur á vörumerkingum hér á landi veldur

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.