Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 15

Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 15
NEYTENDABLAÐIÐ 15 ins tíma, óábyrgar kostnaðaráætlan- ir, sem hin endanlega reikningsupp- hæð fer stundum óralangt fram úr og fælni við allt, sem er skriflegt. Það verður allt of oft vart við til- hneigingu hjá iðnaðarmönnum til að hafa allt sem óljósast, óákveðið og óbundið, en ómótmælanlega er slíkt, þegar að uppgjörinu kemur, í hag þess, sem reikninginn gerir á eftir, hvort sem hann svo notfærir sér það að einhverju leyti eða ekki. Ágreiningsmál milli iðnaðarmanna og neytenda eru án efa alltof mörg og jafnvafalaust óþarflega mörg. Það væri fyllsta ástæða til að fækka þeim og skapa grundvöll til að leysa þau á ódýran og skjótan hátt. Það er vissulega hægt, ef vilji er fyrir hendi, sem ég leyfi mér að fullyrða að hljóti að vera hjá iðnaðarmönn- um almennt. Viðræður þegar liafnar um stofnun matsnefndar. Af hálfu Neytendasamtakanna hefur oft verið bent á þá leið til lausnar á ágreiningsmálum kaupenda og seljenda, að skipaðar væru mats- nefndir, sem samtök beggja aðilja kæmu sér saman um á jafnréttis- grundvelli. Mér er það sönn ánægja að geta skýrt frá því hér, að í sum- ar hafa átt sér stað viðræður milli fulltrúa frá Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði, Iðnaðarmannafélags Suðumesja og Neytendasamtakanna um stofnun matsnefndar um iðnað- arvinnu, og það að framkvæði hinna fyrrnefndu. Þegar liggja fyrir drög að samningi milli þessarra aðila, en ef samkomulag næst, gæti það tákn- að mikilvægt spor í rétta átt og orð- ið öðrum til hliðsjónar. Það er mik- ils virði, að gagnkvæmt traust ríki milli seljenda og kaupenda, svo sem nokkur kostur er. Neytendasamtökin eru reiðubúin til samstarfs í þessu efni. Og þau eru, eins og margir iðn- aðarmenn þekkja, hvenær sem er reiðubúin að verða þeim að liði, þeg- ar þeir eru í aðstöðu kaupandans, neytandans. Ég leyfi mér að lokum að vona, að iðnþingið taki mál þetta að einhverju leyti til meðferðar nú. Ég óska svo 29. iðnþingi Islendinga allra heilla í störfum til hagsbóta fyrir iðnaðar- menn og þá, sem við þá skipta, — fyrir þjóðina alla. Eins gott að vera viss . . . samtakanna hafði verið dæmdur í undirrétti til stórfelldra skaðabóta persónulega. (40.000 kr. til innflytj- anda, 6.000 kr. til danska fyrirtæk- isins og 5.000 kr. í málskostnað auk vaxta í nær tvö ár af þessum upp- hæðum). (Þetta gerðist fyrir 10 árum). Neytendasamtökin höfðu nefnilega birt viðvörun vegna efna- samsetningar hins danska undra- þvottaefnis. (Gerið þvottadaginn að hvíldardegi). Bréf frá danska heim- ilisráðinu var eitt af þeim nýju gögn- um, sem Hæstiréttur vitnaði til, er hann sýknaði stjórn Neytendasam- takanna að öllu leyti. Við óskum danska Heimilisráðinu góðs gengis í máli þessu. En bæði þessi mál sýna, hversu gætilega og örugglega verður að fara í þessum efnum. Þetta var mikil þolraun fyrir Neytendasamtökin nýstofnuð, en málaferlin stóðu í 4 ár.

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.